Ferill 356. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 356 . mál.


636. Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um afla línubáta.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



    Hver var árlegur heildarafli línubáta á árunum 1980–1992?
    Hvert var árlegt hlutfall línuafla af heildarbolfiskveiði Íslendinga á þeim árum?
    Hver var árleg þorskveiði línubáta á árunum 1980–1992?
    Hvert var árlegt hlutfall þorskveiði á línu af heildarþorskveiði Íslendinga á þeim árum?
    Hver var árlegur afli línubáta í janúar, febrúar, nóvember og desember árin 1980–1992?
    Hvert var árlegt hlutfall línuafla af heildarbolfiskafla í janúar, febrúar, nóvember og desember árin 1980–1992?


Skriflegt svar óskast.