Ferill 369. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 369 . mál.


650. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um frágang fjárlaga fyrir árið 1993.

Frá Guðrúnu Helgadóttur.



    Telur ráðherra það samrýmast lögum um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga, nr. 52/1966, að auknar skatttekjur ríkissjóðs vegna efnahagsráðstafana ríkisstjórnarinnar, að upphæð 4 milljarðar króna, koma ekki fram í fjárlögum 1993?
    Verða lögð fram fjáraukalög til leiðréttingar á fjárlögum ársins 1993 vegna þessa?
    Hvernig koma umræddir 4 milljarðar króna fram í ríkisreikningi ársins 1993 ef þá verður ekki að finna í fjárlögum eða fjáraukalögum þess árs?