Ferill 386. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 386 . mál.
680. Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um börn í áhættuhópum.
Frá Önnu Ólafsdóttur Björnsson.
Hvað líður setningu reglugerðar um fyrirkomulag skráningar barna í áhættuhópum og meðferð upplýsinga, sbr. 20. gr. laga um vernd barna og ungmenna, nr. 58/1992, og kynningu á efni laganna fyrir barnaverndarnefndum og starfsmönnum þeirra?