Ferill 410. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 410 . mál.


704. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um bókaútgáfu á vegum ríkisins.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



    Hversu margar bækur voru gefnar út á vegum ríkisstofnana (ríkisstjórnin þar með talin) á síðasta ári?
    Hversu margar þessara bóka voru boðnar út til útgáfu?