Ferill 414. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 414 . mál.


708. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um Fasteignamat ríkisins.

Frá Jónu Valgerði Kristjánsdóttur.



    Hefur Fasteignamati ríkisins verið skipuð sérstök stjórn þar sem sveitarfélög eigi fulltrúa?
    Má vænta þess að starfsemi stofnunarinnar verði færð í meira mæli af höfuðborgarsvæðinu og út á land og þar með nær þeim sem hún þjónar?