Ferill 417. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. –
417
. mál.
713. Fyrirspurn
til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um bótarétt atvinnulausra í veikindum.
Frá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.
Á hvaða lagaheimild byggist sú framkvæmd að greiða ekki atvinnuleysisbætur fyrir veikindadaga þótt bótaþegi njóti ekki sjúkradagpeninga frá Tryggingastofnun ríkisins?
Hvernig er háttað bótarétti þegar atvinnulaust foreldri kemst ekki til vikulegrar skráningar vegna veikinda barna?