Ferill 356. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 356 . mál.
721. Svar
sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar um afla línubáta.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1 . Hver var árlegur heildarafli línubáta á árunum 1980–1992?
2 . Hvert var árlegt hlutfall línuafla af heildarbolfiskveiði Íslendinga á þeim árum?
3 . Hver var árleg þorskveiði línubáta á árunum 1980–1992?
4 . Hvert var árlegt hlutfall þorskveiði á línu af heildarþorskveiði Íslendinga á þeim árum?
5 . Hver var árlegur afli línubáta í janúar, febrúar, nóvember og desember árin 1980–1992?
6 . Hvert var árlegt hlutfall línuafla af heildarbolfiskafla í janúar, febrúar, nóvember og desember árin 1980–1992?
Í meðfylgjandi töflum koma fram svör við framangreindum spurningum. Tafla I er svar við spurningum 1 og 2, í töflu II er spurningum 3 og 4 svarað og loks er spurningum 5 og 6 svarað í töflu III. Allar tölulegar upplýsingar eru unnar af Fiskistofu. Fyrir árin 1980–1991 er alfarið byggt á upplýsingum sem Fiskifélag Íslands safnaði en fyrir árið 1992 er að hluta byggt á upplýsingum sem sjávarútvegsráðuneytið og Fiskistofa söfnuðu. Þar sem aflatölur fyrir almanaksárið 1992 hafa ekki endanlega verið gerðar upp verður að líta á tölur fyrir það ár sem bráðabirgðatölur.
Öll svörin eru miðuð við botnfisk en ekki bolfisk. Þær tegundir, sem um er að ræða, eru: þorskur, ýsa, ufsi, karfi, langa, blálanga, keila, steinbítur, þykkvalúra, langlúra, skrápflúra, geirnyt, stór
Þá eru öll svörin miðuð við þann afla sem veiddist á línu. Ekki er því tiltekinn sá afli sem bátar, sem stunduðu línuveiðar á umræddu tímabili, öfluðu með öðrum veiðarfærum.
(Tafla ekki tiltæk.)