Ferill 115. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 115 . mál.


747. Breytingartillögur



við frv. til l. um stofnun hlutafélags um Síldarverksmiðjur ríkisins.

Frá meiri hluta sjávarútvegsnefndar (ÖS, ÁRÁ, GAK, GHall, HjálmJ).



    Við 1. gr. Á eftir orðinu „hlutafélag“ í 1. málsl. komi: með heimili og varnarþing á Siglufirði.
    Við 6. gr. Eftirfarandi breytingar verði á greininni:
         
    
    Í stað orðanna „1. maí 1993“ í fyrri málslið komi: 1. ágúst 1993.
         
    
    Við greinina bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                            Stjórn hlutafélagsins skal skipuð fimm mönnum.
    Við 10. gr. Í stað orðanna „1. maí 1993“ komi: 1. ágúst 1993.