Ferill 490. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 490 . mál.


839. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 67/1971, um almannatryggingar, með síðari breytingum.

Flm.: Margrét Frímannsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir.



1. gr.


    Í stað 4.–5. málsl. 13. gr. laganna, sbr. 3. gr. laga nr. 79/1991, komi tvær nýjar málsgreinar er orðast svo:
    Dagleg þjónusta við barn utan heimilis skerðir umönnunarbætur. Heimilt er þó að veita framfæranda barns, sem nýtur þjónustu utan heimilis, umönnunarbætur skv. 1. mgr. þegar barnið dvelst á sjúkrastofnun eða þegar það vegna sjúkdóms eða fötlunar getur ekki nýtt sér að fullu þá opinberu þjónustu sem það á rétt á samkvæmt lögum.
    Um framkvæmd greinarinar fer eftir reglugerð sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra setur í samráði við félagsmálaráðherra að fengnum tillögum tryggingaráðs.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Markmið þessa frumvarps er tvíþætt. Í fyrsta lagi er það flutt til að rétta hag þeirra foreldra er eiga börn sem þannig er ástatt um að dvöl þeirra á sjúkrastofnun kallar á verulega umönnun af hálfu foreldra meðan barnið dvelst á sjúkrastofnuninni. Sem dæmi má taka að krabbameinssjúk börn þurfa mjög á návist foreldra að halda meðan þau dveljast á sjúkrastofnun. Þessir foreldrar verða því oft mjög bundnir yfir börnum sínum sem jafnast á við að börnin séu í daglegri umsjá þeirra í heimahúsi. Með frumvarpinu er því ætlunin að tryggja að foreldrar, sem búa við þessar aðstæður, njóti óskertra umönnunarbóta. Samkvæmt frumvarpinu geta foreldrar, sem eiga börn er dveljast á sjúkrastofnun, átt kost á umönnunarbótum meðan barnið dvelst á sjúkrastofnuninni ef þau uppfylla hin almennu skilyrði fyrir umönnunarbótum sem kveðið er á um í 1. mgr. laganna. Þessi almennu skilyrði eru m.a. þau að veikindi barnsins hafi í för með sér tilfinnanleg útgjöld fyrir foreldrana eða sérstaka umönnun eða gæslu af þeirra hálfu meðan á dvöl barns á sjúkrastofnun stendur.
    Í öðru lagi er í frumvarpinu gert ráð fyrir að heimilt verði að greiða umönnunarbætur til framfærenda barna sem vegna sjúkdóms eða fötlunar geta ekki nýtt sér að fullu þá opinberu þjónustu sem þau samkvæmt lögum eiga rétt á. Samkvæmt núgildandi lögum skerðast umönnunarbætur um leið og barn á rétt á eða nýtur einhverrar opinberrar þjónustu, t.d. ef barn er á skólaskyldualdri. Bæturnar skerðast þó að barnið geti ekki vegna sjúkdóms eða fötlunar nýtt sér skólagöngu nema að litlu leyti. Oftar en ekki þurfa foreldrar að fylgja barninu í og úr skóla og jafnvel dveljast í skóla meðan á kennslu stendur. Í þeim tilvikum telja flutningsmenn þessa frumvarps eðlilegt að heimilt verði að greiða fullar umönnunarbætur í ljósi þess að foreldri eða framfærandi barns er í raun jafnbundinn vegna veikinda eða fötlunar barnsins og á meðan það naut engrar opinberrar þjónustu.
    Gert er ráð fyrir að framkvæmd greinarinnar fari eftir reglugerð sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra setur í samráði við félagsmálaráðherra að fengnum tillögum tryggingaráðs.