Ferill 527. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 527 . mál.


885. Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um fjárfestingu Íslendinga erlendis.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.


    Hversu mikil var fjárfesting innlendra aðila erlendis á árinu 1992?
    Í hverju fólst sú fjárfesting?
    Hversu mikill hluti fjárfestingarinnar kom frá
         
    
    atvinnufyrirtækjum,
         
    
    fjármálastofnunum, þar með töldum lífeyrissjóðum,
         
    
    einstaklingum?
    Má vænta aukinnar fjárfestingar Íslendinga erlendis? Og ef svo er, á hvaða sviðum helst?