Ferill 549. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 549 . mál.
914. Frumvarp til laga
um gjald af tóbaksvörum.
(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992–93.)
1. gr.
Greiða skal sérstakt gjald — tóbaksgjald — af vörum sem falla undir vörulið 2401, 2402 og 2403 í viðauka I við tollalög nr. 55/1987, með síðari breytingum. Gjald skv. 1. mgr. skal vera sem hér segir:2. gr.
Af gjöldum skv. 1. gr. renna 3% til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og 97% til ríkissjóðs. Af innfluttum tóbaksvörum skal innheimta gjald skv. 1. gr. við tollafgreiðslu þeirra ásamt aðflutningsgjöldum.3. gr.
Allir þeir, sem framleiða eða pakka hér á landi vörum sem um ræðir í 1. gr., hvort sem er til sölu innan lands eða til eigin nota, eru gjaldskyldir samkvæmt lögum þessum.
Af tóbaksvörum, sem framleiddar eru til sölu innan lands og gjaldskyldar eru skv. 1. gr., reiknast gjöldin við sölu eða afhendingu vörunnar frá verksmiðju eða framleiðanda og skiptir ekki máli hvenær eða með hvaða hætti greiðsla kaupanda fer fram.
Framleiðsla tóbaksvöru til sölu erlendis skal undanþegin gjöldum samkvæmt lögum þessum.
Gjaldskyldir aðilar skulu ótilkvaddir senda tilkynningu um starfsemi sína til skattstjóra þar sem þeir eru heimilisfastir. Þeir sem hefja gjaldskylda starfsemi skulu senda tilkynningu áður en starfsemin hefst.
Í tilkynningu skal greina nafn og heimili rekstraraðila, firmanafn og hvers konar framleiðslu sé um að ræða.
Skattstjórar skulu hver í sínu umdæmi semja skrár um alla þá sem hafa með höndum gjaldskylda starfsemi samkvæmt lögum þessum.
4. gr.
Þeir sem skyldir eru að innheimta gjöld skv. 1. gr. og tilgreindir eru á skrá, sbr. 3. gr., skulu ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs í umdæmi því, þar sem þeir eru heimilisfastir, þau gjöld sem þeim ber að standa skil á. Greiðslu skal fylgja skýrsla á þar til gerðu eyðublaði um gjaldskylda sölu á uppgjörstímabilinu, þar með talin úttekt til eigin nota. Gjaldskylda sölu skal sundurliða eftir vöruheitum og tollskrárnúmerum.Gjalddagar tóbaksgjalds af tóbaki vegna sölu innlendrar framleiðslu eru sex á ári hverju, 1. janúar, 1. mars, 1. maí, 1. júlí, 1. september og 1. nóvember.
Eindagi er 15 dögum eftir gjalddaga.
5. gr.
Við ákvörðun tóbaksgjalds af óunnu tóbaki, tóbaksúrgangi svo og af vindlum, reyk-tóbaki og öðru unnu tóbaki, sbr. a-, b-, d- og e-liði 2. mgr. 1. gr., ber að leggja til grundvallar nettóþyngd vörunnar án hvers konar umbúða.6. gr.
Gjaldskyldar vörur samkvæmt lögum þessum, sem framleiddar eru hérlendis eða fluttar eru inn til neyslu hérlendis, skulu vera merktar merki íslenskra tollyfirvalda. Merkinu skal komið fyrir á hverjum einstökum neytendapakka eða neytendaumbúðum og þannig frá því gengið að það verði ekki rifið burtu án þess að pakkinn eða umbúðirnar beri þessi merki.7. gr.
Tóbaksgjald skv. 1. mgr. 1. gr. skal vera grunntaxti.Fjármálaráðherra er heimilt með reglugerð að hækka gjald af hverri gjaldskyldri einingu skv. 2. mgr. 1. gr. þannig að það hækki í réttu hlutfalli við hækkun sem kann að verða á framfærsluvísitölu, sbr. lög nr. 5/1984. Grunntaxti gjaldsins er miðaður við vísitölu 1. janúar 1991, þ.e. 149,5 stig.
8. gr.
Að því leyti sem eigi er ákveðið í lögum þessum um gjaldskyldu, úrskurð um flokkun til gjaldskyldu, álagningu, innheimtu, lögvernd, sektir, viðurlög, refsingar og aðra framkvæmd varðandi gjöld af innfluttum tóbaksvörum samkvæmt lögum þessum skulu gilda eftir því sem við getur átt ákvæði tollalaga, nr. 55/1987, með síðari breytingum.Að því leyti sem ekki eru ákvæði í lögum þessum um álagningu, innheimtu, tilhögun bókhalds, framtöl, eftirlit, stöðvun atvinnurekstrar, viðurlög, sektir, refsingar og aðra framkvæmd varðandi gjöld samkvæmt lögum þessum af innlendri framleiðslu eða tóbaki, sem fær einhverja vinnslumeðferð eða pökkun hér á landi, skulu gilda, eftir því sem við geta átt, ákvæði laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, og reglugerða og annarra fyrirmæla settra samkvæmt þeim, svo og ákvæði laga nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari breytingum.
Um ágreining vegna flokkunar innlendrar tóbaksframleiðslu til gjaldskyldu skv. 1. gr. skulu þó gilda ákvæði tollalaga, nr. 55/1987, með áorðnum breytingum, sbr. 1. mgr. þessarar greinar.
9. gr.
Árlega skal verja sem svarar 0,5% af tekjum ríkissjóðs af tóbaksgjaldi til tóbaksvarnastarfs. Tóbaksvarnanefnd gerir tillögur til heilbrigðismálaráðherra um ráðstöfun fjárins.10. gr.
Ráðherra er heimilt að setja með reglugerð nánari fyrirmæli um framkvæmd laga þessara.11. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1994. Um leið fellur úr gildi 15. gr. laga nr. 74/1984, um tóbaksvarnir.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Með frumvarpi þessu er lagt til að tekið verði upp nýtt gjald er leggja skal á allt tóbak. Gjaldinu er ætlað að koma í stað einkasölugjalds af tóbaki.
Talið er eðlilegra fyrir ríkið og mun einfaldara miðað við núverandi aðstæður að afla þeirra tekna af tóbakssölu, sem taldar eru æskilegar á hverjum tíma, með beinni skattlagningu á innflutning þess og framleiðslu í stað þess að afla þessara tekna sem einkasölu-aðili sem í raun hefur aðeins falist í að annast innflutning, birgðahald og dreifingu fyrir umboðsmenn tóbaksframleiðenda. Þá er og bent á það að óviðeigandi sé, í ljósi þess hve skaðsemi tóbaksneyslu er talin ótvíræð, að ríkið skuli stunda verslun með tóbak.
Með vísan til þessa er í frumvarpi þessu gert ráð fyrir að afla frá og með 1. janúar 1994 þeirra tekna, sem ríkissjóður hefur notið af einkasölugjaldi af tóbaki, með sérstöku gjaldi, tóbaksgjaldi, sem leggst á allt innflutt tóbak, svo og innlenda tóbaksframleiðslu sé um hana að ræða. Einkasöluréttur ríkisins á tóbaki fellur hins vegar niður frá sama tíma.
Frumvarpið gerir ekki ráð fyrir breytingum á fyrirkomulagi tóbaksvarna. Áfram verða í gildi ákvæði um merkingar, bann við auglýsingum o.s.frv.
Þær verðlagningarreglur, sem munu gilda samkvæmt þessu frumvarpi, eru byggðar á þeim aðferðum sem notaðar hafa verið við ákvörðun verðs hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins á undanförum árum. Álögur eru aðflutningsgjöld sem miðast við innkaupsverð og tóbaksgjald sem samsvarar tóbaksálagningu og heildsöluálagningu ÁTVR. Auk þess er gert ráð fyrir hækkun tóbaksgjalds um 3% til að mæta framlagi í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Þar til í desember 1983 hafði sú regla tíðkast um alllangt skeið varðandi verð tóbaks að útsöluverð þess var ákveðið hið sama á sams konar tegundum án tillits til innkaupsverðs á hverri tegund fyrir sig. Hækkanir útsöluverðs á tóbaki á þessum tíma áttu í langflestum tilvikum rætur sínar að rekja til hækkunar einkasölugjaldsins en ekki til breytinga sem áttu sér stað á kostnaðarverði þess. Hækkun einkasölugjaldsins var jafnframt nær ætíð ákveðin hlutfallslega sú sama á allar tegundir tóbaks. Fyrir gat komið að tóbak, sem var tiltölulega ódýrt í innkaupi, væri selt á sama verði og sambærilegt tóbak sem var dýrt í innkaupi. Þetta fyrirkomulag við ákvörðun einkasölugjalds og útsöluverðs hafði raunverulega í för með sér að hvorki framleiðendur né umboðsmenn þeirra höfðu áhuga á að halda innflutningsverði niðri því að lágt innflutningsverð hafði engin áhrif á útsöluverðið heldur leiddi einungis til hærri tekna ríkissjóðs í formi einkasölugjalds. Í ljósi þessa voru í upphafi árs 1984 ákveðnar nýjar verðlagningarreglur á tóbaksvörum. Tilgangur hinna nýju reglna var og er að tengja útsöluverðið í mun ríkari mæli en áður innflutningsverðinu á sama hátt og tíðkast í eðlilegu verðmyndunarkerfi. Þetta fyrirkomulag hefur tekist vel og nú er ætlunin að ganga lengra með því að lögbinda þessa álagningu tóbaksgjalds og fela umboðsmönnum innflutning og dreifingu. Í megindráttum felast reglur þessar í því að við kostnaðarverð vindlinga er bætt föstu gjaldi (tóbaksgjaldi) er nemur 5,60 kr. á hvert stykki. Gjald þetta er grunngjald sem má hækka í samræmi við þróun framfærsluvísitölu. Á kostnaðarverð annars tóbaks er hins vegar lagt fast gjald er nemur 4,30 kr. á gramm, nema neftóbak þar sem gjaldið nemur 1,50 kr. á gramm. Engar reglur munu gilda um ákvörðun heildsölu- og smásöluálagningar. Tóbak er virðisaukaskattsskylt eins og fyrr.
Að öðru leyti vísast nánar til athugasemda við einstakar greinar hér á eftir.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Gert er ráð fyrir að tóbaksgjald verði innheimt með sama hætti og vörugjald, sbr. lög nr. 97/1987, með síðari breytingum, að öðru leyti en því að tóbaksgjald verður magngjald, þ.e. visst gjald af þyngd, en vörugjöldin eru verðgjald, þ.e. tiltekið hlutfall af verði. Af þessum sökum er innflutningur tóbaks og innlend framleiðsla gjaldskyld með sama hætti.
Samkvæmt a-lið 2. mgr. er lagt til að tóbaksgjald verði innheimt af öllu óunnu tóbaki. Þetta leiðir til þess að af hráefnum til tóbaksframleiðslu ber þegar við tollafgreiðslu að greiða tóbaksgjald. Framleiðendum er hins vegar heimilt á grundvelli 8. gr. frumvarpsins að draga þannig greitt tóbaksgjald frá því tóbaksgjaldi sem standa ber skil á af innlendri framleiðslu á tóbaksvörum. Með þessu er tryggt að tóbaksgjald hefur ætíð verið innheimt af öllum tóbaksbirgðum sem til eru í landinu á hverjum tíma.
Samkvæmt b-lið þessarar greinar er lagt til að gjald af hverju grammi af nettóþyngd hvers pakka af vindlum verði 4,30 kr. Til skýringar skal þess getið að óeðlilegt er að hafa fast gjald af hverju stykki af vindlum, líkt og lagt er til varðandi vindlinga vegna mjög mismunandi stærðar þeirra og þyngdar. Á árinu 1992 voru seld tæplega 26 tonn af vindlum og hefðu tekjur ríkissjóðs þá verið tæpar 112 m.kr. vegna þeirra, miðað við það gjald sem að ofan greinir, fyrir utan aðflutningsgjöld og virðisaukaskatt.
Samkvæmt c-lið er lagt til að gjaldið verði 560 kr. af hverjum 100 stykkjum af vindlingum. Ekki er gerð tillaga um að innheimta skuli mismunandi gjald eftir lengd þeirra eða ummáli eins og tíðkast t.d. í Noregi. Tillaga sú, sem hér er gerð, þykir horfa til mikillar einföldunar, enda tóbaksmagnið oft svipað í vindlingum, þó svo lengd þeirra og ummál sé mismunandi. Gjald af hverju grammi vindlings er samkvæmt þessu aðeins hærra en af öðru tóbaki. Þessi munur er þó minni en hann hefur löngum verið. Á árinu 1992 seldust 402.785 mill af vindlingum (mill = 1.000 stk.). Miðað við svipaða sölu má ætla að tekjur af gjaldinu af vindlingum á næsta ári verði 2.256 m.kr. á verðlagi janúarmánaðar 1993.
Samkvæmt d-lið greinarinnar er lagt til að sama gjald verði lagt á reyktóbak og vindla. Til þessa hefur einkasölugjaldið af reyktóbaki verið nokkru lægra en af vindlum, en ástæðulaust er talið að gera mun hér á. Sala á árinu 1992 nam tæpum 14 tonnum. Miðað við svipaða sölu næmu tekjur af gjaldi á reyktóbak um 59 m.kr. á næsta ári á núvirði.
Í e-lið er lagt til að af unnu tóbaki öðru en því sem greinir í a–d liðum verði einnig innheimt 4,30 kr. af hverju grammi.
Í f-lið er lagt til að gjald á neftóbak, sem inniheldur ammoníakupplausn, verði 1,50 kr. af hverju grammi. Sala þess á árinu 1992 nam rúmum 17 tonnum.
Um 2. gr.
Hér er kveðið á um skiptingu tóbaksgjaldsins milli Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og ríkissjóðs. Með afnámi einkasölu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á tóbaki munu tekjur Jöfnunarsjóðs af landsútsvari lækka. Með því að láta 3% af tóbaksgjaldinu renna í sjóðinn er talið að vega megi upp þessa lækkun.
Í 2. mgr. er kveðið á um að tóbaksgjald af innfluttum tóbaksvörum skuli innheimt við tollafgreiðslu ásamt aðflutningsgjöldum á sama hátt og önnur vörugjöld af innflutningi.
Um 3. gr.
Eins og kunnugt er þá er engin önnur framleiðsla tóbaksvara hérlendis en neftóbaksgerð. Því er ljóst að langmestur hluti tóbaksgjalds og vörugjalds af tóbaki muni innheimtast í tolli. Engu að síður er nauðsynlegt, t.d. vegna núverandi neftóbaksframleiðslu, að kveða á um innheimtu af innlendri framleiðslu. Í þessari grein er kveðið á um hvenær innlend framleiðsla verður gjaldskyld, þ.e. við sölu eða afhendingu vörunnar, og skiptir í því efni ekki máli hvenær eða með hvaða hætti greiðsla kaupanda fer fram, hverjir séu gjaldskyldir, um tilkynningarskyldu þeirra og skráningu.
Um 4. gr.
Í þessari grein er kveðið á um álagningu og innheimtu gjalds af innlendri framleiðslu og eru þær efnislega þær sömu og gilda um álagningu og innheimtu vörugjalds samkvæmt lögum nr. 97/1987 og reglugerðum settum samkvæmt þeim lögum.
Um 5. gr.
Með þessari grein er til öryggis kveðið á um hvað átt sé við þegar kveðið er á um nettóþyngd í lögunum, þ.e. þyngd vörunnar án hvers konar umbúða, þar með taldar neytendaumbúðir.
Um 6. gr.
Í þessari grein er lagt til að allar gjaldskyldar tóbaksvörur skuli merktar merki tollyfirvalda til sönnunar því að tóbaksgjald hafi verið af þeim greitt. Merkingu þessa annast framleiðendur og er gert ráð fyrir svipaðri eða sömu merkingu og nú á sér stað á vegum ÁTVR. Með þessari merkingu er stefnt að því að auðvelda eftirlit með ólöglegum innflutningi og framleiðslu hvers konar tóbaksvöru.
Um 7. gr.
Í þessari grein er kveðið á um heimild til handa fjármálaráðherra að hækka tóbaksgjald í samræmi við hækkun framfærsluvísitölu. Grunngjaldið er miðað við framfærsluvísitölu í janúar 1991 sem hefur það í för með sér að fjármálaráðherra hefur heimild til að hækka tóbaksgjaldið sem næst 10% frá því sem gildir í dag. Þessi heimild er til að tryggja að ráðherra hafi nokkurt svigrúm til verðákvörðunar, m.a. til að bregðast við ef afnám á einkasölu á tóbaki verður til þess að tóbaksverð lækki. Nú hefur fjármálaráðherra nokkuð óbundnar hendur varðandi ákvörðun einkasölugjaldsins. Í raun má segja að með ákvæði þessu sé verið að takmarka heimildir hans til hækkunar ígildis einkasölugjaldsins frá því sem verið hefur. Eins og kunnugt er þá eru þó nokkur gjöld nú hækkuð samkvæmt sambærilegri heimild, t.d. bensíngjald, þungaskattur og flugvallagjald. Ákvæðinu er ætlað að tryggja ákveðið svigrúm og að gjaldið geti fylgt verðlagi án þess að til afskipta löggjafans komi hverju sinni rétt eins og raunin er varðandi ofangreind gjöld og verðlag eins og toll og virðisaukaskatt.
Um 8. gr.
Með þessari grein er kveðið á um að sömu reglur og gilda um vörugjald samkvæmt lögum nr. 97/1987 skuli, eftir því sem við getur átt, gilda að öllu leyti um innheimtu tóbaksgjalds af tóbaki samkvæmt þessum lögum, enda er hér um algerlega sambærileg gjöld að ræða að öðru leyti en því að tóbaksgjald tekur mið af stykkjatölu eða þyngd en vörugjald af verði. Greinin þarfnast því ekki nánari skýringa.
Um 9. gr.
Eins og kunnugt er skal skv. 15. gr. laga nr. 74/1984, um tóbaksvarnir, verja 0,2% af brúttósölu ÁTVR til tóbaksvarnastarfs. Ljóst er að um leið og ríkið missir einkasölurétt sinn á tóbaki verður mörkun fjárframlaga til tóbaksvarna ekki komið við með þessum hætti. Af þessum sökum er í frumvarpi þessu gerð tillaga um að 0,5% af tekjum ríkisins af tóbaksgjaldi, sbr. 1. gr. frumvarps til laga um gjald af tóbaksvörum, verði varið til tóbaksvarna. Með þessu ákvæði á að vera tryggt að fjárframlög til tóbaksvarna verði með sama hætti og nú tíðkast þrátt fyrir þá kerfisbreytingu sem hér um ræðir.
Um 10. gr.
Í þessari grein er lagt til að ráðherra gefi nánari fyrirmæli um framkvæmd laga þessara á sama hátt og tíðkast varðandi vörugjald samkvæmt lögum nr. 97/1987.
Um 11. gr.
Með vísan til 9. gr. er nauðsynlegt að fella úr gildi með þessari grein 15. gr. laga nr. 74/1984. Að öðru leyti þarfnast greinin ekki skýringa.