Ferill 554. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 554 . mál.


919. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 96/1990, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992–93.)



1. gr.


    1. gr. laganna verður svohljóðandi:
    Launamenn, sem verða atvinnulausir, eiga rétt á bótum úr Atvinnuleysistryggingasjóði samkvæmt því sem fyrir er mælt í lögum þessum.
    Sjálfstætt starfandi einstaklingar, sem hættir eru eigin atvinnurekstri og eru atvinnulausir og í atvinnuleit, skulu eiga sama rétt til bóta úr Atvinnuleysistryggingasjóði og launamenn, enda fullnægi þeir skilyrðum reglna sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra setur að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs.

2. gr.


    2. og 4. gr. laganna falla niður.

3. gr.


    5. gr. laganna orðast svo:
    Atvinnuleysistryggingasjóður skal inna af hendi þær bætur sem um ræðir í 1. gr. Árlegar tekjur sjóðsins eru þessar:
    Tekjur af tryggingagjaldi samkvæmt lögum um tryggingagjald.
    Framlag ríkissjóðs skv. 15. gr.
    Vextir af innstæðufé sjóðsins og verðbréfum.

4. gr.


    1. mgr. 7. gr. laganna orðast svo:
    Tryggingastofnun ríkisins annast sjóðsvörslu, reikningshald og daglega afgreiðslu fyrir Atvinnuleysistryggingasjóð í umboði sjóðsstjórnar og undir umsjá hennar enda ákveði sjóðsstjórn ekki annað fyrirkomulag.

5. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða gerðar á III. kafla laganna:
    Heiti III. kafla verður: Um tekjur Atvinnuleysistryggingasjóðs.
    9., 11., 12. og 13. gr. falla niður.
    10. gr. orðast svo:
                  Til Atvinnuleysistryggingasjóðs rennur hlutfall af tekjum af tryggingagjaldi í samræmi við ákvæði laga um tryggingagjald.
    15. gr. orðast svo:
                  Ríkissjóður greiðir framlag til Atvinnuleysistryggingasjóðs er skal nema þrefalt hærri fjárhæð en tekjur sjóðsins af tryggingagjaldi skv. 10. gr.
                  Áætlað ríkissjóðsframlag greiðist mánaðarlega en fullnaðarskil skulu gerð þegar tekjur af tryggingagjaldi skv. 10. gr. liggja fyrir.

6. gr.


    16. gr. laganna orðast svo:
    Rétt til atvinnuleysisbóta samkvæmt lögum þessum hafa þeir sem eru atvinnulausir og í atvinnuleit og fullnægja eftirtöldum skilyrðum, sbr. þó 24. gr.:
    Eru orðnir 16 ára að aldri en yngri en 70 ára.
    Dvelja hér á landi.
    Hafa staðið skil á tryggingagjaldi af reiknuðu endurgjaldi síðustu 12 mánuði áður en sjálfstæðri starfsemi var hætt.
    Hafa á síðustu 12 mánuðum unnið samtals a.m.k. 425 dagvinnustundir í tryggingaskyldri vinnu. Til að finna dagvinnustundir sjómanna skal margfalda fjölda skráningardaga með 8.
    Hafi maður stundað samfellt vinnu fyrir og eftir að hann náði 16 ára aldri öðlast hann rétt til bóta ef hann hefur unnið í tryggingaskyldri vinnu a.m.k. þriðjung tilskilins dagvinnutíma eftir að hann varð 16 ára.
    Sanna með vottorði vinnumiðlunarskrifstofu samkvæmt lögum um vinnumiðlun að hann hafi í upphafi bótatímabils verið atvinnulaus þrjá eða fleiri heila vinnudaga, að jafnaði samfellt.
    Í þessu sambandi teljast ekki með þeir dagar er maður hefur verið í verkfalli eða verkbann tekur til.

7. gr.


    18. gr. laganna orðast svo:
    Sá sem gengur undir starfsþjálfun eða sækir námskeið til þess að öðlast hæfni í starfi sínu eða til að stunda ný störf nýtur á meðan atvinnuleysisbóta í allt að 8 vikur ef atvinnuleysi hefði skapað honum rétt til slíkra bóta þegar starfsþjálfun eða dvölin á námskeiðinu hófst, enda njóti hann ekki launa. Sama gildir þegar bótaþegi sækir námskeið verkalýðssamtaka eða almenn námskeið, sem miða að aukinni starfshæfni hans, allt að 8 vikum. Úthlutunarnefnd skal tilkynna hlutaðeigandi vinnumiðlunarskrifstofu ákvarðanir sínar samkvæmt þessari málsgrein. Úthlutunarnefnd krefur bótaþega um sannanir um þátttöku hans samkvæmt framansögðu að viðlagðri sviptingu bóta. Ákvæði þessarar málsgreinar gilda ekki um þá sem taka að stunda námskeið eða annað nám sem varir lengur en 8 vikur.
    Stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs er heimilt að veita styrki til rekstrar starfsþjálfunarnámskeiða á vinnustað eða utan hans. Styrkur þessi má nema allt að þeim atvinnuleysisbótum sem hver einstakur þátttakandi hefur áunnið sér rétt til, auk óhjákvæmilegs ferðakostnaðar sem miðast við fargjöld með almenningsfarartækjum.
    Stjórn sjóðsins setur nánari reglur um veitingu styrkja samkvæmt þessari grein.

8. gr.


    2. mgr. 20. gr. laganna orðast svo:
    Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er úthlutunarnefnd eða stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs heimilt að ákveða að á afmörkuðum svæðum og í tiltekinn tíma skuli skráning fara fram oftar en vikulega, enda verði slíkt talið eðlilegt með hliðsjón af atvinnuástandi.

9. gr.


    Eftirtaldar breytingar skal gera á 21. gr. laganna:
    4. tölul. orðast svo:
             4.    Þeir sem hafa sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna eða misst vinnu af ástæðum sem þeir sjálfir eiga sök á. Réttur til bóta samkvæmt þessum tölulið fellur niður í 40 bótadaga í fyrsta sinn og skerðist bótatímabil sem þessu nemur. Missi maður aftur rétt til bóta öðlast hann ekki bótaréttindi að nýju nema sannað sé með vottorði vinnumiðlunarskrifstofu að hann hafi stundað vinnu í samfellt 6 vikur eftir að hann missti bótaréttinn.
    6. tölul. orðast svo:
             6.    Þeir sem neita starfi sem þeim býðst fyrir milligöngu vinnumiðlunar eða á annan sannanlegan hátt, enda sé vinnan heimil að lögum og laun fyrir hana og starfskjör öll í samræmi við gildandi kjarasamninga. Bótaréttur fellur ekki niður þótt sá sem hefur notið bóta í skemmri tíma en fjórar vikur hafnar vinnu í starfsgrein sem hann hefur ekki áður stundað, enda fylgi starfinu að mati úthlutunarnefndar mun meiri áreynsla og vosbúð en þeim störfum sem hann hefur áður stundað. Þegar hafnað er vinnu fjarri heimili eða af öðrum ástæðum metur úthlutunarnefnd hvort það skuli varða missi bótaréttar og skal þá gætt m.a. heimilisástæðna umsækjanda. Um missi bótaréttar samkvæmt þessum tölulið gilda ákvæði 4. tölul.

10. gr.


    22. gr. laganna orðast svo:
    Maður, sem öðlast bótarétt samkvæmt ákvæðum þessa kafla, á rétt á bótum fyrir þá daga sem hann er atvinnulaus frá og með 1. skráningardegi, sbr. þó 5. mgr. 24. gr., enda hafi tekjur hans síðustu 6 mánuði fyrir skráningu eigi verið hærri að meðaltali en sem nemur tvöföldum atvinnuleysisbótum á mánuði.
    Nú voru tekjur viðkomandi síðustu 6 mánuði fyrir skráningu hærri að meðaltali en sem nemur tvöföldum atvinnuleysisbótum á mánuði og frestast þá réttur til atvinnuleysisbóta þar til meðaltekjur fyrir liðinn mánuð verða jafnháar tvöföldum atvinnuleysisbótum. Nánari reglur um útreikning biðtíma skal heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra setja með reglugerð að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs.
    Atvinnuleysisbætur skulu greiðast fyrir alla daga nema laugardaga og sunnudaga á hverju bótatímabili sem skal vera 260 dagar.
    Nú fær bótaþegi tilfallandi vinnu dag og dag og skulu atvinnuleysisbætur hans þá skerðast vegna þessarar vinnu til samræmis við unninn stundafjölda, þó aldrei meira en miðað við 8 klst. fyrir hvern sólarhring. Þessi vinna skal ekki hafa áhrif á áunninn rétt bótaþegans til atvinnuleysisbóta.
    Gefa skal atvinnulausum kost á að sækja endurmenntunar- og starfsþjálfunarnámskeið eða taka þátt í átaksverkefnum í a.m.k. 8 vikur á hverju bótatímabili. Sinni hinn atvinnulausi ekki slíkum tilboðum fellur hann af bótum að loknu hverju bótatímabili í 16 vikur. Þátttaka í námskeiðum eða átaksverkefnum í skemmri tíma en 8 vikur skerðir biðtímann að loknu hverju bótatímabili hlutfallslega.

11. gr.


    Við 23. gr. laganna bætist ný málsgrein svohljóðandi:
    Nú nýtur bótaþegi bóta úr lífeyristryggingum almannatrygginga og skulu þá bætur hans þar dragast frá greiðslum atvinnuleysistrygginga þannig að samanlagðar greiðslur lífeyristrygginga almannatrygginga og atvinnuleysistrygginga nemi aldrei hærri fjárhæð en hámarksdagpeningum atvinnuleysistrygginga.

12. gr.


    2. mgr. 25. gr. laganna orðast svo:
    Stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs ákveður með hvaða hætti skuli úthlutað til bótaþega sem ekki eru í stéttarfélagi og sjálfstætt starfandi.

13. gr.


    2. mgr. 26. gr. laganna orðast svo:
    Umsókn ásamt nauðsynlegum gögnum sendist úthlutunarnefnd eða stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs eftir því sem við á.

14. gr.


    2. mgr. 35. gr. laganna orðast svo:
    Nú verður víðtækt og mikið atvinnuleysi og er þá stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs heimilt að greiða í samráði við viðkomandi sveitarstjórnir aukakostnað við að koma í veg fyrir atvinnuleysi á svæðinu, t.d. flutningskostnað á afla milli byggðarlaga og landshluta.

15. gr.


    36. gr. laganna orðast svo:
    Stjórn sjóðsins er heimilt að veita lán með lægri vöxtum en venjulegum útlánsvöxtum til að koma á fót vinnu- og þjálfunarstöðvum fyrir fatlaða. Ekki mega slík lán þó nema meira en 40% stofnkostnaðar. Þá er stjórninni heimilt að greiða allt að þriðjungi rekstrarhalla slíkra stöðva, enda mæli stjórnarnefnd um málefni fatlaðra með því að slíkur styrkur verði veittur.
    Stjórn sjóðsins er heimilt að veita styrki til eftirtalinna verkefna:
    endurþjálfunar starfsmannahópa sem misst hafa atvinnu sína vegna breyttra atvinnuhátta,
    að greiða fyrir tilfærslu starfsmanna milli starfsgreina og vegna búferlaflutninga í atvinnuskyni,
    þróunarverkefna til varanlegrar atvinnusköpunar.

16. gr.


    Eftirtaldar breytingar skulu gerðar á VIII. kafla laganna:
    39. gr. orðast svo:
                  Eigi má gera fjárnám í bótum samkvæmt lögum þessum sem eigi hafa verið greiddar bótaþega. Eigi má heldur taka bætur til greiðslu opinberra gjalda annarra en staðgreiðslu opinberra gjalda.
    Í lok 40. gr. kemur tilvísun í lög um ábyrgðasjóð launa vegna gjaldþrota í stað laga nr. 23/1985, um ríkisábyrgð á launum.
    41. gr. orðast svo:
                  Sá sem reynir að afla sér bóta með því að gefa vísvitandi rangar eða villandi upplýsingar um hagi sína missir rétt til bóta.
                  Fyrsta brot varðar missi bóta í 2–6 mánuði, en ítrekað brot í 1–2 ár. Úthlutunarnefnd úrskurðar um missi bótaréttar af þessum sökum en úrskurðum hennar má skjóta til stjórnar sjóðsins sem úrskurðar endanlega um málið. Úthlutunarnefnd skal tilkynna sjóðsstjórn um missi bótaréttar samkvæmt þessari grein.
                  Nú hefur bótaþegi aflað sér bóta með sviksamlegu athæfi, sbr. 1. mgr., og skal hann þá til viðbótar missi bóta skv. 2. mgr. endurkrafinn um allt að tvöfaldri þeirri bótafjárhæð sem þannig var aflað.

17. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi. Þegar lögin hafa hlotið staðfestingu er heimilt að fella þau ásamt öðrum breytingum á lögum um atvinnuleysistryggingar inn í meginmál laganna og gefa þau út að nýju svo breytt.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Lög um atvinnuleysistryggingar eru að stofni til nr. 64 frá árinu 1981. Á árunum 1981–92 hefur lögunum verið breytt átta sinnum. Með lögum nr. 96/1990 var gefin út samfelld útgáfa laganna með þeim breytingum sem gerðar höfðu verið á þeim fram að þeim tíma. Síðan hefur lögunum verið breytt tvisvar.
    Ört vaxandi atvinnuleysi síðustu mánaða og missira hefur leitt í ljós ýmsa vankanta á gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar. Þá var með lögfestingu tryggingagjalds frá og með 1. janúar 1991 samkvæmt lögum nr. 113/1990 fjölgað þeim sem greiddu til Atvinnuleysistryggingasjóðs án þess að réttindum til greiðslna úr sjóðnum væri breytt.
    Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra ákvað því að skipa vinnuhóp sem falið var að endurskoða ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar. Í vinnuhópnum áttu sæti: Jón H. Magnússon, lögfræðingur hjá Vinnuveitendasambandi Íslands, Lára V. Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, Margrét Tómasdóttir, deildarstjóri Atvinnuleysistryggingasjóðs, Pétur Sigurðsson, formaður stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs, og Dögg Pálsdóttir skrifstofustjóri sem jafnframt var formaður nefndarinnar.
    Nefndin hefur skilað lagafrumvarpi því sem hér er lagt fram. Helstu nýmæli frumvarpsins eru:
    Réttur til bóta úr Atvinnuleysistryggingasjóði verður ekki lengur bundinn við aðild að stéttarfélagi.
    Sjálfstætt starfandi, sem skilað hafa tryggingagjaldi af reiknuðu endurgjaldi síðustu 12 mánuði áður en þeir hættu sjálfstæðri starfsemi, öðlast rétt til bóta úr Atvinnuleysistryggingasjóði með sama hætti og launamenn, enda uppfylli þeir skilyrði reglna sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra setur að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs og séu atvinnulausir og í atvinnuleit. Drög reglna um skilyrði sjálfstætt starfandi eru fylgiskjal með frumvarpi þessu.
    Hámarksaldur vegna greiðslu atvinnuleysisbóta er færður úr 71 ári í 70 ár. Jafnframt er sett inn ákvæði um það að ef atvinnulaus nýtur einnig elli- eða örorkulífeyrisgreiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins þá skuli samanlagðar bætur frá Atvinnuleysistryggingasjóði og Tryggingastofnun aldrei nema hærri fjárhæð en hámarksbótum atvinnuleysistrygginga.
    Reglur um missi bótaréttar þeirra sem segja upp starfi sínu án gildra ástæðna og verða atvinnulausir af þeim sökum eru hertar og sá tími, sem bótaréttur fellur niður af þessum sökum, er lengdur. Sömuleiðis eru reglur um heimild atvinnulausra til að neita starfi og ákveðið hvaða afleiðingar neitun hefur á bótarétt. Þá eru viðurlög við að afla sér bóta með röngum eða villandi upplýsingum hert mjög verulega og heimilt að endurkrefja viðkomandi um allt að tvöfaldri þeirri fjárhæð sem fengin hefur verið úr Atvinnuleysistryggingasjóði með sviksamlegum hætti.
    Reglur eru settar um biðtíma vegna atvinnuleysisbóta ef mánaðartekjur viðkomandi síðustu tvo mánuði áður en atvinnuleysi hófst voru hærri en sem nemur tvöföldum atvinnuleysisbótum.
    Atvinnulausir geta komist undan 16 vikna biðtímanum milli bótatímabila með því að sækja og ljúka námskeiðum, sem sérstaklega eru ætluð atvinnulausum, í a.m.k. 8 vikur.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Hér eru gerðar breytingar á 1. gr. laganna. Frá upphafi hefur réttur til bóta úr Atvinnuleysistryggingasjóði verið háður því skilyrði að launamaður væri jafnframt félagsmaður í stéttarfélagi. Hér er gerð breyting á þessu. Réttur launamanna til bóta úr Atvinnuleysistryggingasjóði verður því hinn sami hvort sem viðkomandi er í stéttarfélagi eða ekki.
    Þá er hér tryggt að sjálfstætt starfandi einstaklingar, sem skilað hafa tryggingagjaldi af reiknuðu endurgjaldi sínu síðustu 12 mánuði áður en þeir hættu sjálfstæðri starfsemi, njóti sama réttar til atvinnuleysisbóta og launamenn, enda séu þeir atvinnulausir og í atvinnuleit og uppfylli að öðru leyti nánari skilyrði sem sett verða í reglum sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra setur að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs. Drög að slíkum reglum fylgja með frumvarpi þessu sem fylgiskjal.

Um 2. gr.


    Þar sem skilyrði um aðild að stéttarfélagi er fellt niður er 2. gr. laganna ekki lengur nauðsynleg, en þar er skilgreint hvað sé stéttarfélag. Sömuleiðis er 4. gr. ónauðsynleg þar sem um réttindi þeirra sem stunda sjósókn á eigin fari til viðbótar því að vera launamenn fer samkvæmt reglum um rétt sjálfstætt starfandi til atvinnuleysisbóta.

Um 3. gr.


    Hér er 5. gr. laganna breytt vegna þeirra breytinga sem urðu á tekjustofnum sjóðsins með lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990, með síðari breytingu. Samkvæmt lögunum skal tryggingagjald greitt af öllum greiddum vinnulaunum, þóknunum, reiknuðu endurgjaldi og öðrum tegundum greiðslna og launa eftir því sem nánar segir í lögunum. Tryggingagjald er lagt á í tveimur gjaldflokkum, sérstökum og almennum. Tryggingagjald í sérstökum gjaldflokki er 2,7% af gjaldstofni og í almennum gjaldflokki 6,2%. Í sérstökum gjaldflokki eru fiskveiðar, iðnaður og landbúnaður. Í almennum gjaldflokki eru allar aðrar gjaldskyldar atvinnugreinar. Tekjum af tryggingagjaldi er ráðstafað sem hér segir:
    Atvinnuleysistryggingasjóður fær í sinn hlut sem nemur 0,15% af gjaldstofni.
    Vinnueftirlit ríkisins fær í sinn hlut sem nemur allt að 0,08% af gjaldstofni. Hlutfallið er ákveðið með reglugerð sem félagsmálaráðuneytið setur í samráði við stjórn stofnunarinnar fyrir eitt ár í senn.
    Tryggingastofnun ríkisins fær tekjur af tryggingagjaldi umfram það sem ákveðið er í 1. og 2. tölul. til að fjármagna lífeyris- og slysatryggingar almannatrygginga.

Um 4. gr.


    Hér er gerð breyting á 1. mgr. 7. gr. í þá veru að stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs verður heimilt að ákveða að annast sjálf sjóðsvörslu, reikningshald og daglega afgreiðslu fyrir sjóðinn í stað þess að Tryggingastofnun ríkisins geti ein annast þennan rekstur.

Um 5. gr.


    Með tilkomu tryggingagjaldsins er nauðsynlegt að gera umfangsmiklar breytingar á III. kafla laganna um atvinnuleysistryggingar. Breyta þarf heiti kaflans þar sem iðgjöld hafa verið felld niður. Heiti kaflans verður því: Um tekjur Atvinnuleysistryggingasjóðs. Þá þarf að fella niður 9., 11., 12. og 13. gr., sömuleiðis vegna brottfalls iðgjalda. Þá er nauðsynlegt að breyta 10. og 15. gr. af sömu ástæðum. Loks eru gerðar breytingar á 15. gr. til samræmis við gildandi framkvæmd. Felld er niður lokamálsgrein 15. gr. sem fjallar um álagningu dráttarvaxta þar sem slíkt á ekki við lengur.

Um 6. gr.


    Hér eru ýmsar breytingar gerðar á 16. gr. laganna. Breytingarnar eru þessar:
    Skýrt er tekið fram í 1. mgr. að rétt til atvinnuleysisbóta hafi þeir einir sem eru atvinnulausir og í atvinnuleit, auk þess sem þeir fullnægi þeim skilyrðum sem talin eru upp í 1.–5. tölul. greinarinnar.
    Hámarksaldur vegna greiðslu atvinnuleysisbóta er færður niður í 70 ár í stað 71 árs áður.
    Fellt er niður skilyrðið um að vera félagsmaður í stéttarfélagi en í þess stað tiltekið skilyrði um að sjálfstætt starfandi hafi staðið ríkissjóði skil á tryggingagjaldi af reiknuðu endurgjaldi síðustu 12 mánuðina áður en hann hætti sjálfstæðri starfsemi.
    Niður er fellt ákvæðið um skilgreiningu róðrardaga þar sem 4. gr. laganna er felld niður. Á hinn bóginn er sett inn ný skilgreining um það með hvaða hætti skuli reikna dagvinnustundir sjómanna. Ný regla frumvarpsins leiðir til hagstæðari niðurstöðu en sú aðferð sem nú er beitt gagnvart sjómönnum.
    Að viðkomandi hafi í upphafi bótatímabils verið atvinnulaus í þrjá daga samfellt áður en til greiðslu atvinnuleysisbóta kemur. Í undantekningartilvikum er þó gert ráð fyrir að víkja megi frá skilyrðinu um þrjá daga samfellt ef vinna sú, sem viðkomandi hefur stundað, er þess eðlis.

Um 7. gr.


    Hér eru gerðar nokkrar breytingar á 18. gr. laganna. Breytingarnar eru af tvennum toga. Annars vegar er tekið tillit til þeirra breytinga sem gerðar eru á 16 vikna biðtímanum að loknu hverju bótatímabili og þeim möguleikum sem frumvarpið felur í sér varðandi það að sækja námskeið í 8 vikur til að losna undan þessum biðtíma. Hins vegar eru ákvæði greinarinnar rýmkuð til að auka möguleika stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs á þátttöku í námskeiðahaldi.

Um 8. gr.


    Hér er 2. mgr. 20. gr. breytt og úthlutunarnefndum jafnt sem stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs heimilt að ákveða að á afmörkuðum svæðum og í tiltekinn tíma skuli skráning fara fram oftar en vikulega, enda verði slíkt talið eðlilegt með hliðsjón af atvinnuástandi.

Um 9. gr.


    Hér eru eftirtaldar breytingar gerðar á 21. gr. laganna:
    4. tölul. er breytt í þá veru að lengt er það tímabil sem bætur falla niður ef sá sem atvinnulaus er hefur sjálfur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna eða misst vinnu af ástæðum sem hann sjálfur á sök á. Réttur til bóta fellur niður í 40 bótadaga í fyrsta sinn og skerðir bótatímabil sem þessu nemur, en var 30 dagar áður. Missi maður aftur rétt til bóta af þessum sökum öðlast hann ekki bótaréttindi að nýju nema hann sanni með vottorði vinnumiðlunarskrifstofu að hann hafi stundað vinnu í samfellt 6 vikur eftir að hann missti bótaréttinn.
    6. tölul. er breytt þannig að reglur um brottfall bótaréttar vegna höfnunar á vinnu verða hinar sömu og í 4. tölul. greinarinnar. Fellt er niður úr ákvæðinu hin skilyrðislausa regla um það að bótaréttur glatist ekki ef umsækjandi hafnar vinnu sem hann með læknisvottorði sannar að hann geti ekki stundað. Úthlutunarnefndum er því ætlað að meta það hverju sinni hvort sá sem hafnar vinnu af þessum sökum sé vinnufær eða hvort hann falli í raun undir 5. tölul. greinarinnar um að vera ófær til vinnu af heilsufarsástæðum.

Um 10. gr.


    Hér eru gerðar umfangsmiklar breytingar á 22. gr. Helstu breytingarnar á greininni eru þessar:
    Til skamms tíma hefur biðtími eftir atvinnuleysisbótum verið enginn. Þessu er nú breytt að nýju og nú í þá veru að ef mánaðartekjur viðkomandi síðustu tvo mánuði áður en hann varð atvinnulaus eru hærri en tvöfaldar bætur atvinnuleysistrygginga þá frestast réttur til atvinnuleysisbóta þangað til meðaltekjur fyrir liðinn mánuð verða jafnháar tvöföldum atvinnuleysisbótum. Þetta skýrist nánar af töflu í fskj. I.
    Bótatímabil atvinnuleysistrygginga verður nú ætíð 260 dagar.
    Meginreglunni um brottfall atvinnuleysisbóta í 16 vikur að bótatímabili loknu er haldið. Gefa skal hinum atvinnulausa á hinn bóginn kost á að komast hjá þessu 16 vikna tekjulausa tímabili ef hann þiggur tilboð um þátttöku í námskeiðum eða átaksverkefnum í samtals 8 vikur á hverju bótatímabili.
    Tilfallandi vinna bótaþega í dag og dag skal skerða rétt hans til atvinnuleysisbóta, þó þannig að sé unnið meira en 8 klst. á einum sólarhring veldur vinnan ekki meira en eins dags skerðingu. Jafnframt er tryggt að vinna af þessu tagi hafi ekki áhrif á áunninn rétt bótaþega til atvinnuleysisbóta.

Um 11. gr.


    Hér er bætt málsgrein við 23. gr. til að tryggja það að ef bótaþegi nýtur bóta úr lífeyristryggingum almannatrygginga þá skulu bætur hans þar dragast frá greiðslum atvinnuleysistrygginga þannig að samanlagðar greiðslur lífeyristrygginga almannatrygginga og atvinnuleysistrygginga nemi aldrei hærri fjárhæð en hámarksdagpeningum atvinnuleysistrygginga.

Um 12. gr.


    Hér eru gerðar breytingar á 25. gr. og stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs falið að ákveða með hvaða hætti bótum skuli úthlutað til bótaþega sem ekki eru í stéttarfélagi og sjálfstætt starfandi.

Um 13. gr.


    Hér er gerð breyting á 26. gr. vegna bótaréttar launamanna utan stéttarfélaga og sjálfstætt starfandi.

Um 14. gr.


    Hér er gerð breyting á 2. mgr. 35. gr. til rýmkunar. Gert er ráð fyrir að umrædd heimild stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs verði ekki bundin við atvinnuleysi af völdum náttúruhamfara heldur almenn heimild þegar atvinnuleysi er mikið og víðtækt.

    

Um 15. gr.


    Hér er gerð breyting á 36. gr., fyrst og fremst til rýmkunar á heimildum stjórnarinnar þannig að hún geti styrkt þróunarverkefni til varanlegrar atvinnusköpunar.

Um 16. gr.


    Hér eru gerðar breytingar á VIII. kafla laganna.
    39. gr. er breytt til samræmis við breytingar á skattalögum. Í lok 40. gr. er breytt lagatilvísun í samræmi við nýrri lög.
    Talsverðar breytingar eru gerðar á 41. gr. um viðbrögð við því þegar reynt er að afla sér bóta með því að gefa vísvitandi rangar eða villandi upplýsingar um hagi sína. Gert er ráð fyrir að tímabil missis bótaréttar við fyrsta brot geti orðið allt að 6 mánuði en var 2 mánuðir áður og að ítrekað brot geti valdið missi bóta í allt að tvö ár. Úthlutunarnefnd úrskurðar um missi bótaréttar af þessum sökum en úrskurðum hennar má skjóta til stjórnar sjóðsins sem úrskurðar endanlega um málið. Úthlutunarnefnd skal tilkynna sjóðsstjórn um missi bótaréttar samkvæmt þessari grein. Þá er það nýmæli í 41. gr. að ef bótaþegi hefur aflað sér bóta með sviksamlegu athæfi þá skal hann til viðbótar missi bóta endurkrafinn um allt að tvöfaldri þeirri bótafjárhæð sem þannig var aflað. Hér er höfð hliðsjón af ákvæðum almannatryggingalaga.

Um 17. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.



Fylgiskjal I.


1. Tekjutenging frestunar greiðslu atvinnuleysisbóta.



1

2

3

4


Meðalmánaðartekjur

Tekjur

Tekjur umfram

Biðtími


miðað við síðustu

á dag

tvöfaldar

virkir dagar


6 mánuði

atvinnuleysisbætur



250.000
11.537 157.240 14
240.000
11.075 147.240 13
230.000
10.614 137.240 13
220.000
10.152 127.240 13
210.000
9.691 117.240 12
200.000
9.229 107.240 12
190.000
8.768 97.240 11
180.000
8.306 87.240 11
170.000
7.845 77.240 10
160.000
7.383 67.240 9
150.000
6.922 57.240 8
140.000
6.461 47.240 7
130.000
5.999 37.240 6
120.000
5.538 27.240 5
110.000
5.076 17.240 3
100.000
4.615 7.240 2
90.000
0

Skýringar:
    Tölur í 2. dálki fást með því að deila 21,67 í fjárhæð í 1. dálki.
    Tölur í 3. dálki fást með því að draga tvöfaldar atvinnuleysisbætur sem er 92.776 kr. frá fjárhæð í 1. dálki.
    Tölur í 4. dálki fást með því að deila niðurstöðutölum í 2. dálki í niðurstöðutölur í 3. dálki.



Fylgiskjal II.


Drög að reglugerð


um skilyrði sjálfstætt starfandi til að eiga rétt


á atvinnuleysisbótum.



Orðskýringar.


1. gr.

    Í reglugerð þessari er merking hugtaka sem hér segir:
     Sjálfstætt starfandi: einstaklingur sem starfað hefur við eigin rekstur eða sjálfstæða starfsemi og tilkynnt starfsemina með þeim hætti sem krafist er af hálfu skattyfirvalda.
     Rekstur: sjálfstæð starfsemi eða rekstur með eða án sérstaks atvinnutækis.
    Nákominn: einstaklingur sem er tengdur eða skyldur sjálfstætt starfandi, sbr. 3. gr. laga um gjaldþrotaskipti, nr. 21/1991.

Lok sjálfstæðrar starfsemi.


2. gr.


    Sjálfstætt starfandi telst vera atvinnulaus þegar hann uppfyllir öll eftirtalin skilyrði:
    er hættur rekstri,
    hefur engar tekjur eða tekjuígildi af rekstri,
    hefur ekki hafið störf sem launamaður,
    er sannanlega í atvinnuleit,
    hefur tilkynnt lok rekstrarins til opinberra aðila, t.d. til launagreiðendaskrár skattstjóra,
    uppfyllir skilyrði 3.–5. gr. eftir því sem við á.
    Árstíðabundin stöðvun starfsemi eða tímabundin hlé vegna verkefnaskorts eða af öðrum ástæðum veita sjálfstætt starfandi ekki rétt til atvinnuleysisbóta.

3. gr.

    Sjálfstætt starfandi, sem hefur haldið áfram persónubundnu starfi sínu við reksturinn eftir að hafa byrjað í launavinnu, telst ekki atvinnulaus og í atvinnuleit þó hann missi launavinnuna nema hann uppfylli skilyrði 2. gr. þegar hann missir launavinnuna.

Afhending eða lokun.


4. gr.


    Sjálfstætt starfandi telst hættur rekstri ef hann sannar að rekstri hafi verið hætt, hann framseldur öðrum eða tekinn til gjaldþrotaskipta.
    Sjálfstætt starfandi getur talist vera hættur rekstri áður en til afhendingar eða lokunar kemur ef hlutaðeigandi leggur fram skriflega sönnun á því að honum hafi verið gert ókleift að halda rekstrinum áfram, t.d. með vörslusviptingu atvinnutækis.
    Sjálfstætt starfandi getur ekki uppfyllt skilyrði 1. og 2. mgr. með því að afhenda reksturinn nákomnum.


Bótaréttur.


5. gr.


    Atvinnuleysisbætur sjálfstætt starfandi, sem verður atvinnulaus og uppfyllir skilyrði reglugerðar þessarar, ákvarðast á eftirfarandi hátt:
    Hafi hlutaðeigandi staðið í skilum með greiðslu tryggingagjalds af reiknuðu endurgjaldi miðað við fullt starf vegna síðustu 12 mánaða áður en hann varð atvinnulaus á hann rétt á hámarksbótum, sbr. 24. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en hlutfallslega ella miðað við fjölda mánaða sem tryggingagjaldi var skilað.
    Hafi hlutaðeigandi á liðnum 12 mánuðum verið bæði í launavinnu og rekstri þá skal hver mánuður sem tryggingagjald hefur verið greitt fyrir miðað við fullt starf samsvara fullri dagvinnu þann mánuð við úrskurð bóta.

6. gr.

    Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 1., sbr. 42., gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 96/1990, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.



Fylgiskjal III.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum um


atvinnuleysistryggingar, nr. 96/1990, með síðari breytingum.


    Helstu nýmæli frumvarpsins eru þau að viðurkenndur er bótaréttur sjálfstætt starfandi einstaklinga og felld niður skilyrði um aðild að stéttarfélagi til að njóta bóta. Nýmæli er einnig að upphaf bótatímabils ákvarðast af tekjum síðustu 6 mánaða, auk ýmissa minni breytinga sem verður nánar fjallað um og varða kostnað ríkissjóðs og launagreiðenda.
    Þar sem frumvarpið kemur seint fram hefur ekki unnist nægur tími til að meta kostnaðaráhrif þess. Frekari skoðun fer fram á næstu dögum á meðan frumvarpið er í meðförum Alþingis.
    Mikilvægasta breytingin er að þeir sem standa utan stéttarfélaga og eru sjálfstætt starfandi fá rétt á bótum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Hlutfall launþega í stéttarfélögum utan opinbera geirans er talið vera um 85%. Miðað við að vinnuafl á almennum markaði sé um 105 þúsund ársverk eru um 16 þúsund ársverk utan stéttarfélaga, þar af eru 10 þúsund sjálfstætt starfandi, sjá síðar. Alls bætast því við 6 þúsund ársverk launþega sem fá rétt til atvinnuleysisbóta. Reikna má með að þetta fólk sé oftast í þeim störfum þar sem atvinnuleysi er að jafnaði minna en almennt gerist.
    Samkvæmt upplýsingum úr skattframtölum 1992 (tekjur 1991) voru þeir sem reikna sér laun 25.177, þar af höfðu 9.858 einnig tekjur af atvinnurekstri og 17.024 aðrar tekjur, þar með taldar launagreiðslur. Má því ætla að fjöldi einyrkja hafi rétt til atvinnuleysisbóta vegna launavinnu hjá öðrum. Samkvæmt upplýsingum Þjóðhagsstofnunar er fjöldi þeirra sem hafa reiknaðar eigin tekjur sem nema meira en 90% af heildartekjum 13.583 talsins, og verður miðað við þá tölu um fjölda sjálfstætt starfandi í þessari umsögn. Sé tekið tillit til fjölda þeirra sem eru sjálfstætt starfandi og eiga bótarétt samkvæmt gildandi lögum, þ.e. vörubílstjórar og trillusjómenn, og miðað við fullt starf er aukningin 10 þúsund ársverk. Reikna má með að atvinnuleysi sé síst minna hjá sjálfstætt starfandi en hjá launþegum.
    Samtals fjölgar þeim sem eiga rétt til atvinnuleysisbóta samkvæmt frumvarpinu því um 16 þúsund, þ.e. 6 þúsund launþegar utan stéttarfélaga og 10 þúsund sjálfstætt starfandi. Fyrirvara verður að gera á þessum tölum þar sem breytingar verða á fjölda sjálfstætt starfandi við rýmkun á bótarétti og tölur um fjölda eru óvissar. Til samanburðar má nefna fjölda ársverka þeirra einstaklinga sem stunda atvinnurekstur í eigin nafni samkvæmt atvinnuvegaskýrslum Þjóðhagsstofnunar. Þeir voru 15.662 árið 1990 eða 56% fleiri en samkvæmt forsendum að ofan. Þar af voru tæplega 4.800 í landbúnaði.
    Ef reiknað er með að þeir launþegar, sem eru utan stéttarfélaga, séu 6 þúsund og að 3% séu atvinnulausir verður viðbótarkostnaður vegna atvinnuleysisbóta 90 m.kr. á ári. Er þá miðað við mun lægra atvinnuleysi en er nú á almennum markaði.
    Miðað við að sjálfstætt starfandi séu 10 þúsund ársverk og þar af séu 5% atvinnulausir að jafnaði verður viðbótarkostnaður vegna þeirra á einu ári um 250 m.kr. Framtíðarútgjöld sjóðsins verða þó lægri ef gert er ráð fyrir að atvinnuleysi verði minna til langframa. Sé miðað við 2% atvinnuleysi, en það er svipað atvinnuleysi og núgildandi tekjustofnar sjóðsins geta staðið undir, verður árlegur viðbótarkostnaður 100 m.kr.
    Til að fá bætur þurfa sjálfstætt starfandi að hætta rekstri og tilkynna lok rekstrarins til opinberra aðila, t.d. launagreiðendaskrár. Með þessu ákvæði er ætlunin að koma í veg fyrir árstíðabundna stöðvun eða tímabundin hlé vegna verkefnaskorts. Tiltölulega auðvelt er að tilkynna lokun rekstrar til launagreiðendaskrár og kostnaður við að hætta rekstri í eigin nafni og hefja hann aftur er óverulegur. Ekki er ljóst hvernig ákvæði í drögum að reglugerð, sem fylgja í skýringum með frumvarpinu, um að ekki eigi að greiða fyrir tímabundna stöðvun á rekstri verða virk, nema í þeim tilvikum þar sem aðgangur að atvinnugrein er takmarkaður eða háður leyfum. Takist að gera ákvæðin virk munu útgjöld vegna sjálfstætt starfandi vaxa mun minna en reiknað er með að framan því algengast er að atvinnuleysi sé tímabundið. Sjálfstætt starfandi geta reiknað maka sínum laun og verður ekki annað skilið af tillögu að reglugerð en til þess að maki fái bætur þurfi að hætta rekstri og tilkynna hann af skrá. Búast má við að ákvæðin verði umdeild. Þegar hafa t.d. heyrst kröfur um að maki fái bætur ef framleiðsluréttur á bújörð lækkar það mikið að hann stendur einungis undir einu ársverki, enda hafi hann áður starfað á búinu og reiknað sér laun. Allar slíkar breytingar sem auðvelda aðgang að sjóðnum hafa mikil áhrif á útgjöld.
    Önnur takmörkun á bótarétti sjálfstætt starfandi er að þeir þurfa að standa skil á tryggingagjaldi af reiknuðu endurgjaldi miðað við fullt starf síðustu 12 mánuði. Viðmiðunarfjárhæðir um reiknað endurgjald eru mismunandi eftir störfum og miðað við fullt starf voru þær um 90 þús. kr. á mánuði árið 1991 fyrir iðnaðarmann sem hafði menn í vinnu og 45 þús. kr. hjá bónda. Með skilagrein þurfa þeir sem reikna sér endurgjald að gefa upp starfshlutfall. Reiknað er með áhrifum þessa í áætlun um fjölda sjálfstætt starfandi að framan.
    Erfitt er að meta áhrif krafna um að sjálfstætt starfandi hætti rekstri og er einfaldast að reikna með að langtímaatvinnuleysi sjálfstætt starfandi sé 2–3%. Kostnaðarauki vegna atvinnuleysisbóta verður samkvæmt því 100 til 150 m.kr. á ári. Þessi niðurstaða er þó algerlega háð framkvæmd laganna. Miðað við fjölda úthlutunarnefnda og hvernig framkvæmdinni er háttað í dag verður að gera verulegt átak í samræmingu reglna og skilgreina betur hver ábyrgð nefndanna er. Ítrekað er að ef framkvæmdin verður önnur verða útgjöldin hærri.
    Samanlagt hækka útgjöld sjóðsins um 200 til 250 m.kr. á ári vegna sjálfstætt starfandi og þeirra sem eru launþegar utan stéttarfélaga, miðað við 2–3% atvinnuleysi. Ef hins vegar reiknað er með 5% atvinnuleysi og að takmarkanir vegna lokunar rekstrar hafi ekki hamlandi áhrif verða viðbótarútgjöldin um 400 m.kr.
    Samkvæmt frumvarpinu verður ekki greitt fyrir fyrstu daga atvinnuleysis ef tekjur fara yfir tvöfaldar atvinnuleysisbætur. Forsendan fyrir útreikningnum er gefin í skýringum með frumvarpinu en texti frumvarpsins mætti vera skýrari. Samkvæmt útreikningunum frestast bætur um þrjá daga hjá þeim sem hafa að meðaltali 110 þús. kr. á mánuði sem er svipað og meðaltekjur hjá ASÍ. Fræðilegt hámark á frestun bóta er 21,67 dagur og þarf sífellt hærri tekjur til að fresta bótum um hvern dag. Það sem skiptir máli er hver fresturinn verður að meðaltali.
    Sé miðað við að réttur til bóta frestist að meðaltali um þrjá daga og að fjöldi einstaklinga sem fær bætur í 5% atvinnuleysi sé 8.000 talsins (athugið að hér er ekki um ársverk að ræða) þá sparast um 40 m.kr. í greiðslu bóta á ári miðað við að allir komi nýir inn á árinu. Sé reiknað með að nýskráning á hverju ári svari til 2% atvinnuleysis þá er um 3.200 einstaklinga að ræða og árlegur sparnaður verður tæplega 20 m.kr. Gera má ráð fyrir að atvinnuleysi sé að verða varanlegra en áður hefur þekkst og er því miðað við seinni töluna.
    Reikna verður með talsverðri upplýsingagjöf frá staðgreiðsluskrá til úthlutunarnefnda vegna þeirra sem koma nýir á bætur, en veita verður upplýsingar um tekjur rúmlega 3.000 einstaklinga á ári miðað við forsendurnar að ofan. Einnig þurfa skattyfirvöld að veita upplýsingar um sjálfstætt starfandi og er áætlað að kostnaður vegna þessa verði samtals 2–3 m.kr. á ári. Úthlutunarnefndir eru 120 á öllu landinu og eru fimm menn í hverri nefnd, eða 600 manns alls. Í Reykjavík einni eru starfandi 44 úthlutunarnefndir. Augljóst er að álag á nefndirnar eykst þegar skoða þarf tekjuupplýsingar frá bótaþegum. Sú spurning vaknar hvort endurskoða eigi fjölda nefnda og fækka þeim á móti auknu álagi og tengja eftirlit með bótagreiðslum upplýsingum úr staðgreiðslukerfinu.
    Ýmsar aðrar breytingar eru gerðar til að minnka útgjöld. Í fyrsta lagi má þar nefna að þeir sem eru 70 ára og eldri njóta ekki lengur bóta en fjöldi þeirra var 28 árið 1991, 48 árið 1992 og 47 í lok febrúar 1993 samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Árlegur sparnaður gæti því numið um 20 m.kr.
    Í öðru lagi á að takmarka greiðslur bóta til þeirra sem fá greiðslur frá lífeyristryggingadeild. Ef miðað er við að fjöldi atvinnulausra á aldrinum 67–70 ára sé 230 og að bætur til hvers þeirra lækki um 10 þús. kr. á mánuði er heildarsparnaður um 30 m.kr. á ári. Ekki eru til tölur um fjölda öryrkja, en líklega er hann ekki mikill og sparnaður því óverulegur.
    Í þriðja lagi lengist sá tími um 10 daga sem bíða þarf þar til bótagreiðslur hefjast vegna þess að menn hafa sjálfir sagt starfi sínu lausu. Ekki eru til upplýsingar um fjölda þeirra sem hafa misst bótarétt vegna þess að þeir hafa sagt upp starfi án gildra ástæðna, en hann er talinn nokkur. Sé miðað við að um 250 manns segi upp starfi árlega og 10 dagar til viðbótar falli af bótarétti frá því sem er í gildandi lögum verður árlegur sparnaður um 5 m.kr.
    Í fjórða lagi eru þyngd viðurlög hafi bótaþegi gefið upp vísvitandi rangar uplýsingar til að afla sér bóta. Þessi ákvæði munu ekki hafa sparnað í för með sér nema eftirlit úthlutunarnefnda verði hert. Ekki verður séð hvernig það verður gert nema með fækkun nefnda og aukinni tölvuvæðingu og samvinnu við ráðningarskrifstofur.
    Ýmsar greinar frumvarpsins eru til rýmkunar á bótagreiðslum og öðrum greiðslum úr sjóðnum. Má þar nefna að tími, sem bótaþegi getur fengið bætur á meðan hann sækir námskeið, er lengdur úr 6 vikum í 8 vikur. Námskeið hafa ekki verið mörg á undanförnum árum og hafa m.a. MFA og Námsflokkar Reykjavíkur skipulagt slík námskeið. Gerð er sú breyting í 10 gr. frumvarpsins að ef fólk sækir námskeið, eða tekur þátt í átaksverkefni, í a.m.k. 8 vikur þá fellur það ekki af bótum eftir hvert tímabil. Nú fer fólk af bótum eftir 260 daga og þarf að bíða í 16 vikur til að hefja nýtt bótatímabil. Er það í samræmi við það að engin tímamörk eru á því í hve mörg ár atvinnulaus maður getur þegið bætur án þess að falla af vinnumarkaði, fyrir utan reglu um hámarksaldur bótaþega. Erfitt er að meta kostnaðarauka af ofangreindu því ekki eru tiltækar upplýsingar um fjölda þeirra sem falla af bótum vegna langvarandi atvinnuleysis, en sá hópur fer ört vaxandi. Ef miðað er við að 500 falli af bótum á ári hverju og tveir þriðju þeirra nýti sér námskeið, eða átaksverkefni, reiknast árlegur kostnaður um 50 m.kr. á ári. Búast má við að ásókn í námskeið aukist mjög vegna þess að æ fleiri verða atvinnulausir til lengri tíma og vegna ofangreindra ákvæða.
    Ákvæði eru rýmkuð um heimild sjóðsins til að veita styrki til að koma í veg fyrir aukið atvinnuleysi á þeim stöðum þar sem það er mikið fyrir. Slíkir styrkir hafa verið fátíðir og er ekki hægt að gera neina áætlun um það hve mikið fé mun fara í umrædd verkefni þar sem það verður háð ákvörðun sjóðsstjórnar. Þá er í 15. gr. frumvarpsins veitt heimild til að veita styrki til þróunarverkefna til varanlegrar atvinnusköpunar. Er hér um verulega rýmkun á starfssviði sjóðsins að ræða, en hámark er á þessari starfsemi skv. 37. gr. laganna um að útgjöld fari ekki yfir 40% af árlegum vaxtatekjum sjóðsins. Vaxtatekjur sjóðsins eru áætlaðar 100 m.kr. árið 1993, en greiðslur samkvæmt þessum kafla laga um atvinnuleysistryggingar hafa verið óverulegar undanfarin ár. Samtals gæti hér verið um 30 m.kr. kostnaðarauka á ári að ræða ef sjóðurinn ætlar að styrkja þróunarverkefni og varanlega atvinnusköpun.
    Aðrar breytingar, sem hafa áhrif á kostnað ríkissjóðs, eru þær að breytt er útreikningi á bótarétti sjómanna til rýmkunar. Sem dæmi um áhrif breytingarinnar þá fær sjómaður, sem er með 210 lögskráningardaga, metna 1.400 tíma miðað við núgildandi reglur, en fær samkvæmt frumvarpinu 1.680 tíma. Bótarétur hans hækkar úr 82% í 98% og greiðsla atvinnuleysisbóta fyrir hvern dag hækkar úr 1.755 kr. í 2.098 kr. Ekki hafa verið tök á að meta hver heildarkostnaðurinn verður af þessari breytingu.
    Breyting á bótatímabili úr 180 dögum í 260 daga (eitt ár) í 10 gr. frumvarpsins mun samkvæmt upplýsingum frá sjóðnum ekki hafa aukinn kostnað í för með sér enda mun reglan vera sú að sjóðurinn greiðir út bætur samkvæmt heimildarákvæði í núgildandi lögum sem er veitt til að bregðast við langvarandi og verulegu atvinnuleysi. Það ákvæði verður að almennri reglu með frumvarpinu í stað 180 daga.
    Nýlega gerði stjórn sjóðsins breytingar á þóknun til stéttarfélaga sem á að spara sjóðnum útgjöld. Þóknunin er lækkuð úr 5% og verður á bilinu 4,5% til 3% eftir umfangi bótaúrskurða. Flest stéttarfélaga, sem á annað borð innheimta þetta gjald, notast við 5%, en önnur nota lægra hlutfall og nokkur fara ekki fram á þóknun. Samkvæmt lauslegum upplýsingum frá sjóðnum verður árlegur sparnaður vegna breytingarinnar 20–30 m.kr. á ári. Þóknanir til stéttarfélaga námu 44 m.kr. árið 1991 og 65 m.kr. árið 1992.
    Loks vill fjármálaráðuneytið benda á að stjórn sjóðsins er veitt heimild til að færa fjárreiður hans frá Tryggingastofnun kjósi hún það. Fjármálaráðuneytið leggur ríka áherslu á að reikningshald sjóðsins verði í sameiginlegu bókhaldskerfi ríkisins, BÁR, og telur því eðlilegt að samþykki ráðherra þurfi fyrir breyttu fyrirkomulagi.
    Samantekið er mat fjármálaráðuneytisins að frumvarpið auki útgjöld sjóðsins um 180– 230 m.kr. nettó. Samtals hækka útgjöld sjóðsins um 280–330 m.kr. Frá dragast ákvæði til lækkunar á bilinu 100 m.kr., þar á meðal er ákvörðun stjórnar um lækkun þóknunar. Í fjárlögum fyrir árið 1993 er hins vegar gert ráð fyrir 100 m.kr. sparnaði í útgjöldum sjóðsins, en útgjöld hans stefna 1.300 m.kr. fram úr forsendum fjárlaga í ár vegna aukins atvinnuleysis. Til samanburðar er áætlað að tekjur sjóðsins af tryggingagjaldi verði um 300 m.kr. í ár, en 0,15% af stofni tryggingagjalds rennur til hans og ríkissjóður leggur fram lögbundið framlag sem nemur þrefaldri þeirri fjárhæð.