Ferill 563. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 563 . mál.


930. Tillaga til þingsályktunar



um opnun sendiráðs í Peking og viðskiptaskrifstofu í Suður-Kína og sameiningu sendiráða í Evrópu.

Flm.: Árni Johnsen, Guðjón Guðmundsson, Árni R. Árnason, Egill Jónsson.


    Alþingi ályktar að fela utanríkisráðherra að opna sendiráð í Peking í Kína og viðskiptaskrifstofu í Suður-Kína. Jafnframt undirbúi utanríkisráðuneytið sameiningu sendiráða í Evrópu sem nemur fækkun sendiráða um tvö til þrjú.

Greinargerð.

    Í Kína býr um fjórðungur mannkyns. Um langan aldur hefur kínverska samfélagið verið mjög einangrað frá erlendum samskiptum og áhrifum, en nú eru ótrúlegir umbrotatímar í kínverska samfélaginu í uppbyggingu á öllum sviðum í átt til nútímaaðstæðna og aðstöðu eins og tíðkast á Vesturlöndum. Markaðssetning í stað miðstýringar gengur nú mjög hratt í Kína og m.a. hafa kínversk stjórnvöld keppst við að fá erlenda aðila til samvinnu og sameignar á ýmsum sviðum uppbyggingar, stofnunar fyrirtækja af öllum gerðum, þekkingar og hugvits, stjórnunar, skipulagningar og hönnunar og kínversk stjórnvöld hafa lagt fram að hálfu hlutafé til ýmiss konar uppbyggingarstarfsemi á móti helmingi hlutafjár frá erlendum aðilum. Á næstu áratugum eru stórkostleg verkefni fram undan á sviði hönnunar, skipulagningar, framkvæmda og markaðssetningar og breiddin er mjög mikil. Til að mynda í Guangzhou, sex milljóna manna höfuðborg Gunagdong-fylkis í Suður-Kína með 65 milljónir íbúa, er urmull verslana með mikið vöruúrval fyrir verkafólk sem hefur 2–3 þúsund íslenskar krónur í laun á mánuði, en þar í borg eru einnig glæsilegustu og nýtískulegustu stórverslanir sem um getur með vörum sem eru jafnvel dýrari en á Vesturlöndum.
    Allt bendir til þess að Kína, sem hýsir fjórðung mannkyns, muni hasla sér völl á næstu áratugum sem stórveldi í iðnaði og uppbyggingu. Þar eru því augljósir möguleikar fyrir íslenskt hugvit og þekkingu og þar hafa íslenskir aðilar þegar þreifað fyrir sér varðandi hönnun og skipulagningu vegagerðar, framleiðslu húsgagna íslenskra hönnuða, stofnað og hafið rekstur lakkrísverkmsiðju sem áætlað er að framleiði 2.500 tonn af lakkrís á næsta ári og menn hafa þreifað fyrir sér varðandi íslenskar sjávarafurðir. Allt bendir til þess að í náinni framtíð verði unnt að skapa þar mikilvægan og mjög verðmætan markað fyrir íslenskar sjávarafurðir.
    Mikill skortur er á margvíslegri nútímaþekkingu til uppbyggingar í Kína. Menntun var stöðvuð þar um árabil og má nefna að mesti starfsaldur manna í lögfræði, verkfræði og öðrum háskólagreinum nær vart tíu árum. Feikileg verkefni liggja fyrir varðandi uppbyggingu efnahagslífs, atvinnulífs, mannvirkja og markaðssetningar. Danir, Þjóðverjar, Bretar og fleiri vestrænar þjóðir hafa þegar hafið umsvif í kínversku samfélagi til þess að styrkja stöðu sína og sinna og taka þátt í átaki kínverskra stjórnvalda til hagsældar inn í framtíðina. Sem dæmi um verkefni fram undan má nefna lagningu vegar frá Peking til Suður-Kína fyrir upphæð sem nemur fimmhundraðföldum fjárlögum íslenska ríkisins, en fjárlögin fyrir 1993 voru upp á liðlega 105 milljarða tekjur. Erlendum aðilum stendur nú til boða að kaupa 600 ekrur af sjávarströnd í Suður-Kína til fiskeldis, uppbyggingar hraðfrystiiðnaðar, krókódílaeldis eða annars sem aðstaðan býður upp á. Ef Íslendingar halda rétt á málum og opna sendiráð í Peking og viðskiptaskrifstofu í Suður-Kína kunna margar dyr að opnast til hagsældar fyrir Íslendinga í framtíðinni.
    Fyrir nokkru var gerð könnun á því hvort ástæða væri til þess að opna sendiráð fyrir Ísland í Japan og niðurstaðan var sú að hyggilegast væri að aðilar í einkarekstri og viðskiptum hefðu málin á sinni könnu án tilkomu sendiráðs. Þetta er rökrétt niðurstaða, ekki síst með tilliti til þess að öll viðskipti, uppbygging og þróun eru mjög markviss og skipulögð í Japan. Allt er í mjög föstum skorðum og nánast fullnýttir möguleikar, en mismunurinn á Kína og Japan er eins og dagur og nótt. Í Kína eru opnir möguleikar til allra átta og kallað er á kunnáttu, fjármagn og framtak erlendis frá í samfélagi þar sem liðlega milljarður manna býr.
    Með tilliti til þess að velja fyrst og fremst leiðir til árangurs fyrir íslenskt þjóðfélag, eflingar nýrra markaða og mögulegs atvinnurekstrar á ýmsum sviðum kann að vera hyggilegt og eðlilegt að sameina a.m.k. 2–3 sendiráð í Evrópu þótt fámennar skrifstofur kunni að vera nauðsynlegar í hefðbundnum viðskiptalöndum. Til dæmis hlýtur að vera spurn hvort ekki sé eðlilegast að fyrir Norðurlöndin sé eitt aðalsendiráð í Danmörku, en fámennari viðskiptaskrifstofur annars staðar á Norðurlöndum. Allt er umbreytanlegt og fyrst og fremst hljótum við að beina kröftum okkar í næstu framtíð að átaki í sölumennsku á íslenskum afurðum, íslensku hugviti og reynslu en fram til þessa hafa margar þjóðir staðið okkur mun framar í sölumennsku og einmitt sá þáttur hefur skipt sköpum varðandi sterka stöðu þeirra meðal þjóða og almenna velsæld þegna viðkomandi landa.
    Allir helstu fjárfestar í heiminum stefna nú til Kína, enda er þar mesta gróska fram undan í viðskiptum og uppbyggingu sem um getur. Leiðin til árangurs fyrir athafnaþjóðir liggur þangað ef menn vilja ekki missa af nýjum möguleikum sem eru í sjónmáli.