Ferill 566. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 566 . mál.
933. Tillaga til þingsályktunar
um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Ísraels.
(Lögð fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992–93.)
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Ísraels sem gerður var í Genf 17. september 1992.
Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.
Á ráðherrafundi EFTA í mars 1991 var ákveðið að hefja samningaviðræður um fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna og Ísraels. Samningaviðræðunum lauk í júlí 1992 og fríverslunarsamningurinn var undirritaður 17. september 1992. Samningurinn er birtur sem fskj. I með þingsályktunartillögu þessari. Í fskj. II er birt bókun um samkomulag um framkvæmd ýmissa þátta samningsins, í fskj. III samkomulag milli EFTA-ríkjanna og Ísraels varðandi útflutning frá yfirráðasvæðunum og í fskj. IV er að finna tvíhliða landbúnaðarsamning Íslands og Ísraels.
Í janúar 1992 hækkaði Ísrael verulega innflutningstolla sína. Ríkisstjórn Ísraels hafði í upphafi 1991 boðað þessar breytingar. Útflytjendur í EFTA-ríkjunum töldu að með þessum aðgerðum Ísraelsstjórnar mundu þeir tapa markaðshlutdeild sinni í Ísrael til Bandaríkjanna og ríkja Evrópubandalagsins þar sem þau ríki hafa fríverslunarsamninga við Ísrael. Bandaríkin gengu frá slíkum samningi 1985 og EB-ríkin árið 1975. EFTA-ríkin töldu að vænlegast væri að gera sameiginlegan fríverslunarsamning við Ísrael í ljósi góðrar reynslu og vegna sterkari samningsstöðu í slíku samfloti.
Lagabreytinga vegna þessa samnings gerist ekki þörf, sbr. heimild í 6. gr. tollalaga til að láta koma til framkvæmda ákvæði fríverslunar- og milliríkjasamninga.
Samningurinn er að mestu byggður á fríverslunarsamningum milli einstakra EFTA-ríkja og Evrópubandalagsins frá 1970–1972, þ.e. hann tryggir fríverslun með iðnaðarvörur (25.–97. kafla í samræmdri vörulýsinga- og vöruheitaskrá), að undanskildum þeim vörum sem skráðar eru í I. viðauka samningsins. Jafnframt nær hann til ákveðinna iðnaðarvara sem unnar eru að hluta til eða öllu leyti úr landbúnaðarhráefnum. Þessar vörur eru sérstaklega tilgreindar og nánar er kveðið á um meðferð þeirra í bókun A við samninginn. Sams konar fyrirkomulag hefur gilt í öðrum fríverslunarsamningum.
Frávik í þessum samningi frá fríverslunarsamningum einstakra EFTA-ríkja við Evrópubandalagið frá 1970–1972 eru að nokkur ákvæði í samningnum við Ísrael eru færð til nútímalegra horfs. Hér er um að ræða ríkiseinkasölu (9. gr.), opinber innkaup (14. gr.), hugverkaréttindi (15. gr.) og ríkisstyrki (18. gr.). Jafnframt nær samningurinn til fisks og annarra sjávarafurða með fáeinum undanþágum, sbr. nánari umfjöllun um 2. gr. og II. viðauka hér að neðan.
Varðandi viðskipti með landbúnaðarafurðir lýsa samningsríki sig reiðubúin, að því marki sem stefna þeirra í landbúnaðarmálum leyfir, að stuðla að samfelldri þróun viðskipta með landbúnaðarfurðir (11. gr.). Til þess að ná þessu markmiði hafa EFTA-ríkin gert tvíhliða samninga við Ísrael til að greiða fyrir viðskiptum með landbúnaðarvörur. Hvað Ísland varðar er hér um að ræða vörur sem ekki eru framleiddar hér á landi, einkum ávexti. Að öðru leyti fellur landbúnaður fyrir utan samninginn.
Viðskipti Íslands og Ísraels eru ekki mikil. Helstu útflutningsvörur eru frystur fiskur, lagmeti og loðnumjöl. Þessi viðskipti hafa ekki verið stöðug og hefur verið undir hælinn lagt hvaða vörur hafa verið fluttar út til Ísraels hin ýmsu ár. Útflutningur árið 1991 til Ísraels var að verðmæti um 173 millj. kr. eða 0,2% af heildarútflutningi það ár. Þær vörur, sem hér um ræðir, eru 1.761 tonn af loðnumjöli, 570 tonn af frystum þorskflökum, 132 tonn af heilfrystum fiski, lagmeti (fiskmeti) 2,5 tonn og aðrar vörur voru samtals 38 tonn. Árið 1990 voru t.d. flutt út tæp 400 tonn af frystum fiskflökum til Ísraels og um 40 tonn af heilfrystum fiski en ekkert af lagmeti og loðnumjöli. Árið 1989 voru hins vegar flutt út 2.000 tonn af fiskimjöli og um 2 tonn af lagmeti en ekkert af frystum fiski. Árið 1990 var hlutdeild útflutnings til Ísraels aðeins 0,1% af verðmæti heildarútflutnings okkar.
Í kringum 1980 voru um tveggja til þriggja ára skeið flutt út um 1.000 tonn af fiski árlega til Ísraels og var þar aðallega um að ræða heilfrystan karfa og lítils háttar af flökum. Þegar Japansmarkaður opnaðist skömmu síðar féllu þessi viðskipti að mestu leyti niður.
Innflutningur frá Ísrael er að langmestu leyti ávextir og grænmeti en auk þess flytja Íslendingar inn talsvert af fatnaði, ýmsum unnum málmvörum og á árinu 1991 nokkuð magn vísinda- og mælitækja. Þá voru einnig fluttar inn ýmsar vélar og tæki til atvinnurekstrar. Innflutningur frá Ísrael er um 0,1% af verðmæti heildarinnflutnings okkar.
Af þessu sést að vöruviðskipti okkar við Ísrael eru mjög lítil enda hefur markaðurinn verið að mestu lokaður. Norskir fiskútflytjendur hafa gert ítrekaðar tilraunir til að ná fótfestu á mörkuðum í Ísrael en reynst erfitt vegna hárra tolla, kvóta og annarra viðskiptahindrana. Með þessum samningi og fríverslunarsamningum EFTA-ríkjanna við Mið- og Austur-Evrópuríkin og Tyrkland ætti í framtíðinni að skapast meiri möguleikar við að auka markaðshlutdeild okkar í þessum ríkjum.
Vöruviðskipti Íslands og Ísraels 1989, 1990 og 1991.
(Verðmæti í millj. kr. Gengi hvers tíma.)
(Töflur ekki tiltækar. Athugið pdf-skjalið)
Athugasemdir við samninginn.
1. gr.
Um inngangsorð samningsins og markmið.
Inngangsorð samningsins eru almenns eðlis. Þau kveða ekki skýrt á um skuldbindingar eða réttindi en geta verið þáttur í túlkun samningsins. Almennt orðalag í 1. gr. um markmið samningsins sem er að efla samvinnu EFTA-ríkjanna og Ísraels, einkum með því að efla, með aukningu gagnkvæmra viðskipta, samfellda þróun efnahagssamskipta, skapa eðlilegar forsendur fyrir samkeppni og afnema viðskiptahöft. Orðalagið á að mestu rætur sínar að rekja til 1. gr. fríverslunarsamnings EFTA-ríkjanna og EB.
2. gr.
Um gildissvið samningsins. I. og II. viðauki og bókun A.
Samningurinn nær til vöruviðskipta milli einstakra EFTA-ríkja og Ísraels en ekki slíkra viðskipta milli EFTA-ríkjanna. Allar iðnaðarvörur (kaflar 25–97 í tollskránni) falla undir samninginn með þeim fáeinu undantekningum sem tilgreindar eru í I. viðauka. Þessar undanþágur endurspegla samsvarandi ákvæði í fríverslunarsamningum EFTA-ríkjanna við EB. Ísland hefur enga sérstöðu varðandi þennan viðauka. Hér er um að ræða nokkrar vörur, svo sem albúmínkennd efni, umbreytta sterkju, lím og ensín úr 35. kafla, ýmsar kemískar vörur úr 38. kafla, korkur og vörur úr korki úr 45. kafla og aðrar spunatrefjar úr jurtaríkinu, pappírsgarn og ofinn dúkur úr pappírsgarni úr 53. kafla.
Í bókun A með samningnum, sbr. 2. gr. 1. tölul. b, eru tilgreindar þær iðnaðarvörur unnar að hluta eða öllu úr landbúnaðarhráefnum sem falla undir samninginn og á hvern hátt þær gera það. Önnur EFTA-ríki en Ísland hafa heimild til að beita verðjöfnunargjöldum við innflutning þessara vara. Ísland hefur nokkra sérstöðu, sbr. 2. gr. 2. tölul. bókunar A og töflu VII við hann. Tafla VII samsvarar töflu 2, listum 1 og 2 í viðauka 2 í fríverslunarsamningi Íslands og EB ef undan er skilið að fáeinir vöruflokkar hafa verið teknir út. Íslandi er heimilt að beita tollum og fjáröflunartollum í samræmi við töflu VII, en er heimilt að taka upp verðjöfnunargjöld á þessar vörur. Með þessu heimildarákvæði er einkum haft í huga að með EES-samningnum verður Ísland að taka upp sama kerfi, þ.e. verðjöfnunargjöld, eins og önnur aðildarríki EES-samningsins beita.
Í samningaviðræðunum um fríverslunarsamning þennan vildu fulltrúar Ísraels að sem mest samsvörun væri við fríverslunarsamninga þeirra við Bandaríkin og Evrópubandalagið. Bentu þeir á að fiskur og fiskafurðir féllu alveg fyrir utan þessa samninga og auk þess væru fiskur og fiskafurðir í Ísrael flokkaðar sem landbúnaðarvörur og hluti af landbúnaðarstefnu þeirra. Þó nokkur veiði væri í vötnum og væri þessi veiði oft hluti af starfsemi samyrkjubúa. Einnig væri veiði stunduð af þeirra hálfu á Miðjarðarhafi. Af hálfu EFTA-ríkjanna var bent á að það væri ófrávíkjanleg stefna í fríverslunarsamningaviðræðum þeirra að fríverslun skyldi ná til fisks og fiskafurða. Þetta deilumál var það síðasta sem leystist í samningaviðræðunum. Það samkomulag er útlistað í II. viðauka samningsins, sbr. 2. gr. 1. tölul. c. Ísrael fær aðlögunartíma til að afnema alla tolla og aðrar viðskiptahindranir (kvóta) á allan fisk og fiskafurðir með fáeinum undanþágum sem tilgreindar eru í II. viðauka, töflu 5. Fæstar þær fisktegundir, sem eru tilgreindar á undanþágulistanum, eru ekki veiddar í íslenskri lögsögu. Frjáls innflutningur frá Ísrael til Austurríkis, Liechteinstein og Sviss nær ekki til alls þess fisks og fiskafurða sem falla undir frjáls viðskipti milli EFTA-ríkjanna. Að öðru leyti er þetta samkomulag byggt á fyrirkomulagi um fríverslun á sjávarafurðum innan EFTA.
3. gr.
Um upprunareglur og samvinnu um tollaframkvæmd. Bókun B.
Í 3. gr. og bókun B samningsins er kveðið á um upprunareglur og fyrirkomulag á samvinnu stjórnvalda um tollaframkvæmd. Reglur þessar styðjast við samsvarandi reglur í fríverslunarsamningum EFTA-ríkjanna við EB frá 1970–1972 og EFTA-samningnum.
4. gr.
Um innflutningstolla og gjöld sem hafa samsvarandi áhrif.
Við gildistöku samningsins skulu allir innflutningstollar og gjöld, sem hafa samsvarandi áhrif, afnumin á þeim vörum er falla undir samninginn. Sérstakur aðlögunartími fyrir Ísrael er varðandi tolla á fiski og fiskafurðum eins og þegar hefur verið vikið að. Ekki var talin þörf á aðlögunartíma vegna iðnaðarvara þar sem bæði EFTA-ríkin og Ísrael eru þegar aðilar að öðrum fríverslunarsamningum sem iðnaðarvörur falla undir.
5. gr.
Um fjáröflunartolla. Viðauki C.
Við gildistöku samningsins skulu allir fjáröflunartollar við innflutning vara, er falla undir samninginn, afnumdir. Undanþágur frá þessu eru í viðauka C. Undanþágurnar varða Ísland, Liechtenstein og Sviss. Undanþágulisti Íslands er samhljóða gildandi lista í fríverslunarsamningnum við EB. Þegar samningaviðræður hófust við Ísrael þótti rétt að halda þessum fjáröflunartollum þótt stefnt sé að því að fella þá niður.
6. gr.
Um útflutningstolla og gjöld sem hafa samsvarandi áhrif. III. viðauki.
Við gildistöku samningsins skulu allir útflutningstollar og gjöld, sem hafa samsvarandi áhrif, afnumdir. Í III. viðauka eru tilgreindar undanþágur frá þessu fyrir Ísland og Sviss. Heimildin varðandi Ísland er sú sama og er í fríverslunarsamningnum við EB um að taka megi upp útflutningsgjöld á ákveðnar sjávarafurðir.
7. gr.
Um magntakmarkanir og ráðstafanir sem hafa samsvarandi áhrif. IV. viðauki.
Við gildistöku samningsins skulu magntakmarkanir á inn- og útflutning í EFTA- ríkjunum og Ísrael afnumdar. Undanþáguheimildir eru þó við banni á út- og innflutningstakmörkunum, sbr. 7. gr. 2. tölul. og IV. viðauka. Undanþágurnar varða öll aðildarríki samningsins. Íslandi er heimilt að hafa innflutningstakmarkanir á jarðolíu, sópum og burstum eins og tilgreint er í IV. viðauka, töflu A. Nú hafa viðskipti með olíu og olíuvörur verið gefin frjáls og er þessi heimild hvað þær vörur snertir því nú í raun óþörf. Hvað snertir sópana og burstana er verið að vernda framleiðslu á vegum Blindravinafélagsins líkt og gert var í fríverslunarsamningnum við EB 1973 og EES-samningnum.
8. gr.
Um takmarkanir af ástæðum öðrum en efnahagslegum.
Í samningnum er ákvæði sem útilokar ekki að komið sé á banni eða takmörkunum á innflutningi, útflutningi eða umflutningi ef aðgerðir þessar réttlætast af ástæðum sem varða almennt siðgæði, allsherjarreglu, almannaöryggi, líf og heilsu manna og dýra, gróðurvernd, verndun þjóðarverðmæta sem hafa listrænt, sögulegt eða fornfræðilegt gildi og verndun hugverka. Slíkum bönnum og takmörkunum má þó ekki beita til gerræðislegrar mismununar eða til að leggja dulin höft á viðskipti milli samningsaðilanna. Slíkt ákvæði er í GATT- samningnum (20. gr.), EES-samningnum (13. gr.), EFTA-samningnum (12. gr.) og í flestum fríverslunarsamningum.
9. gr.
Um ríkiseinokun.
Ákvæðið um ríkiseinokun er samhljóða 16. gr. EES-samningsins sem endurspeglar aftur orðalag 37. gr. Rómarsamningsins. Hér er ekki um að ræða bann við ríkiseinokun heldur er kveðið á um að tryggja verði að ríkiseinkasala geri ekki greinarmun á grundvelli ríkisfangs hvað snertir skilyrði til aðdrátta og markaðssetningar.
Í bókun 8 við EES-samninginn er tveggja ára aðlögunartími vegna Áburðarverksmiðju ríkisins. Í 16. gr. bókunar um samkomulag um framkvæmd ýmissa þátta samningsins við Ísrael segir að 9. gr. samningsins um ríkiseinokun á Íslandi á áburði gildi einungis að því marki að Ísland verði að uppfylla samsvarandi skuldbindingar vegna EES-samningsins.
10. gr.
Um tæknilegar reglugerðir.
Meðal EFTA-ríkjanna er tilkynningarskylda á drögum að tæknilegum reglugerðum. Í stað þess að taka upp slíkt kerfi milli EFTA-ríkjanna og Ísraels var ákveðið að ef slíkar reglugerðir eða væntanlegar reglugerðir hafa eða munu leiða til viðskiptaþvingana eigi að ræða þær í sameiginlegu nefndinni sem sett er á stofn með samningnum.
11. gr.
Um viðskipti með landbúnaðarvörur.
Í inngangi er gerð grein fyrir þessu ákvæði og er vísað til þeirrar umfjöllunar.
12. gr.
Um innlendar álögur.
1. mgr. þessarar greinar felur í sér að forðast eigi að mismuna innlendum og innfluttum vörum við óbeina skattlagningu eða gjaldtöku. Stjórnvöld hafa fullt svigrúm til þess að haga skattheimtu með hvaða hætti sem er svo fremi hún leggist með jöfnum þunga á innlenda og erlenda framleiðslu. Með 2. mgr. er verið að tryggja að ekki sé mismunað með því að endurgreiða meiri skatta en þá sem lagðir hafa verið á vörur og með því móti niðurgreiða útflutning til annars samningsríkis. Sams konar ákvæði er í 19. gr. fríverslunarsamnings Íslands og EB og í 14.–15. gr. EES-samningsins.
13. gr.
Um greiðslur.
Ákvæði þetta er spegilmynd 19. gr. fríverslunarsamnings einstakra EFTA-ríkja og EB. Það felur í sér skv. 1. mgr. að engin höft megi leggja á greiðslur sem fara fram vegna vöruviðskipta milli EFTA-ríkjanna og Ísraels né á yfirfærslu á þessum greiðslum til samningsríkja þar sem kröfuhafi er búsettur. Jafnframt ber samningsríkjum, sbr. 2. mgr., að forðast að takmarka með ákvæðum um gjaldeyrisviðskipti eða fyrirkomulag afgreiðslu, veitingu, endurgreiðslu eða móttöku lána til skamms eða meðallangs tíma. Ísrael hefur tímabundna og takmarkaða undanþágu frá 2. mgr. þessa ákvæðis út af erfiðleikum vegna greiðslujafnaðar.
14. gr.
Um opinber innkaup.
Samningsríkin telja það vera æskilegt og mikilvægt markmið samnings þessa að auka frjálsræði í innkaupum hins opinbera. Frá og með gildistöku samningsins skulu samningsaðilar veita hver öðrum aðgang að útboðsgerð við opinber innkaup sín í samræmi við GATT-samninginn um opinber innkaup frá 1979 og eins og honum var breytt 1987. Ætlunin er að eftir gildistöku samningsins verði opinber innkaup til umræðu í sameiginlegu nefndinni með það markmið í huga að opna frekar markaði samningsaðila fyrir opinberum innkaupum og ber samningsríkjum stig af stigi að aðlaga reglur, skilyrði og aðferðir sem þau nota við opinber útboð til að tryggja skýrleika í gerð samninga og koma í veg fyrir mismunun.
15. gr.
Um vernd hugverka. V. viðauki.
Samningurinn á að veita og tryggja nægilega og árangursríka vernd hugverkaréttinda án mismununar, þar með taldar ráðstafanir til að vernda þessi réttindi gegn brotum, eins og afritun og þjófnaði. Nánar er getið um skuldbindingar þessar í V. viðauka samningsins.
16. gr.
Um efndir skuldbindinga.
Ákvæðið áréttar heimild samningsaðila til að grípa til öryggisráðstafana í samræmi við 23. gr. samningsins ef EFTA-ríkin eða Ísrael standa ekki við skuldbindingar sínar samkvæmt samningnum.
17. gr.
Um reglur um samkeppni milli fyrirtækja.
Ákvæði þetta má rekja til 23. gr. fríverslunarsamninga einstakra EFTA-ríkja við EB sem endurspeglar meginreglur 85.–86. gr. Rómarsamningsins.
18. gr.
Um ríkisstyrki. VI. og VII. viðauki.
Ríkisstyrkir, sem raska eða gætu raskað samkeppni með því að veita einstökum fyrirtækjum eða einstakri framleiðslugrein forréttindi, samræmist ekki framkvæmd samningsins að því leyti sem þeir hafa áhrif á viðskipti milli EFTA-ríkjanna og Ísraels. Í VI. viðauka er nánari útfærsla á þessu ákvæði. Viðaukinn endurspeglar túlkunarákvæðin sem eru í gildi meðal EFTA-ríkjanna og útfærir nánar 13. gr. EFTA-samningsins. Í viðaukanum eru sett fram dæmi um það hvaða ríkisstyrkir teljast ekki brot á 18. gr. samningsins við Ísrael, dæmi um hvað telst brot á henni og að jafnaði brot á henni.
Til að tryggja skýrleika í meðferð ríkisstyrkja skulu samningsríki skiptast á upplýsingum eins og kveðið er á um í VII. viðauka og nánar verður útfært af sameiginlegu nefndinni innan eins árs frá gildistöku samningsins.
Í 20. gr. bókuninnar um framkvæmd ýmissa þátta samningsins milli EFTA-ríkjanna og Ísraels er samkomulag um að endurskoða ákvæðið um ríkisstyrki fyrir lok 1995 og við þá endurskoðun á einkum að hafa í huga samskipti EFTA-ríkjanna og Ísraels við EB á þessu sviði.
19. gr.
Um undirboðstolla.
Samkvæmt þessu ákvæði geta samningsríki, verði þau vör við að beitt sé undirboðum í viðskiptum sem heyra undir samninginn, gripið til viðeigandi gagnráðstafana, í samræmi við VI. gr. Hins almenna samkomulags um tolla og viðskipti og samninga tengda þeim, samkvæmt þeim skilmálum og í samræmi við þá aðferð sem tilgreind er í 23. gr. samningsins við Ísrael.
VI. gr. GATT var nánar útfærð með sérsamningi í svokölluðum Tókíó-viðræðum (1973–1979). Sá sérsamningur er til umræðu í núverandi viðskiptalotu GATT (Úrúgvæ-viðræðunum).
20.–23. gr.
Um neyðaraðgerðir vegna útflutnings tiltekinna vara,
um endurútflutning og alvarlegan vöruskort
og um erfiðleika vegna greiðslujafnaðar.
Aðferð við beitingu öryggisráðstafana.
Í fríverslunarsamningum er að jafnaði öryggisákvæði sem gera það mögulegt að fella úr gildi tímabundið hluta samninganna ef þar til greindir ófyrirsjánalegir erfiðleikar koma í ljós. Í 23. gr. er samkomulag um aðferð við beitingu öryggisráðstafana. Áður en hafist er handa við að beita þeim öryggisráðstöfunum sem þar eru tilgreindar skulu samningríkin leita lausnar á ágreiningi sín í milli með beinu samráði og tilkynna öðrum samningsríkjum þar um og sameiginlegu nefndinni og láta þeim í té allar upplýsingar sem máli skipta. EFTA-ríkin og Ísrael eru sammála um að heimilt sé að grípa til viðeigandi aðgerða skv. 23. gr. ef skilyrðum öryggisákvæðanna í 20.–22. gr. er fullnægt eða samningsríki uppfyllir ekki samningsskyldu sína í samræmi við 16.–19. gr.
Í framkvæmd hafa slík öryggisákvæði verið lítið sem ekkert notuð í samskiptum EFTA-ríkjanna né samskiptum þeirra við EB.
24. gr.
Um undanþágur vegna öryggishagsmuna.
Samningsaðilar geta gert ráðstafanir vegna öryggishagsmuna samkvæmt skilyrðum þessarar greinar. Sams konar ákvæði er að finna í 21. gr. fríverslunarsamninga EFTA- ríkjanna við EB og í 23. gr. EES-samningsins.
25. gr.
Um að valda ekki mismunun.
Ákvæðið áréttar að ekki megi mismuna samningsaðilum, ríkisborgurum þeirra eða fyrirtækjum varðandi þá þætti er falla undir umfang samningsins.
26.–27. gr.
Um skipun og störf sameiginlegu nefndarinnar.
Við gildistöku samningsins er sett á stofn sameiginleg nefnd. Hlutverk hennar verður að framkvæma samninginn. Fulltrúar allra samningsríkja eiga sæti í henni. Ákvarðanir hennar eða tillögur eru teknar með samhljóða samþykki allra. Nefndin kemur saman eins oft og nauðsyn ber til en eigi sjaldnar en einu sinni á ári og getur hún ákveðið að skipa undirnefndir og vinnuhópa sem hún telur þörf á til aðstoðar við að inna skyldur sínar af hendi.
28.–29. gr.
Um þróunarákvæði.
Samkvæmt 28. gr. getur samningsríki, þegar það telur það til framdráttar efnahag samningsríkja, þróað enn frekar þau samskipti sem til hefur verið stofnað með samningnum með því að láta þau ná til sviða sem hann tekur ekki til og sent hinum ríkjunum rökstudda beiðni þar um. Í 29. gr. er sérstakt þróunarákvæði varðandi þjónustu og fjárfestingu.
30. gr.
Um bókanir og viðauka.
Bókanir og viðaukar með samningnum eru óaðskiljanlegir hlutar hans. Sameiginlega nefndin hefur vald til að breyta bókunum og viðaukum með samhljóða samþykki allra samningsríkja. Um breytingar á megintexta samningsins gildir 34. gr. hans.
31. gr.
Um viðskipti sem heyra undir aðra samninga.
Samningur þessi gildir um viðskipti milli einstakra EFTA-ríkja og Ísraels en ekki um viðskipti milli einstakra EFTA-ríkja og kemur ekki í veg fyrir að eitt eða fleiri samningsríkjanna stofni til tollabandalags eða fríverslunarsvæðis að því marki sem það hefur ekki neikvæð áhrif á fyrirkomulag viðskiptanna samkvæmt þessum samningi.
32. gr.
Um landsvæði það sem samningurinn gildir.
Samningurinn tekur til landsvæða samningsríkjanna. EFTA-ríkin og Ísrael náðu samkomulagi með sérstakri sameiginlegri yfirlýsingu um að Ísrael muni ekki hindra beinan útflutning frá yfirráðasvæðunum. Yfirlýsing með sama efnisinnihaldi var gefin út í tengslum við fríverslunarsamning EB og Ísraels.
33. gr.
Um gildistöku.
Samningurinn öðlast gildi 1. janúar 1993 gagnvart þeim samningsríkjum sem hafa afhent vörsluaðila, sem er Svíþjóð, fullgildingar- eða staðfestingarskjöl sín. Að því tilskildu að Ísrael sé eitt þeirra ríkja. Gagnvart þeim samningsríkjum sem afhenda fullgildingar- eða staðfestingarskjal eftir þann tíma tekur samningurinn gildi á fyrsta degi annars mánaðar eftir að skjalið hefur verið afhent vörsluaðila.
34. gr.
Um breytingar á samningnum.
Breytingar á megintexta samningsins skulu lagðar fyrir samningsríkin til samþykktar og öðlast fyrst gildi þegar öll samningsríkin hafa samþykkt breytingarnar og fullgildingar- eða staðfestingarskjöl um það hafa borist vörsluaðila.
35. gr.
Um aðild.
Sérhvert ríki, sem aðild á að EFTA, getur gerst aðili að samningnum svo framarlega sem sameiginlega nefndin samþykkir það samhljóða. Þetta á bæði við um núverandi og hugsanlega nýja aðila að EFTA.
36. gr.
Um úrsögn og niðurfellingu samningsins.
Sérhvert samningsríki getur dregið til baka aðild sína að samningnum með því að tilkynna það vörsluaðila skriflega. Úrsögnin tekur gildi sex mánuðum eftir að hún berst vörsluaðila. Ef Ísrael eða öll EFTA-ríkin senda slíka tilkynningu um úrsögn fellur samningurinn úr gildi sex mánuðum eftir að slík úrsögn berst vörsluaðila frá Ísrael eða frá öllum EFTA-ríkjunum. Ef EFTA-ríki segir sig úr EFTA jafngildir það að aðild hans að þessum samningi fellur niður frá þeim tíma sem úrsögn þess úr EFTA tekur gildi.
37. gr.
Um vörsluaðila.
Vörsluaðili samningsins er ríkisstjórn Svíþjóðar. Ákveðið var að Svíþjóð yrði vörsluaðili fyrir alla fríverslunarsamningana sem EFTA-ríkin standa að þar sem Svíþjóð er vörsluaðili EFTA-samningsins, sbr. 39. gr. EFTA-samningsins.
Um bókun um samkomulag um framkvæmd ýmissa þátta samningins.
Í bókuninni eru ýmis túlkunaratriði og útfærsla á samningnum sem ekki þótti viðeigandi að hafa í megintexta hans. Er hér m.a. um að ræða ýmis gjöld sem Ísrael leggur á og reynt er að koma í veg fyrir misnotkun þeirra (1.–12. gr) og nánari útfærsla á viðauka B um upprunareglur (13.–14. gr.).
Fylgiskjal I.
SAMNINGUR
milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Ísraels.
Formálsorð.
Lýðveldið Austurríki, lýðveldið Finnland, lýðveldið Ísland, furstadæmið Liechtenstein, konungsríkið Noregur, konungsríkið Svíþjóð, ríkjasambandið Sviss (hér eftir nefnd EFTA-ríkin)
og
Ísraelsríki (hér eftir nefnt Ísrael)
með hliðsjón af stofnsáttmála Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA),
með hliðsjón af fríverslunarsamningum og hliðstæðum skjölum milli Ísraels og helstu viðskiptalanda þess,
með hliðsjón af samstarfi sem þróast hefur í kjölfar fyrrnefndra samninga svo og milli einstakra EFTA-ríkja og Ísraels,
lýsa sig reiðubúin til að gera ráðstafanir til að stuðla að samfelldri þróun viðskipta sín á milli og auka og þróa samstarf sitt á fleiri sviðum þar sem þau hafa sameiginlegra hagsmuna að gæta, þar á meðal sviðum sem samningur þessi nær ekki til, og skapa þar með forsendur og móttækilegt umhverfi fyrir samskipti sem byggjast á jafnræði og eru án mismununar,
sem vísa til sameiginlegra hagsmuna EFTA-ríkja og Ísraels í að styrkja jafnt og þétt marghliða viðskiptakerfið og með tilliti til stöðu þeirra sem samningsaðila að Hinu almenna samkomulagi um tolla og viðskipti, en ákvæði þess og skjöl mynda grundvöllinn í utanríkisviðskiptastefnu þeirra,
hafa einsett sér að setja ákvæði er miða að því að afnema í áföngum hindranir á viðskiptum milli EFTA-ríkja og Ísraels í samræmi við ákvæði þess samnings, einkum þau er varða myndun fríverslunarsvæða,
staðfesta sameiginlega ætlun EFTA-ríkja og Ísraels við áframhaldandi og samfellda þróun efnahagssamvinnu,
og með það í huga að ekkert ákvæði þessa samnings megi túlka þannig að það leysi aðildarríki samnings þessa (hér eftir nefnd aðilarnir) undan skuldbindingum þeirra samkvæmt öðrum alþjóðasamningum,
hafa ákveðið, í samræmi við markmið þessi, að gera með sér eftirfarandi samning:
1. gr.
Markmið.
Samningur þessi miðar að því:
a . að efla, með auknum gagnkvæmum viðskiptum, samfellda þróun efnahagssamskipta EFTA-ríkja og Ísraels,
b . að skapa sanngjarnar forsendur fyrir samkeppni í viðskiptum milli samningsríkja,
c . að stuðla þannig með afnámi viðskiptahafta að samfelldri þróun og auknum alþjóðaviðskiptum,
d . að auka samstarf EFTA-ríkja og Ísraels.
2. gr.
Gildissvið.
1. Samningurinn tekur til:
a . vara sem heyra undir 25.–97. kafla í samræmdri vörulýsingar- og vöruheitaskrá að undanskildum þeim vörum sem skráðar eru í I. viðauka,
b . vara sem tilgreindar eru í bókun A, að teknu tilliti til fyrirkomulags þess sem kveðið er á um í þeirri bókun,
c . fisks og annarra sjávarafurða eins og kveðið er á um í II. viðauka,
sem upprunnar eru í EFTA-ríki eða Ísrael.
2. Ákvæði um viðskipti með landbúnaðarafurðir, sem falla ekki undir 1. mgr., er að finna í 11. gr.
3. Samningur þessi tekur til viðskipta milli einstakra EFTA-ríkja annars vegar og Ísraels hins vegar. Hann tekur ekki til viðskipta milli EFTA-ríkja innbyrðis nema kveðið sé á um annað í samningnum.
3. gr.
Upprunareglur.
1. Í bókun B er kveðið á um upprunareglur og fyrirkomulag á samvinnu stjórnvalda.
2. Aðilarnir skulu gera viðeigandi ráðstafanir, þar á meðal um reglubundna endurskoðun og stjórnunarsamvinnu, til að tryggja að ákvæði 4.–7., 12. og 21. gr. samningsins séu framkvæmd til hlítar og á sem samræmdastan hátt, að teknu tilliti til þarfarinnar á að draga svo sem unnt er úr þeim formkröfum sem gerðar eru í viðskiptum og til þarfarinnar á að finna lausn á þeim vandamálum sem af framkvæmd ákvæðanna leiðir, þannig að allir geti vel við unað.
4. gr.
Innflutningstollar og gjöld sem hafa samsvarandi áhrif.
1. Engir nýir innflutningstollar eða gjöld, sem hafa samsvarandi áhrif, verða lögð á í viðskiptum milli EFTA-ríkja og Ísraels.
2. Frá og með gildistöku samnings þessa skulu EFTA-ríki afnema alla innflutningstolla á vörum sem upprunnar eru í Ísrael og gjöld sem hafa samsvarandi áhrif.
3. Frá og með gildistöku samningsins skal Ísrael afnema alla innflutningstolla á vörum sem upprunnar eru í EFTA-ríki og gjöld sem hafa samsvarandi áhrif.
5. gr.
Fjáröflunartollar.
1. Ákvæði 1.–3. mgr. 4. gr. gilda þar að auki um fjáröflunartolla að öðru leyti en kveðið er á um í bókun C.
2. Aðilar geta lagt á fjáröflunargjald í stað fjáröflunartolls eða þess hluta tolls sem er fjáröflunar eðlis.
6. gr.
Útflutningstollar og gjöld sem hafa samsvarandi áhrif.
1. Engir nýir útflutningstollar eða gjöld, sem hafa samsvarandi áhrif, verða lögð á í viðskiptum milli EFTA-ríkja og Ísraels.
2. Frá og með gildistöku samningsins ber að afnema útflutningstolla og gjöld sem hafa samsvarandi áhrif að öðru leyti en kveðið er á um í III. viðauka.
7. gr.
Magntakmarkanir og ráðstafanir sem hafa samsvarandi áhrif.
1. Engar nýjar magntakmarkanir verða settar á inn- eða útflutning, né gerðar ráðstafanir sem hafa samsvarandi áhrif í viðskiptum milli EFTA-ríkja og Ísraels.
2. Frá og með gildistöku samningsins skulu magntakmarkanir á inn- eða útflutningi til EFTA-ríkja og ráðstafanir, sem hafa samsvarandi áhrif, afnumdar að öðru leyti en kveðið er á um í IV. viðauka.
3. Að því er varðar samning þennan eiga magntakmarkanir og ráðstafanir, sem hafa samsvarandi áhrif, við bönn eða takmarkanir á inn- eða útflutningi til EFTA-ríkis frá Ísrael eða til Ísraels frá EFTA-ríki sem beitt er með kvótum, leyfum til inn- eða útflutnings eða öðrum ráðstöfunum eða skilyrðum stjórnvalda sem takmarka viðskipti.
8. gr.
Takmarkanir vegna annarra ástæðna en efnahagslegra.
Samningurinn útilokar ekki að komið sé á banni eða takmörkunum á innflutningi, útflutningi eða umflutningi ef aðgerðir þessar réttlætast af ástæðum sem varða almennt siðgæði, allsherjarreglu, almannaöryggi, líf og heilsu manna og dýra, gróður- og umhverfisvernd, verndun þjóðarverðmæta sem hafa listrænt, sögulegt eða fornfræðilegt gildi eða verndun hugverka. Slíkum bönnum og takmörkunum má þó engan veginn beita til gerræðislegrar mismununar eða til að leggja dulin höft á viðskipti milli EFTA-ríkis og Ísraels.
9. gr.
Ríkiseinokun.
1. Samningsríkjunum ber að gera ráðstafanir til að tryggja að ríkiseinokun á einhverju sviði viðskipta verði breytt þannig að hún valdi ekki mismunun milli ríkisborgara EFTAríkja og Ísraels að því er varðar innkaup eða markaðssetningu vara.
2. Ákvæði greinar þessarar ná til allra stofnana sem lögbær yfirvöld aðilanna, að lögum eða í raun, beita fyrir sig beint eða óbeint til að hafa eftirlit með eða stjórna inn-eða útflutningi milli aðilanna eða hafa veruleg áhrif á hann. Ákvæðin ná auk þess til einokunar sem ríkið afsalar sér öðrum.
10. gr.
Tæknilegar reglugerðir.
1. Aðilarnir viðurkenna mikilvægi samræmdra alþjóðastaðla og tæknilegra reglugerða fyrir þróun viðskipta.
2. Þeir ítreka stuðning sinn við Hið almenna samkomulag um tolla og viðskipti að því er varðar tæknilegar viðskiptahindranir og málsmeðferðina sem þar er getið um.
3. Aðilarnir geta haft samráð innan sameiginlegu nefndarinnar telji aðili að annar aðili hafi ekki staðið við skuldbindingar sínar á fullnægjandi hátt, einkum ef aðili telur að annar aðili hafi gert ráðstafanir sem gætu skapað eða hafi skapað hindrun við viðskipti.
4. Aðilar eru sammála um að hefja samningaviðræður um möguleika á nánari samvinnu á sviði prófunar og vottunar til þess að auðvelda viðskipti enn frekar.
11. gr.
Viðskipti með landbúnaðarafurðir.
1. Aðilarnir lýsa sig reiðubúna, að því marki sem stefna þeirra í landbúnaðarmálum leyfir, að stuðla að samstilltri þróun viðskipta með landbúnaðarafurðir.
2. Til að ná þessum markmiðum hefur hvert EFTA-ríki gert tvíhliða samning við Ísrael um ráðstafanir til að greiða fyrir viðskiptum með landbúnaðarafurðir.
3. Aðilum ber að beita reglum sínum um búfjár- og jurtasjúkdóma og heilbrigðiseftirlit í landbúnaði án mismununar og forðast að gera nýjar ráðstafanir sem gætu torveldað viðskipti á óréttmætan hátt.
12. gr.
Innlendar álögur.
1. Aðilum ber að forðast allar fjármálaráðstafanir og -aðgerðir innan lands sem hafa beint eða óbeint í för með sér mismunun milli vara sem upprunnar eru í EFTA-ríki og sambærilegra vara frá Ísrael.
2. Vörur, sem fluttar eru út til landsvæðis aðila, skulu ekki njóta hærri endurgreiðslu á innlendum álögum en nemur beinum og óbeinum gjöldum sem hafa verið lögð á þær.
13. gr.
Greiðslur.
1. Engin höft má leggja á greiðslur vegna vöruviðskipta milli EFTA-ríkis og Ísraels eða yfirfærslu á slíkum greiðslum til landsvæðis aðila þar sem kröfuhafi er búsettur.
2. Aðilum ber að forðast að takmarka, með höftum á gjaldeyrisviðskiptum eða með stjórnsýsluathöfnum, veitingu, endurgreiðslu eða móttöku lána til skamms eða meðallangs tíma vegna viðskipta sem íbúi samningsríkis á hlut að.
3. Ísrael áskilur sér rétt til að beita takmörkunum á yfirfærslu gjaldeyris er tengjast veitingu eða viðtöku lána til skamms eða meðallangs tíma, að því marki sem leyfilegt er samkvæmt stöðu Ísraels gagnvart Alþjóðagjaldeyrisjóðnum og að því tilskildu að þessum takmörkunum sé beitt án mismununar. Slíkum takmörkunum ber að beita þannig að þær valdi sem minnstri röskun á samningnum. Ísrael ber að tilkynna sameiginlegu nefndinni tafarlaust þegar slíkar ráðstafanir eru gerðar og um allar síðari breytingar.
14. gr.
Opinber innkaup.
1. Aðilar telja það vera óaðskiljanlegt markmið samnings þessa að auka frjálsræði í innkaupum hins opinbera.
2. Frá og með gildistöku samningsins skulu aðilar veita fyrirtækjum frá hinum samningsaðilunum gagnkvæman aðgang að útboðsgerð við opinber innkaup sín í samræmi við samninginn um opinber innkaup frá 12. apríl 1979, eins og honum var breytt með bókun um breytingar frá 2. febrúar 1987 sem samið var um innan Hins almenna samkomulags um tolla og viðskipti.
3. Með tilliti til reglna og fyrirkomulags, sem samþykkt var innan Hins almenna samkomulags um tolla og viðskipti og við þriðju lönd á þessu sviði, ætla aðilarnir að auka gildissvið 2. mgr. þessarar greinar eftir gildistöku samningsins í samræmi við eftirfarandi ákvæði:
a . Aðilarnir eru sammála um að tryggja skýrleika í gerð samninga og frjálsan aðgang og sjá til þess að koma í veg fyrir mismunun milli hugsanlegra birgja frá aðilunum. Í þeim tilgangi ber aðilum að aðlaga stig af stigi reglur, skilyrði og aðferðir sem þau nota við að ákveða þátttöku í samningum sem boðnir eru út og gerðir af opinberum yfirvöldum og fyrirtækjum og af einkafyrirtækjum sem njóta sér- eða einkaréttinda.
b . Aðilarnir eru sammála um að heimila sameiginlegu nefndinni að ákveða, eins fljótt og unnt er, fyrirkomulag sem beita skal, meðal annars gildissvið, tímasetningar og reglur til að koma á þessum breytingum, með tilliti til þess að viðhalda fullu jafnvægi milli réttinda og skuldbindinga aðilanna.
4. Eins skjótt og við verður komið eftir gildistöku samningsins ber sameiginlegu nefndinni að hefja viðræður um að bæta í áföngum við listann yfir þau fyrirtæki sem ákvæði samningsins ná til að því er varðar innkaup á vöru og þjónustu umfram hin tilgreindu mörk.
15. gr.
Vernd hugverka.
1. Aðilum ber að gera ráðstafanir til að veita og tryggja nægilega og árangursríka vernd hugverkaréttinda án mismununar eins og skilgreint er í 1. gr. V. viðauka. Þeir skulu samþykkja nægilegar og árangursríkar ráðstafanir án mismununar til að vernda þessi réttindi gegn brotum, einkum eftirlíkingum og ólöglegri nýtingu. Nánar er getið um skuldbindingar samningsaðila í V. viðauka.
2. Aðilarnir eru sammála um að fara að efnislegum ákvæðum marghliða samninganna sem tilgreindir eru í 2. gr. V. viðauka og leggja sig alla fram við að framfylgja þeim og öðrum marghliða samningum sem gerðir eru til að auðvelda samvinnu við að vernda hugverkaréttindi.
3. Að því er snertir hugverk skulu aðilarnir ekki veita ríkisborgurum hvers annars lakari vernd en þá sem veitt er ríkisborgurum annarra ríkja. Hyglun, vild, forréttindi eða friðhelgi á sviði hugverka sem til komin er vegna:
a . tvíhliða samninga sem í gildi eru hjá samningsaðila við gildistöku samningsins og tilkynntir eru öðrum samningsríkjum í síðasta lagi fyrir gildistöku samningsins,
b . alþjóðasamninga sem í gildi eru eða verða gerðir á komandi árum, þar á meðal svæðisbundinna samninga um efnahagssamvinnu sem aðilarnir hafa ekki allir gerst aðilar að,
má undanþiggja þessari skuldbindingu, að því tilskildu að slíkt valdi ekki gerræðislegri eða óréttlátri mismunun gegn ríkisborgurum annarra aðila.
4. Tveimur aðilum eða fleiri er heimilt að gera frekari samninga um víðtækari vernd en samkvæmt ákvæðum í samningi þessum og V. viðauka, að því tilskildu þó að öll önnur samningsríki geti gerst aðilar að þeim með sambærilegum skilmálum og að aðilarnir séu tilbúnir að hefja samningaviðræður í þessu skyni í góðri trú.
5. Aðilarnir eru sammála um að fylgjast hver hjá öðrum með beitingu ákvæðanna um hugverk með það fyrir augum að auka verndina enn frekar og til að koma í veg fyrir eða lagfæra röskun á viðskiptum sem til kemur vegna þeirrar verndar sem hugverkaréttindum er veitt.
6. Telji einhver aðili að annar hafi ekki uppfyllt skuldbindingar sínar samkvæmt ákvæðum þessarar greinar og viðauka við hana er honum heimilt að grípa til viðeigandi ráðstafana samkvæmt þeim skilmálum og í samræmi við þá aðferð sem tilgreind er í 23. gr.
7. Aðilar skulu samþykkja viðeigandi fyrirkomulag á tæknilegri aðstoð og samvinnu yfirvalda sem í hlut eiga. Í þeim tilgangi skulu þeir hafa samráð og samstarf við hlutaðeigandi alþjóðastofnanir.
16. gr.
Uppfylling skuldbindinga.
1. Aðilarnir skulu gera allar ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til að tryggja að markmið samningsins náist og til að uppfylla skuldbindingar sínar samkvæmt samningnum.
2. Telji EFTA-ríki að Ísrael hafi ekki, eða telji Ísrael að EFTA-ríki hafi ekki, uppfyllt skuldbindingu samkvæmt samningnum er aðilanum, sem í hlut á, heimilt að grípa til viðeigandi ráðstafana samkvæmt þeim skilmálum og í samræmi við þá aðferð sem tilgreind er í 23. gr.
17. gr.
Reglur um samkeppni fyrirtækja.
1. Eftirfarandi atriði samrýmast ekki réttri framkvæmd samningsins að því leyti sem þau hafa áhrif á viðskipti EFTA-ríkis og Ísraels:
a . allir samningar milli fyrirtækja, ákvarðanir samtaka fyrirtækja og samstilltar aðgerðir fyrirtækja sem miða að því að koma í veg fyrir, takmarka eða raska samkeppni eða leiða til þess;
b . misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja á yfirburðastöðu sinni á landsvæðum aðila í heild eða á verulegum hluta þess.
2. Ákvæði þessi skulu einnig gilda um starfsemi opinberra fyrirtækja og fyrirtækja sem njóta sér- eða einkaréttinda er samningsríki hafa veitt þeim, en beiting ákvæðanna má þó ekki hindra, að lögum eða í raun, opinber verkefni þeirra.
3. Telji aðili að tiltekið athæfi samrýmist ekki ákvæðum þessarar greinar er honum heimilt að grípa til viðeigandi ráðstafana samkvæmt þeim skilmálum og í samræmi við þá aðferð sem tilgreind er í 23. gr.
18. gr.
Ríkisaðstoð.
1. Sérhver aðstoð, sem aðili veitir eða felst með einhverju móti í ráðstöfun ríkisfjármuna og raskar eða gæti raskað samkeppni með því að veita einstökum fyrirtækjum, einstakri framleiðslugrein eða framleiðslu tiltekinna vara forréttindi, samrýmist ekki réttri framkvæmd samningsins að því leyti sem hún hefur áhrif á viðskipti milli EFTA-ríkis og Ísraels.
2. Meta skal athæfi sem brýtur í bága við 1. mgr. á grundvelli forsendna sem tilgreindar eru í VI. viðauka.
3. Aðilar skulu tryggja skýrleika í meðferð ríkisaðstoðar með því að skiptast á upplýsingum eins og kveðið er á um í VII. viðauka. Sameiginlegu nefndinni ber að samþykkja nauðsynlegar starfsreglur vegna framkvæmdar þessarar málsgreinar innan eins árs frá gildistöku samningsins.
4. Telji aðili að tiltekið athæfi samrýmist ekki ákvæðum 1. mgr. er honum heimilt að grípa til viðeigandi ráðstafana gegn því samkvæmt þeim skilmálum og í samræmi við þá aðferð sem tilgreind er í 23. gr.
19. gr.
Undirboðstollar.
Verði aðili var við að beitt sé undirboðum í viðskiptum sem samningurinn tekur til getur viðkomandi gripið til viðeigandi gagnráðstafana í samræmi við VI. gr. Hins almenna samkomulags um tolla og viðskipti og samninga tengda þeirri grein samkvæmt þeim skilmálum og í samræmi við þá aðferð sem tilgreind er í 23. gr.
20. gr.
Neyðaraðgerðir vegna innflutnings tiltekinnar vöru.
Þegar innflutningur tiltekinnar vöru, sem upprunnin er í EFTA-ríki eða Ísrael, eykst svo mjög eða við slík skilyrði að valdi eða valdið gæti:
a . alvarlegu tjóni fyrir innlenda framleiðendur sambærilegra vara eða samkeppnisvara á landsvæði aðilans sem flytur inn eða
b . alvarlegri röskun í einhverri grein atvinnulífsins eða erfiðleikum sem gætu leitt til alvarlegra efnahagsþrenginga á einstökum landsvæðum,
er viðkomandi aðila heimilt að grípa til viðeigandi ráðstafana samkvæmt þeim skilmálum og í samræmi við þá aðferð sem tilgreind er í 23. gr.
21. gr.
Endurútflutningur og alvarlegur vöruskortur.
Leiði beiting ákvæðanna í 6. og 7. gr. til:
a . þess að vara sé flutt aftur út til þriðja lands er aðili, sem flutt er út frá, hefur beitt magntakmörkunum á útflutningi, útflutningstollum eða ráðstöfunum sem hafa samsvarandi áhrif eða
b . alvarlegs skorts eða hugsanlegs skorts á vöru sem aðila, sem flutt er út frá, er nauðsynleg
og ofangreindar ástæður valda eða gætu valdið alvarlegum vandkvæðum fyrir aðila, sem flutt er út frá, er viðkomandi aðila heimilt að grípa til viðeigandi ráðstafana samkvæmt þeim skilmálum og í samræmi við þá aðferð sem tilgreind er í 23. gr.
22. gr.
Erfiðleikar vegna greiðslujafnaðar.
1. a. Aðila er heimilt að beita bráðabirgðaráðstöfunum í viðskiptum þegar hann lendir í eða sér fram á alvarlega erfiðleika vegna greiðslujafnaðar. Aðila er einungis heimilt að koma á bráðabirgðaráðstöfunum í viðskiptum til að veita frest þangað til þær breytingar á hagkerfinu, sem miða að því að ráða bót á erfiðleikum vegna greiðslujafnaðar, ná tilætluðum árangri. Óheimilt er að beita bráðabirgðaráðstöfunum í viðskiptum, sem heimilaðar eru samkvæmt þessari málsgrein, til að vernda einstakar iðngreinar eða atvinnuveg.
b. Eitt eða fleiri af eftirtöldum atriðum er vísbending um alvarlega erfileika vegna greiðslujafnaðar: umtalsverð rýrnun á viðskipta- eða greiðslustöðu, markverður þrýstingur á gengi gjaldmiðils eða umtalsverð lækkun á gjaldeyrisstöðu er kemur fram annaðhvort sem lækkun á gjaldeyrisvarasjóði eða aukning á skammtímaskuldum.
2. Heimilt er að beita eftirfarandi bráðabirgðaráðstöfunum í viðskiptum skv. 1. mgr.:
a . innflutningsgjaldi í formi innflutningstolls,
b . bundnum innborgunum vegna innflutnings eða
c . magntakmörkunum.
3. a. Verði því við komið skulu aðilar beita frekar þeim ráðstöfunum sem tilgreindar eru í a- og b-liðum 2. mgr. Magntakmörkunum má beita þegar ráðstafanir skv. a- og b-lið 2. mgr. hefðu ekki nægjanleg áhrif á greiðslujöfnuðinn.
b. Verði því við komið skulu aðilar forðast að beita samtímis gagnvart einstakri framleiðsluvöru fleiri en einni af þeim ráðstöfunum sem tilgreindar eru í 2. mgr.
4. Bráðabirgðaráðstöfun í viðskiptum, sem beitt er skv. 1. mgr., má gilda í allt að 150 daga hið lengsta nema löggjafarþing viðkomandi aðila framlengi gildistíma hennar í allt að 150 daga. Einungis er heimilt að framlengja gildistíma magntakmarkana einu sinni í 150 daga til viðbótar.
5. Gildistími og umfang bráðabirgðaráðstafana, sem beitt er skv. 1. mgr., skal miða við erfiðleikana sem fyrir hendi eru vegna greiðslujafnaðar aðilans er beitir þeim og skulu afnumdar í áföngum eftir því sem greiðslujafnaðarstaða aðilans batnar.
6. Aðilar skulu, þegar bráðabirgðaráðstöfunum í viðskiptum er beitt, afgreiða innflutning sem upprunninn er hjá öðrum samningsaðila á kjörum sem eru ekki óhagstæðari en þeir veita við afgreiðslu vara sem upprunnar eru í þriðju löndum og skerða ekki þau hlunnindi saman borið við aðra sem hinum samningsaðilanum er veittur samkvæmt þessum samningi.
7. Bráðabirgðaráðstöfunum, eins og tilgreindar eru í a- og b-liðum 2. mgr., skal beitt gagnvart öllum innflutningi nema heimilt sé að undanþiggja tiltekinn innflutning ef slíkt leiðir til aukinnar virkni ráðstafananna í þeim tilgangi sem lýst er í 1. mgr.
8. Beita skal takmörkunum í viðskiptum eins og kveðið er á um í 1. mgr. samkvæmt aðferðinni sem mælt er fyrir um í 2.–6. mgr. 23. gr., m.a. með það fyrir augum að athuga hvort beita megi öðrum efnahagsráðstöfunum til að ráða bót á vandkvæðum vegna greiðslujafnaðar er gætu leitt til afnáms bráðabirgðaráðstafana fyrr en ella.
Markverð aukning á ráðstöfunum í viðskiptum getur talist ástæða til að halda samráðsfundi milli aðila. Samkomulag er um að tilkynna erfiðleika vegna greiðslujafnaðar að öðru jöfnu eins og kveðið er á um í 6. mgr. 23. gr.
23. gr.
Aðferð við beitingu öryggisráðstafana.
1. Áður en hafist er handa við að beita þeim öryggisráðstöfunum sem tilgreindar eru í þessari grein skulu aðilarnir leita lausnar á ágreiningi sín í milli með beinu samráði og tilkynna öðrum aðilum þar um.
2. Án þess að það brjóti í bága við 6. mgr. þessarar greinar ber aðila, sem íhugar að beita öryggisráðstöfunum, að tilkynna hinum aðilunum og sameiginlegu nefndinni þegar þar um og láta þeim í té allar upplýsingar sem máli skipta. Aðilarnir skulu hefja viðræður innan sameiginlegu nefndarinnar án tafar til að leita lausnar sem öll ríkin geta sætt sig við.
3. a. Að því er varðar 17. og 18. gr. skulu aðilarnir, sem í hlut eiga, veita sameiginlegu nefndinni nauðsynlega aðstoð til að rannsaka málið og, þegar við á, binda enda á athæfið sem mótmælt hefur verið. Hafi viðeigandi aðili ekki bundið enda á athæfið sem mótmælt er innan þess tímabils sem sameiginlega nefndin ákveður, eða ef nefndin kemst ekki að samkomulagi innan þriggja mánaða frá því að málinu var vísað til hennar, er hlutaðeigandi aðila heimilt að grípa til viðeigandi ráðstafana til að mæta þeim vanda sem af athæfinu hlýst.
b. Að því er varðar 19., 20., 21. og 22. gr. og ii-lið b-liðar í 5. gr. A II. viðauka skal sameiginlega nefndin rannsaka ástandið og taka þá ákvörðun sem þörf er á til að binda enda á erfiðleika sem hlutaðeigandi aðili hefur tilkynnt um. Hafi engin ákvörðun verið tekin þrjátíu dögum eftir að málinu var vísað til sameiginlegu nefndarinnar er hlutaðeigandi aðila heimilt að grípa til nauðsynlegra ráðstafana til að bæta úr ástandinu.
c. Að því er varðar 16. gr. er hlutaðeigandi aðila heimilt að grípa til viðeigandi ráðstafana eftir að samráði innan sameiginlegu nefndarinnar er lokið eða ef þrír mánuðir eru liðnir frá því að tilkynnt var um málið.
4. Skylt er að tilkynna öllum samningsríkjum og sameiginlegu nefndinni þegar um öryggisráðstafanir sem gripið er til. Umfang þeirra og gildistími skal takmarkast við það sem óhjákvæmilegt er til að bæta úr því ástandi sem leiddi til beitingar þeirra og skulu ekki ganga lengra en skaði af völdum umrædds athæfis eða erfiðleika gefur tilefni til. Reynt skal eftir megni að beita þeim ráðstöfunum sem minnst hindra framkvæmd samningsins. Ráðstafanir, sem Ísrael grípur til vegna aðgerða eða aðgerðaleysis EFTA-ríkis, skulu einungis beinast að viðskiptum við það ríki.
5. Efna skal til reglubundins samráðs um öryggisráðstafanir í sameiginlegu nefndinni og leita leiða til að draga úr þeim, finna aðra valkosti í stað þeirra eða afnema þær eins fljótt og unnt er.
6. Þegar óvenjulegar aðstæður kalla á tafarlausar aðgerðir og útiloka að þær verði kannaðar fyrir fram getur viðkomandi aðili, í tilvikum sem um ræðir í 18., 19., 20., 21. og 22. gr., gripið strax til varrúðarráðstafana sem brýn þörf er á til að ráða bót á ástandinu. Tilkynna ber sameiginlegu nefndinni um ráðstafanirnar án tafar og efna til samráðs milli aðilanna sem í hlut eiga innan sameiginlegu nefndarinnar.
24. gr.
Undanþágur af öryggisástæðum.
Ekkert ákvæði þessa samnings kemur í veg fyrir að aðili geri ráðstafanir sem hann telur nauðsynlegar:
a . til að koma í veg fyrir uppljóstranir sem eru andstæðar mikilvægum öryggishagsmunum,
b . til að vernda mikilvæga öryggishagsmuni, standa við skuldbindingar sínar á alþjóðavettvangi eða yfirlýsta stefnu sína
i. að því er snertir viðskipti með vopn, skotfæri og herbúnað og önnur viðskipti með vörur, efni eða þjónustu sem fer fram beint eða óbeint í þágu hernaðaraðila eða
ii. gagnvart útbreiðslu efna- og lífefnavopna, kjarnavopna eða annarra kjarnasprengja eða
iii. á stríðstímum eða þegar alvarleg spenna ríkir í alþjóðamálum.
25. gr.
Mismunun.
Á þeim sviðum sem samningurinn nær til:
a . skal það fyrirkomulag, sem Ísrael viðhefur gagnvart EFTA-ríkjum, ekki valda mismunun milli þeirra ríkja, ríkisborgara þeirra, fyrirtækja eða firma,
b . skal það fyrirkomulag viðskipta, sem EFTA-ríkin viðhafa gagnvart Ísrael, ekki valda mismunun milli ríkisborgara Ísraels, fyrirtækja eða firma.
26. gr.
Stofnun sameiginlegu nefndarinnar.
1. Sameiginleg nefnd er hér með sett á stofn sem skipuð er fulltrúum allra aðila. Sameiginlega nefndin er ábyrg fyrir stjórnun og réttri framkvæmd samningsins.
2. Til að framkvæmd samningsins verði eins og til er ætlast skulu samningsaðilar skiptast á upplýsingum og efna til samráðs innan sameiginlegu nefndarinnar að beiðni aðila. Sameiginlega nefndin skal af og til kanna frekari möguleika á að fjarlægja þær hindranir sem eftir standa í vegi fyrir viðskiptum milli EFTA-ríkja og Ísraels.
3. Sameiginlegu nefndinni er heimilt, samkvæmt skilyrðum sem mælt er fyrir um í 3. mgr. 27. gr., að taka ákvarðanir í málum sem svo er kveðið á um í samningnum. Í öðrum málum er sameiginlegu nefndinni heimilt að gera tillögur.
27. gr.
Störf sameiginlegu nefndarinnar.
1. Til að annast framkvæmd samningsins eins og til er ætlast kemur sameiginlega nefndin saman, skipuð á viðeigandi hátt, eins oft og nauðsyn ber til og eigi sjaldnar en einu sinni á ári. Hver aðili getur farið fram á að fundur verði haldinn.
2. Aðgerðir nefndarinnar skulu hljóta samhljóða samþykki.
3. Hafi fulltrúi aðila í sameiginlegu nefndinni samþykkt ákvörðun með fyrirvara um að uppfyllt verði stjórnskipuleg eða lagaleg skilyrði skal ákvörðunin taka gildi þann dag sem tilkynnt er að fallið hafi verið frá fyrirvaranum, sé ekki kveðið á um síðari gildistökudag í ákvörðuninni.
4. Sameiginlega nefndin setur eigin starfsreglur er m.a. kveða á um hvernig boða skal til fundar, hver veitir nefndinni formennsku og hve lengi formaður skal sitja.
5. Sameiginlega nefndin getur ákveðið að skipa undirnefndir og vinnuhópa sem hún telur þörf á til aðstoðar við að inna skyldur sínar af hendi.
28. gr.
Þróunarákvæði.
1. Þegar aðili telur það til framdráttar efnahag aðilanna að þróa enn frekar þau samskipti sem til hefur verið stofnað með samningnum með því að láta þau ná til sviða sem hann tekur ekki til sendir það þeim rökstudda beiðni þar um.
Aðilarnir geta falið sameiginlegu nefndinni að kanna beiðnina og gera tillögur þar að lútandi þegar við á.
2. Samningar, sem kunna að verða gerðir eftir þeirri leið sem um getur í 1. mgr., eru háðir fullgildingu eða samþykki aðilanna eins og ráð er fyrir gert í reglum þeirra.
29. gr.
Þjónusta og fjárfesting.
1. Aðilarnir gera sér ljóst að tilteknar atvinnugreinar, m.a. á sviði þjónustu og fjárfestingar, verða æ mikilvægari. Í viðleitni sinni við að þróa og auka samstarf sitt skulu þeir vinna saman að því að auka frjálsræði stig af stigi og opna markaði sína fyrir fjárfestingu og þjónustuviðskiptum, með hliðsjón af viðeigandi vinnu á vegum Hins almenna samkomulags um tolla og viðskipti. Þeim ber að leitast við að erlend fyrirtæki njóti jafnhagstæðra kjara og innlend á landsvæði þeirra enda sé fullt jafnvægi milli réttinda og skuldbindinga aðilanna.
2. Semja ber um fyrirkomulag á þessari samvinnu innan sameiginlegu nefndarinnar. Samningar, sem kunna að verða gerðir með þessu móti þegar þörf er á, eru háðir fullgildingu eða samþykki aðilanna eins og ráð er fyrir gert í reglum þeirra og skulu gilda innan ramma samnings þessa.
30. gr.
Bókanir og viðaukar.
Viðaukar og bókanir við samninginn eru óaðskiljanlegir hlutar hans. Sameiginlega nefndin getur ákveðið breytingar á viðaukum og bókunum.
31. gr.
Tollabandalög, fríverslunarsvæði og landamæraviðskipti.
Samningurinn kemur ekki í veg fyrir það að tollabandalögum, fríverslunarsvæðum eða samkomulagi um landamæraviðskipti verði haldið við eða til þeirra stofnað að því marki sem það hefur ekki neikvæð áhrif á fyrirkomulag viðskiptanna, einkum upprunareglur sem kveðið er á um í samningnum.
32. gr.
Landsvæði þar sem samningur þessi gildir.
Samningurinn tekur til landsvæða aðilanna.
33. gr.
Gildistaka.
1. Samningurinn öðlast gildi 1. janúar 1993 gagnvart þeim ríkjum sem undirritað hafa samninginn og hafa afhent vörsluaðilanum fullgildingar- eða staðfestingarskjöl sín, að því tilskildu að Ísrael sé meðal þeirra ríkja sem afhent hafa fullgildingar- eða staðfestingarskjöl sín til vörslu.
2. Ef ríki, sem undirritað hefur samninginn, afhendir vörsluaðilanum fullgildingar- eða staðfestingarskjöl sín eftir 1. janúar 1993 öðlast samningurinn gildi gagnvart því á fyrsta degi annars mánaðar eftir að skjalið er afhent til vörslu, að því tilskildu að Ísrael sé meðal þeirra ríkja sem afhent hafa fullgildingar- eða staðfestingarskjöl sín til vörslu.
3. Sérhverju ríki, sem undirritar samninginn, er heimilt að lýsa yfir þegar við undirritun að það muni beita ákvæðum hans til bráðabirgða í fyrstu enda þótt hann geti ekki tekið gildi gagnvart því ríki hinn 1. janúar 1993, að því tilskildu að samningurinn hafi öðlast gildi gagnvart Ísrael.
34. gr.
Breytingar.
Breytingar við samninginn, að öðru leyti en um getur í 30. gr., sem sameiginlega nefndin samþykkir, skulu lagðar fyrir aðilana til fullgildingar eða samþykkis og öðlast gildi þegar allir aðilar hafa fullgilt eða samþykkt þær. Fullgildingar- eða staðfestingarskjölum skal komið í vörslu hjá vörsluaðila.
35. gr.
Aðild.
1. Sérhvert ríki, sem aðild á að Fríverslunarsamtökum Evrópu, getur gerst aðili að samningnum, svo framarlega sem sameiginlega nefndin ákveður að samþykkja aðild þess, með þeim kjörum og skilyrðum sem tilgreind kunna að verða í þeirri ákvörðun. Aðildarskjalinu skal koma í vörslu til vörsluaðila.
2. Að því er varðar ríki, sem gerist aðili, skal samningurinn taka gildi á fyrsta degi þriðja mánaðar eftir að aðildarskjalinu hefur verið komið í vörslu.
36. gr.
Úrsögn og niðurfelling samningsins.
1. Sérhver aðili getur dregið til baka aðild sína að samningnum með því að tilkynna það vörsluaðila skriflega. Úrsögn tekur gildi sex mánuðum eftir að hún berst vörsluaðila.
2. Dragi Ísrael aðild sína til baka fellur samningurinn úr gildi þegar uppsagnarfresturinn er liðinn og ef öll EFTA-ríki draga aðild sína til baka fellur samningurinn úr gildi eftir að síðasti uppsagnarfresturinn er liðinn.
3. Ef EFTA-ríki dregur til baka aðild sína að samningnum um stofnun Fríverslunarsamtaka Evrópu fellur aðild þess að samningnum sjálfkrafa niður þann dag er úrsögnin tekur gildi.
37. gr.
Vörsluaðili.
Ríkisstjórn Svíþjóðar, sem gegnir hlutverki vörsluaðila, skal tilkynna öllum ríkjum, sem undirritað hafa samninginn eða gerst aðilar að honum, um afhendingu skjals um fullgildingu, staðfestingu eða aðild, gildistöku samningsins, niðurfellingu hans eða úrsögn aðila.
ÞESSU TIL STAÐFESTU hafa undirritaðir, sem til þess hafa fullt umboð, undirritað samning þennan.
GJÖRT í Genf, 17. september 1992, í einu fullgildu eintaki á ensku sem komið skal í vörslu hjá ríkisstjórn Svíþjóðar. Vörsluaðili skal senda öllum ríkjum, sem undirrita samninginn eða gerast aðilar að honum, staðfest afrit hans.
..........
Fjögur fylgiskjöl voru birt með þingsályktunartillögunni í þingskjalinu ( lausaskjalinu). Hér að framan er birtur fyrri hluti fskj. I, þ.e. fríverslunarsamningurinn á íslensku. Um önnur fylgiskjöl vísast til samhljóða gagna í lausaskjalinu.
Auk samningsins voru prentuð í fskj. I fylgigögn á íslensku, viðaukar, bókanir og töflur, í fskj. II bókun um samkomulag um framkvæmd ýmissa þátta samningsins milli EFTA-ríkja og Ísraels og í fskj. III samkomulag milli EFTA-ríkja og Ísraels um útflutning frá yfirráðasvæðunum.
Í fskj. IV var tvíhliða landbúnaðarsamningur Íslands og Ísraels, I. viðauki um landbúnaðarafurðir sem njóta tollfríðinda við innflutning til Íslands og II. viðauki um upprunareglur; einnig orðsendingar milli sendiherra Íslands og Ísraels sem þennan samning varða.
Að auki voru í fskj. IV í enskri þýðingu fríverslunarsamningurinn milli EFTA-ríkja og Ísraels ásamt viðaukum, bókunum og töflum sama efnis og birt voru á íslensku með samningnum í fskj. I, einnig fskj. II og III á ensku svo og tvíhliða landbúnaðarsamningur Íslands og Ísraels ásamt fylgigögnum.