Ferill 568. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. –
568
. mál.
938. Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um viðhaldsþörf ríkiseigna.
Frá Sigríði A. Þórðardóttur.
Hefur verið gerð heildarúttekt á ástandi og viðhaldsþörf ríkiseigna? Hvaða fjármuni þarf ríkið að leggja til viðhalds ríkiseigna svo ástand þeirra geti talist viðunandi?
Hver er talin meðalending viðhaldsaðgerða? Eru áform um að reyna að tryggja að viðhaldsaðgerðir skili betri árangri en er?
Mun ráðherra beita sér fyrir því að byggingariðnaðurinn verði aðstoðaður við að taka við auknum viðhaldsverkefnum og bæta gæði þjónustu sinnar á því sviði, t.d. með auknu fé til rannsókna, tilraunaverkefna o.fl.?