Ferill 571. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 571 . mál.


952. Fyrirspurn



til forsætisráðherra um frágang stjórnarfrumvarpa og skýrslna opinberra stofnana.

Frá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.



    Eru starfandi málfarsráðunautar á vegum einstakra ráðuneyta og stofnana?
    Með hvaða hætti er reynt að tryggja að mál, sem ríkisstjórnin sendir Alþingi sem þingmál, séu skýr og hnökralaus hvað málfar og framsetningu snertir?
    Er með markvissum hætti reynt að tryggja að skýrslur og önnur gögn í opinberri stjórnsýslu, sem almenningi eru ætluð, séu á skýru og hnökralausu máli og að öðru leyti aðgengileg almenningi?