Ferill 256. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. –
256
. mál.
978. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á umferðarlögum, nr. 50 30. mars 1987.
Frá allsherjarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fékk hún á sinn fund Ólaf Walter Stefánsson, skrifstofustjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneyti, frá Umferðarráði Þórhall Ólafsson formann, Óla H. Þórðarson framkvæmdastjóra og Guðmund Þorsteinsson, Ólaf Ólafsson landlækni og Brynjólf Mogensen og Kristin R. G. Guðmundsson, yfirlækna á Borgarspítalanum. Umsagnir bárust frá Bifhjólasamtökum lýðveldisins, Bifreiðaskoðun Íslands, Ökukennarafélagi Íslands, Landssambandi íslenskra akstursíþróttafélaga, Náttúruverndarráði, lögreglustjóranum í Reykjavík, Umferðarráði, Slysavarnaráði Íslands, Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, Sýslumannafélagi Íslands, Neytendasamtökunum, Vinnueftirliti ríkisins og Sambandi íslenskra tryggingafélaga.
Frumvarp þetta miðar að því að endurskoða nokkur ákvæði umferðarlaganna og gera þau jafnframt skýrari og einfaldari í framkvæmd. Enn fremur hefur frumvarpið að geyma nýmæli, svo sem ákvæði sem heimila ráðherra að setja reglur um æfingaakstur á bifreið án löggilts ökukennara en undir leiðsögn sérstaks leiðbeinanda, að tími til æfingaaksturs verði lengdur úr þremur mánuðum í sex og kveðið verði á um skyldunotkun hlífðarhjálms við akstur torfærutækis. Auk þessara nýmæla leggur nefndin m.a. til að við frumvarpið bætist ákvæði um bann við framúrakstri á vegamótum og um heimild til ráðherra að setja reglur um torfæruakstur utan vega. Þá leggur nefndin til að ráðherra verði veitt heimild til að setja reglur um notkun hlífðarhjálma við hjólreiðar. Breytingartillögur nefndarinnar eru þessar:
Lagt er til að ný grein komi á eftir 4. gr. sem kveði á um breytingu á 1. mgr. 22. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987, um bann við framúrakstri við gatnamót. Í a–d-lið ákvæðisins eru taldar upp undantekningar frá banninu. Fram hefur komið að þær hafa verið túlkaðar sem sjálfstæð heimild til framúraksturs en ekki undantekningar frá almennu banni við framúrakstri eins og réttara þykir. Til þess að eyða óvissu um túlkun ákvæðisins og í ljósi markmiðs þess að tryggja greiða umferð án þess að stefna umferðaröryggi í hættu leggur nefndin til að orðalagi þess verði breytt.
Lögð er til breyting á 6. gr. til að taka af tvímæli um að þokuljós megi nota ásamt ökuljósum með lágum ljósgeisla.
Lagt er til að ný grein komi á eftir 7. gr. sem heimili ráðherra að setja reglur um torfæruakstur utan vega. Talsvert mun hafa borið á því að unglingar, sem ekki hafa almennt bifhjólapróf, aki t.d. torfæruhjólum utan vega en ekki hefur verið hægt að beina þessum akstri inn á æfingasvæði eða inn í keppni sökum kröfu um ökuréttindi.
Lögð er til breyting á 10. gr. en viðmiðun sú, sem nota á í sambandi við bifhjól í d-lið ákvæðisins, þykir betur komin í reglugerð.
Lagt er til að 11. gr. verði breytt þannig að í fyrsta lagi verði b-liður að c-lið og öfugt. Í öðru lagi er lagt til að aldur leiðbeinanda við æfingaakstur verði 24 ár í stað 21 árs og í þriðja lagi skal hann hafa a.m.k. fimm ára reynslu af að aka viðkomandi ökutæki í stað þriggja ára.
Lögð er til leiðrétting á tilvísun í 13. gr.
Lagt er til að ný grein komi á eftir 19. gr. frumvarpsins sem kveði á um heimild ráðherra til að setja reglur um notkun hlífðarhjálms við hjólreiðar. Landlæknir, yfirlæknir slysavarðstofunnar í Reykjavík og heilaskurðlæknir komu á fund nefndarinnar. Var erindi þeirra að mæla með því við nefndina að hún flytti breytingartillögu við frumvarpið um skyldu barna til að nota hlífðarhjálma á reiðhjólum. Af þessu tilefni fékk nefndin starfsmenn Umferðarráðs til fundar við sig. Þeir kynntu nefndarmönnum kynningarstarf ráðsins um þetta efni en töldu ekki tímabært að lögfesta skyldu til að nota hlífðarhjálma á reiðhjólum. Lagasetningin hefði ekki gildi fyrr en notkun hlífðarhjálma hefði náð ákveðnu marki (20–25%). Skiptar skoðanir komu fram í nefndinni um málið, hvort rétt væri að lögfesta notkun hlífðarhjálma við hjólreiðar, við hvaða aldur ætti að miða notkunina og um gerð hjálmanna. Niðurstaða meiri hluta nefndarmanna varð sú að leggja til að ráðherra hefði heimild til að setja reglur um notkun hlífðarhjálma á reiðhjólum. Er litið svo á að með þessu sé ekki lögfest heimild til þess að skylda hjólreiðamenn til að nota hlífðarhjálma. Slíkri skyldu ber hins vegar að veita lagavernd. Með þessari niðurstöðu meiri hluta nefndarmanna er komið er til móts við sjónarmið þeirra sem vilja lögfesta notkun hlífðarhjálma við hjólreiðar en beðið með frekari ákvarðanir löggjafans í þessu efni.
Lagðar eru til breytingar á 28. gr. sem miða aðallega að því að lagfæra orðalag 112. gr. umferðarlaga.
Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með þessum breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali. Ingi Björn Albertsson stendur að breytingartillögum nefndarinnar en styður ekki 7. lið breytingartillagnanna (um notkun hlífðarhjálma við hjólreiðar).
Alþingi, 15. apríl 1993.
Sólveig Pétursdóttir,
Anna Ólafsdóttir Björnsson.
Auður Sveinsdóttir.
form., frsm.
Björn Bjarnason.
Ey. Kon. Jónsson.
Ingi Björn Albertsson,
með fyrirvara.
Pétur Bjarnason.
Sigbjörn Gunnarsson.
Jón Helgason.