Ferill 338. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 338 . mál.
980. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á almennum hegningarlögum, nr. 19 12. febrúar 1940.
Frá allsherjarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og bárust henni umsagnir frá Samtökum áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, Sýslumannafélagi Íslands, Dómarafélagi Íslands og Lögmannafélagi Íslands. Þessir aðilar eru meðmæltir samþykkt frumvarpsins.
Í frumvarpinu er lagt til að lögfest verði refsiákvæði um viðtöku, geymslu og flutning ávinnings af fíkniefnabrotum en telja verður að almennt sé ekki unnt samkvæmt gildandi lögum að refsa fyrir viðtöku ágóða af fíkniefnasölu og gildir það sama um flutning, geymslu og aðra sambærilega aðstoð sem kemur til eftir að frumbrotið er framið. Markmið 1. gr. frumvarpsins er annars vegar að ná til þeirra sem standa að fíkniefnaviðskiptum án þess að eiga beina aðild að innflutningi eða dreifingu fíkniefnanna. Hins vegar verði fíkniefnaviðskipti takmörkuð með því að refsivert verði að aðstoða við undanskot ávinnings af fíkniefnaviðskiptum.
Samhliða þessu frumvarpi er flutt frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, 339. mál, og er þar lagt til að við lögin bætist sams konar ákvæði og þetta frumvarp gerir ráð fyrir.
Refsiákvæðinu er ætlað að hamla gegn fíkniefnaviðskiptum og enn fremur takmarka möguleika milliliða til að tryggja sér ávinnig af fíkniefnaviðskiptum. Er nefndin þeirrar skoðunar að mikilvægt sé að lögfesta ákvæði af þessu tagi og mælir með samþykkt frumvarpsins.
Alþingi, 16. apríl 1993.
Sólveig Pétursdóttir,
Sigbjörn Gunnarsson.
Anna Ólafsdóttir Björnsson.
form., frsm.
Auður Sveinsdóttir.
Björn Bjarnason.
Ey. Kon. Jónsson.
Ingi Björn Albertsson.
Jón Helgason.
Pétur Bjarnason.