Ferill 518. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 518 . mál.


1032. Nefndarálit



um frv. til l. um heimild fyrir ríkisstjórnina til að selja jörðina Lönguhlíð í Vallahreppi, Suður-Múlasýslu.

Frá landbúnaðarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið sem felur í sér heimild fyrir ríkisstjórnina til að selja jörðina Lönguhlíð í Vallahreppi til núverandi ábúenda. Nefndinni bárust gögn frá jarðanefnd Suður-Múlasýslu þar sem mælt er með þessari sölu jarðarinnar. Einnig barst nefndinni yfirlýsing hreppsnefndar Vallahrepps um að ábúendur hafi setið jörðina vel og að hreppsnefndin mæli með að þeir fái hana keypta.
     Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 27. apríl 1993.



Egill Jónsson,

Össur Skarphéðinsson.

Einar K. Guðfinnsson.


form., frsm.



Eggert Haukdal.

Jóhannes Geir Sigurgeirsson.

Guðni Ágústsson.



Ragnar Arnalds.

Kristín Ástgeirsdóttir.

Árni R. Árnason.