Ferill 77. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 77 . mál.


1073. Frumvarp til

laga

um viðurkenningu á menntun og prófskírteinum.

(Eftir 2. umr., 4. maí.)



1. gr.


    Lög þessi gilda um störf sem löggildingu, leyfi eða aðra jafngilda viðurkenningu þarf til og falla undir tilskipun 89/48EBE sem samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið nær til og kveða á um almennar reglur um gagnkvæma viðurkenningu á prófskírteinum vegna starfsmenntunar.
     Lög þessi gilda einnig um störf sem löggildingu, leyfi eða aðra jafngilda viðurkenningu þarf til og falla undir samninga sem ríkisstjórnir Norðurlanda gera og öðlast hafa gildi að því er Ísland varðar og kveða á um almennar reglur um gagnkvæma viðurkenningu á prófskírteinum vegna starfsmenntunar.

2. gr.


    Ríkisborgarar í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, svo og norrænir ríkisborgarar sem uppfylla skilyrði þeirrar tilskipunar eða samninga sem falla undir 1. gr., eiga rétt á að gegna hér á landi starfi sem löggildingu, leyfi eða aðra jafngilda viðurkenningu þarf til, hvort heldur er sjálfstætt eða sem launþegar, með sömu skilmálum og gilda um íslenska ríkisborgara.

3. gr.


    Þau stjórnvöld, sem fara með málefni er varða hlutaðeigandi starf, skulu sjá um að skilyrði þau sem greinir í 2. gr. til að gegna starfinu hafi verið uppfyllt.

4. gr.


    Ráðherra, sem í hlut á, getur með reglugerð veitt undanþágu frá ákvæðum í lögum að því er varðar ríkisfang, búsetu eða viðurkenningu á prófum að því leyti sem það er nauðsynlegt vegna skuldbindinga er felast í tilskipun þeirri eða samningum sem falla undir 1. gr.
     Ráðherra, sem í hlut á, setur reglur um hæfnispróf eða viðbótarmenntun eftir því sem við á. Hann getur einnig ákveðið að umsækjandi skuli greiða kostnað vegna prófs eða viðbótarmenntunar. Ráðherra setur og reglur um gjöld er krefja má vegna umsóknar um heimild til að gegna starfi hér á landi.

5. gr.


    Menntamálaráðuneytið skal sjá um og samræma framkvæmd þeirrar tilskipunar og samninga sem falla undir 1. gr. Nánari ákvæði um þá framkvæmd skulu sett í reglugerð.

6. gr.


    Menntamálaráðuneytið, svo og stjórnvöld sem í hlut eiga, sbr. 4. gr., geta krafið umsækjanda um upplýsingar, sem þörf er á, til að taka megi afstöðu til umsóknar um heimild til að gegna lögvernduðu starfi hér á landi.

7. gr.


    Lög þessi öðlast gildi um leið og samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið öðlast gildi að því er Ísland varðar.