Ferill 238. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 238 . mál.


1108. Nefndarálit



um frv. til l. um stofnun hlutafélags um Áburðarverksmiðju ríkisins.

Frá meiri hluta landbúnaðarnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á fund sinn til viðræðna Jón Höskuldsson, deildarstjóra í landbúnaðarráðuneytinu. Þá bárust nefndinni umsagnir frá Búnaðarfélagi Íslands, Framleiðsluráði landbúnaðarins, Áburðarverksmiðju ríkisins, Stéttarsambandi bænda og Starfsmannafélagi Áburðarverksmiðju ríkisins. Einnig fræddust nefndarmenn um starfsemi Áburðarverksmiðjunnar í heimsókn sem farin var á meðan málið var til umfjöllunar í nefndinni en þar áttu þeir m.a. viðræður við stjórnendur og stjórnarmenn verksmiðjunnar.
    Í athugasemdum við frumvarpið koma fram rök fyrir stofnun hlutafélags um Áburðarverksmiðju ríkisins. Meiri hlutinn tekur undir þá röksemd að eðlilegt sé að ríkið dragi sig út úr atvinnustarfsemi, einkum samkeppni við almennan atvinnurekstur.
    Nokkur óvissa er um framtíð Áburðarverksmiðjunnar. Hinu nýja hlutafélagi verður að vísu veitt einkaleyfi það sem Áburðarverksmiðja ríkisins hefur haft til framleiðslu, innflutnings og sölu á tilbúnum áburði en það fellur úr gildi ekki síðar en í ársbyrjun 1995. Skapast þá aðstæður til samkeppni innfluttra áburðartegunda við framleiðsluvörur félagsins og má þess vænta að til hennar komi. Með stofnun hlutafélags um starfsemina er fyrirtækinu skapað aukið svigrúm til að laga sig að breyttum aðstæðum.
    Starfsemi Áburðarverksmiðju ríkisins hefur mikla þýðingu fyrir íslenskan landbúnað og jafnframt eru bændur helstu viðskiptavinir hennar. Miklu skiptir fyrir afkomu landbúnaðarins hvernig verksmiðjan hagar starfsemi sinni. Þessir gagnkvæmu hagsmunir hafa verið viðurkenndir hingað til með því fyrirkomulagi sem gilt hefur um skipan stjórnar Áburðarverksmiðjunnar. Meiri hlutinn telur við hæfi að á meðan ríkissjóður er einn eigandi að öllum hlutum í hinu nýja félagi verði stjórnarmenn áfram valdir eftir svipuðum forsendum og verið hefur og að leitað verði til samtaka bænda og landbúnaðar eftir því sem við getur átt.
    Við fyrri umræður á Alþingi og umfjöllun þingnefnda um frumvörp til laga um stofnun hlutafélaga um ríkisfyrirtæki hafa orðið miklar umræður og skiptar skoðanir meðal þingmanna um hvernig gætt skuli réttinda ríkisstarfsmanna við slíkar breytingar. Nefndin hefur kynnt sér þær lögfræðilegu greinargerðir sem aðrar nefndir öfluðu sér við umfjöllun þeirra um hliðstæð mál en telur að endanleg niðurstaða verði vart fengin nema fyrir dómstólum.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali. Lagt er til að fimm menn skipi stjórn hlutafélagsins, kjörnir á aðalfundi þess, svo og jafnmargir varamenn. Enn fremur er lagt til að yfirtöku hins nýja hlutafélags á eignum, skuldum og rekstri Áburðarverksmiðju ríkisins, svo og brottfalli laga um hana, verði seinkað til 1. ágúst 1993.
    Meiri hlutinn bendir á að með stofnun Áburðarverksmiðjunnar hf. og yfirtöku hennar á rekstri Áburðarverksmiðju ríkisins verður Jöfnunarsjóður sveitarfélaga fyrir tekjumissi sem nauðsynlegt er að bæta.

Alþingi, 4. maí 1993.



Egill Jónsson,

Eggert Haukdal.

Árni R. Árnason,


form.

frsm.



Kristín Ástgeirsdóttir,

Jóhannes Geir Sigurgeirsson,

Guðni Ágústsson,


með fyrirvara.

með fyrirvara.

með fyrirvara.



Einar K. Guðfinnsson.

Össur Skarphéðinsson.