Ferill 80. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 80 . mál.


1140. Breytingartillögur



við frv. til l. um umhverfismat.

Frá umhverfisnefnd.



    Við 1. gr. Greinin orðist svo:
                  Markmið laga þessara er að tryggja að áður en tekin er ákvörðun um framkvæmdir sem kunna, vegna staðsetningar, starfsemi sem þeim fylgir, eðlis eða umfangs, að hafa í för með sér umtalsverð áhrif á umhverfi, náttúruauðlindir og samfélag hafi farið fram mat á umhverfisáhrifum, svo og að tryggja að slíkt mat verði fastur liður í gerð skipulagsáætlana.
    Við 2. gr. Greinin orðist svo:
                  Í lögum þessum merkir:
                   Framkvæmdaraðili: Ríki, sveitarfélag, stofnun eða fyrirtæki í eigu slíkra aðila að nokkru eða hluta, lögaðili eða einstaklingur er hyggst hefja framkvæmdir sem lög þessi taka til.
                   Leyfisveitandi: Lögbært yfirvald sem veitir endanlegt leyfi til framkvæmda.
    Við 3. gr. Greinin orðist svo:
                  Umhverfisráðherra fer með yfirstjórn þeirra mála sem lög þessi taka til. Skipulagsstjóri ríkisins annast framkvæmd laganna.
    Við 4. gr.
         
    
    Orðin „þó með þeim undantekningum sem getur um í 5. gr.“ í 1. mgr. falli brott.
         
    
2. mgr. orðist svo:
                            Lög þessi hagga ekki strangari ákvæðum annarra laga um mat á umhverfisáhrifum.
    Við 5. gr. Greinin falli brott.
    Við 6. gr. (er verði 5. gr.).
         
    
    Í stað „5 km 2 “ í 1. tölul. komi: 3 km 2 .
         
    
    2. tölul. orðist svo: Jarðvarmavirkjanir með varmaafl 25 MW eða meira að hráorku eða 10 MW uppsett afl eða meira og önnur varmaorkuver með 10 MW uppsett afl eða meira.
         
    
    3. tölul. orðist svo: Lagning háspennulína með 33 KV spennu eða hærri.
         
    
    6. tölul. orðist svo: Förgunarstöðvar fyrir eitraðan og hættulegan úrgang og almennar sorpeyðingarstöðvar þar sem skipuleg förgun eða urðun á sorpi og úrgangi fer fram.
         
    
    7. tölul. falli brott.
         
    
    8. tölul. (er verði 7. tölul.) orðist svo: Verksmiðjur þar sem fram fer frum- eða endurbræðsla á steypujárni, stáli og áli.
         
    
    Orðin „með blandaða framleiðslu“ í 9. tölul. (er verði 8. tölul.) falli brott.
         
    
    10. tölul. (er verði 9. tölul.) orðist svo: Lagning nýrra vega, járnbrauta og flugvalla.
         
    
    11. tölul. (er verði 10. tölul.) orðist svo: Hafnir sem skip stærri en 1.350 tonn geta siglt um.
         
    
    2. mgr. orðist svo:
                            Enn fremur eru háðar mati á umhverfisáhrifum þær framkvæmdir sem taldar eru upp í fskj. I með lögum þessum en ekki eru tilgreindar í 1. mgr.
         
    
    Í stað orðanna „nánar hvaða framkvæmdir eru háðar umhverfismati“ í 3. mgr. komi: að aðrar framkvæmdir skuli háðar slíku mati.
    Við 7. gr. (er verði 6. gr.). Greinin orðist svo:
                  Umhverfisráðherra er heimilt, að fengnu áliti skipulagsstjóra, að ákveða að tiltekin framkvæmd eða framkvæmdir, sem kunna að hafa í för með sér umtalsverð áhrif á umhverfi, náttúruauðlindir og samfélag, en ekki er getið í 5. gr., verði háðar mati samkvæmt lögum þessum.
                  Áður en ákvörðun skv. 1. mgr. er tekin skal ráðherra leita umsagnar framkvæmdaraðila, leyfisveitanda og hlutaðeigandi sveitarstjórna.
    Í stað 8.–13. gr. komi sex nýjar greinar (7.–12. gr.) er orðist svo:
         
    
    (7. gr.)
                            Áður en hafist er handa um framkvæmdir sem lög þessi eða reglugerð samkvæmt þeim taka til skal framkvæmdaraðili senda skipulagsstjóra tilkynningu um fyrirhugaða framkvæmd þar sem fram kemur lýsing á framkvæmdinni, ráðgerðri hönnun og hugsanlegri umhverfisröskun og fyrirhuguðum ráðstöfunum til að draga úr henni og aðrar upplýsingar sem skipulagsstjóri telur nauðsynlegar.
                            Skipulagsstjóri birtir innan tveggja vikna tilkynningu framkvæmdaraðila ásamt meðfylgjandi gögnum skv. 1. mgr. með opinberri auglýsingu. Athugasemdum skal skilað til skipulagsstjóra innan fimm vikna frá birtingu auglýsingar.
         
    
    (8. gr.)
                            Innan átta vikna frá því að skipulagsstjóri hefur birt tilkynningu framkvæmdaraðila skal hann kveða upp rökstuddan úrskurð um það hvort:
                   a.    fallist er á viðkomandi framkvæmd, með eða án skilyrða,
                   b.    ráðist skuli í frekara mat á umhverfisáhrifum.
                            Þegar ákvörðun skipulagsstjóra liggur fyrir skal hún kynnt framkvæmdaraðila, leyfisveitendum og sveitarstjórnum sem hlut eiga að máli. Jafnframt skal birta hana opinberlega.
         
    
    (9. gr.)
                            Framkvæmdaraðili sér um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum þessum og ber kostnað af því.
                            Skipulagsstjóri ríkisins setur almennar leiðsögureglur um framkvæmd matsins að teknu tilliti til sérákvæða í lögum og alþjóðlegra skuldbindinga.
         
    
    (10. gr.)
                            Í mati á umhverfisáhrifum skal tilgreina á viðeigandi hátt áhrif sem framkvæmdir og fyrirhuguð starfsemi kunna að hafa á menn, samfélag og menningu, dýr, plöntur og aðra þætti lífríkis, jarðveg, vatn, loft, veðurfar, landslag og samverkan þessara þátta. Þar skal gera sérstaka grein fyrir því hvaða forsendur liggi til grundvallar matinu.
                            Innan tveggja vikna frá því að skipulagsstjóri hefur tekið á móti niðurstöðum mats á umhverfisáhrifum skal hann birta þær með opinberri auglýsingu. Athugasemdum skal skilað til skipulagsstjóra innan fimm vikna frá auglýsingu.
         
    
    (11. gr.)
                            Innan átta vikna frá því að skipulagsstjóri hefur birt niðurstöður mats á umhverfisáhrifum skal hann kveða upp rökstuddan úrskurð á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Í úrskurði felst að:
                   a.     fallist er á viðkomandi framkvæmd, með eða án skilyrða,
                   b.     krafa er gerð um frekari könnun einstakra þátta eða
                   c.     lagst er gegn viðkomandi framkvæmd.
                            Þegar úrskurður skipulagsstjóra liggur fyrir skal hann kynntur framkvæmdaraðila, leyfisveitendum og sveitarstjórnum sem hlut eiga að máli. Jafnframt skal birta úrskurðinn eða útdrátt úr honum opinberlega.
                            Almenningur skal eiga greiðan aðgang að úrskurði skipulagsstjóra, svo og niðurstöðum matsins.
         
    
    (12. gr.)
                            Ráðherra er heimilt að ákveða með sérstakri reglugerð að innheimt skuli gjald af framkvæmdaraðila vegna kostnaðar embættis skipulagsstjóra ríkisins af málsmeðferð samkvæmt lögum þessum.
    Við 14. gr. (er verði 13. gr.). Greinin orðist svo:
                  Í leyfi til framkvæmda ber leyfisveitanda að taka fullt tillit til niðurstaðna mats á umhverfisáhrifum og úrskurðar skipulagsstjóra ríkisins.
    Við 15. gr. (er verði 14. gr). Greinin orðist svo:
                  Úrskurð skipulagsstjóra skv. 8. og 11. gr. má kæra til umhverfisráðherra innan fjögurra vikna frá því að hann er birtur eða kynntur fyrir viðkomandi aðila.
                  Áður en umhverfisráðherra kveður upp úrskurð sinn skal hann leita umsagnar skipulagsstjóra, framkvæmdaraðila, leyfisveitenda og sveitarstjórna sem hlut eiga að máli.
                  Umhverfisráðherra skal kveða upp rökstuddan úrskurð innan átta vikna frá því er beiðni barst honum.
    Við 16. gr. (er verði 15. gr.). Greinin orðist svo:
                  Umhverfisráðherra kveður nánar á um framkvæmd laga þessara í reglugerð.
Við 18. gr. Greinin orðist svo:
                  Lög þessi öðlast þegar gildi.
    Við frumvarpið bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, II, sem orðist svo:
                  Þrátt fyrir ákvæði 18. gr. laga þessara eru framkvæmdir samkvæmt leyfum útgefnum fyrir 1. maí 1994 ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum þessum.
    Fyrirsögn frumvarpsins verði: Frv. til l. um mat á umhverfisáhrifum.