Ferill 442. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 442 . mál.


1166. Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar um einsetna skóla.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvaða grunnskólar í landinu eru nú einsetnir?

    Upplýsinga um einsetningu var aflað frá fræðslustjórum landsins. Skilgreining á „einsetningu“ virðist vera á reiki. Ýmist er talað um einsetningu í þeirri merkingu að hver bekkur hafi sína stofu eða einsetning er skilgreind þannig að allir nemendur geti verið samtímis í skólanum. Í svörum fræðslustjóra og þessari samantekt er miðað við að skóli sé einsetinn ef allir nemendur geta verið samtímis í skólanum og ekki þarf að skipta komutíma þeirra vegna plássleysis.
    Samkvæmt upplýsingum fræðslustjóra er staðan sem hér greinir:

Reykjavík.
    Fjórir skólar eru einsetnir. Nemendafjöldi í þeim skólaárið 1992–93 er alls 1.326 eða 10% nemenda grunnskóla Reykjavíkur. Tuttugu og þrír skólar þurfa að skipta komutíma nemenda, þ.e. eru tvísetnir að einhverju leyti.

Reykjanes.
    Átta skólar eru einsetnir. Í þeim eru alls 2.354 nemendur eða um 21% nemenda í umdæminu. Fjórtán skólar eru tvísetnir. Í þeim eru samtals 5.818 nemendur eða um 51% nemenda umdæmisins. Sjö skólar eru blandaðir. Í flestum þeirra eru neðstu bekkirnir tvísetnir en 8.–10. bekkir einsetnir.

Vesturland.
    Tíu skólar eru einsetnir. Í þeim eru samtals 985 nemendur eða um 37% nemenda í umdæminu. Í fimm skólum er tvísetning að hluta. Í þeim eru a.m.k. 60% bekkjardeilda einsetnar.

Vestfirðir.
    Þrettán skólar eru einsetnir. Í þeim eru samtals 496 nemendur eða um 29% nemenda umdæmis ins. Átta skólar eru tvísetnir og í þeim eru um 71% nemenda í umdæminu.

Norðurland vestra.
    Fjórtán skólar eru einsetnir. Í þeim eru samtals 782 nemendur eða um 43% nemenda. Fimm skól ar eru tvísetnir og eru 47% nemenda umdæmisins í þeim.

Norðurland eystra.
    Tuttugu og einn skóli er einsetinn. Í þeim eru 1.565 nemendur eða um 36% nemenda umdæmis ins. Níu skólar eru tvísetnir með um 64% nemenda.
Austurland.
    Fimmtán skólar eru einsetnir. Í þeim eru 397 nemendur eða um 18% nemenda umdæmisins. Fjórtán eru tvísetnir með um 82% nemenda.

Suðurland.
    Tutturgu og fjórir skólar eru einsetnir. Í þeim eru 1.599 nemendur eða um 45% nemenda um dæmisins. Sjö skólar eru tvísetnir með 1.942 nemendur eða um 55% nemenda.

    Ef þessar upplýsingar eru teknar saman í heild kemur í ljós að 109 skólar, eða um 52% grunn skóla í landinu, geta kallast einsetnir í þeirri merkingu að allir nemendur þeirra geta verið samtímis í skólanum og hafa væntanlega samfellda stundaskrá. Í þessum skólum eru samtals 9.504 nemendur eða um 23% nemenda alls í grunnskólum landsins.
    Þess ber að geta að í mörgum skólum, sem hér eru taldir tvísetnir, eru einsetnar bekkjardeildir, einkum í 8.–10. bekk. Heildarfjöldi þeirra nemenda, sem njóta einsetningar, er því meiri en framangreindar tölur sýna.
    Í fylgiskjali (með upplýsingum frá fræðslustjórum) koma fram nöfn þeirra skóla sem eru ein setnir í hverju umdæmi og nánari skýringar varðandi einstaka skóla.



Fylgiskjal.


UPPLÝSINGAR FRÁ FRÆÐSLUSTJÓRUM



Frá fræðslustjóra Reykjavíkur.


(1. apríl 1993.)



    Hér með sendast svör við spurningum í bréfi, dags. 24. mars sl., vegna fyrirspurnar frá Alþingi um stöðu hvað varðar einsetningu skóla.
    Hvað viðkemur a-lið í bréfinu vil ég geta þess að ég lít ekki svo á að skilyrði fyrir því að skóli teljist einsetinn sé að hver bekkur hafi sína stofu út af fyrir sig. Tel ég það skipulagsatriði innan skóla þótt einhverjar stofur séu samnýttar, t.d. sérgreinastofur. Ef allir nemendur skólans koma um svipað leyti að morgni í skólann og ekki þarf að skipta komutíma nemenda vegna plássleysis tel ég að um einsetningu sé að ræða.
    Samkvæmt þessu eru eftirtaldir grunnskólar Reykjavíkur einsetnir:
     a .     Hagaskóli, Laugalækjarskóli og Réttarholtsskóli á unglingastigi og Fossvogsskóli á barnastigi.
     b .     Austurbæjarskóli, Álftamýrarskóli, Ártúnsskóli, Árbæjarskóli, Breiðagerðisskóli, Breiðholtsskóli, Fellaskóli, Foldaskóli, Grandaskóli, Hamraskóli, Hlíðaskóli, Hólabrekkuskóli, Húsa skóli, Hvassaleitisskóli, Langholtsskóli, Laugarnesskóli, Melaskóli, Selásskóli, Seljaskóli, Vesturbæjarskóli, Vogaskóli, Æfingaskóli KHÍ, Ölduselsskóli.

Virðingarfyllst,



Áslaug Brynjólfsdóttir, fræðslustjóri.


Frá fræðslustjóra Reykjaness.


(3. maí 1993.)




(Tafla ekki tiltæk.)




Frá fræðslustjóra Vesturlands.


(24. mars 1993.)



    Borist hefur ósk ráðuneytis um upplýsingar til svars við fyrirspurn á Alþingi um það hvaða grunnskólar á landinu séu einsetnir. Jafnframt er óskað eftir svari við því hvern ig fræðslustjórar skilgreini einsetinn skóla. Í huga fræðslustjóra Vesturlands er einset inn skóli sá sem getur veitt öllum nemendum kennslu samtímis, jafnt í bóklegum sem verklegum greinum. Því telur hann að sá skóli geti ekki kallast einsetinn þar sem nem endur verða að koma í skólann sérstaka ferð til þess að sækja tíma í íþróttum eða verk legum greinum.
    Samkvæmt þessu eru þessir skólar í umdæminu einsetnir:
    Heiðarskóli, Leirársveit, Andakílsskóli, Hvanneyri, Kleppjárnsreykjaskóli, Reykholts dal, Varmalandsskóli , Mýrasýslu, Laugagerðisskóli, Snæfellsnesi, Lýsuhólsskóli, Staðar sveit, Grunnskólinn á Hellissandi, Grunnskólinn í Stykkishólmi, Grunnskólinn í Búðar dal, Laugaskóli, Sælingsdal .
    Eftirtaldir skólar í umdæminu eru ekki einsetnir:
     Brekkubæjarskóli, Akranesi: 17 af 24 deildum er kennt samtímis. Oft sérstök ferð í skóla vegna íþrótta og verklegra greina.
     Grundaskóli, Akranesi: 17 af 24 deildum er kennt samtímis. Kennslustundir í verk legum greinum ekki alltaf aðliggjandi öðrum tímum á stundaskrá.
     Grunnskólinn í Borgarnesi: 15 af 19 bekkjardeildum er kennt samtímis. Stöku stund ir í íþróttum og verkgreinum aðgreindar og krefjast sérstakrar komu í skólann.
     Grunnskólinn í Ólafsvík er einsetinn að öðru leyti en því að stundum þarf að koma aftur í skóla til íþrótta og verkgreina.
     Grunnskóli Eyrarsveitar: Af tíu bekkjardeildum eru sex í kennslu samtímis en stunda skrá að öðru leyti samfelld.
    Með þessu telur fræðslustjóri Verturlandsumdæmis sig hafa gefið eins greinargóð svör við fyrirspurninni og hann getur.

Með góðri kveðju,



Snorri Þorsteinsson, fræðslustjóri.



Frá fræðslustjóra Vestfjarða.


(13. apríl 1993.)



     Einsetnir skólar: Grunnskólinn í Bolungarvík, Reykhólaskóli, Grunnskóli Barða strandarhrepps, grunnskólinn Rauðasandi, Grunnskóli Mýrahrepps Núpi, grunnskólinn Holti, grunnskólinn Flateyri, grunnskólinn Súðavík, grunnskólinn Reykjanesi, Finnboga staðaskóli, Klúkuskóli, grunnskólinn Broddanesi, grunnskólinn Borðeyri.
     Tvísetnir skólar: Grunnskólinn á Ísafirði, Grunnskóli Patreksfjarðar, Grunnskóli Tálknafjarðar, Grunnskóli Bíldudals, grunnskólinn Þingeyri, Grunnskóli Suðureyrar, Grunnskóli Drangsness, grunnskólinn Hólmavík.

Frá fræðslustjóra Norðurlands vestra.



     Einsetnir skólar: Gagnfræðaskóli Sauðárkróks , Barnaskóli Staðarhrepps, Vestur-Húnavatnssýslu, Laugarbakkaskóli, Vesturhópsskóli, Húnavallaskóli, Varmahlíðarskóli, Steinsstaðaskóli, Akraskóli, Grunnskóli Staðarhrepps, Skagafirði, Grunnskóli Rípur hrepps, Grunnskóli Skefilsstaðahrepps, grunnskólinn Hólum, grunnskólinn Hofsósi, Sól garðaskóli, Fljótum.
     Fjölsetnir skólar: Grunnskóli Siglufjarðar, Barnaskóli Sauðárkróks, Grunnskóli Hvammstanga, Grunnskóli Blönduóss, Höfðaskóli, Skagaströnd.


Frá fræðslustjóra Norðurlands eystra.


(24. mars 1993.)



    Á Norðurlandi eystra eru nú 30 sjálfstæðir grunnskólar. Af þeim eru 21 einsetnir en níu hafa ekki húsnæði til einsetningar. Í þessum níu skólum eru þó 64% nemenda um dæmisins.
    Í okkar huga merkir „einsetinn skóli“ skóla þar sem allir nemendur geta fengið sína kennslu sasmtímis og því sem næst samfellt.

Trausti Þorsteinsson.




Frá fræðslustjóra Austurlands.


(25. mars 1993.)



    Eftirtaldir skólar í Austurlandskjördæmi teljast einsetnir, þ.e. nemendur koma í skól ann á morgnana og njóta samfelldrar kennslu með eðlilegu matarhléi:
    Heimavistarskólar: Brúarásskóli, Skjöldólfsstaðaskóli, Grunnskólinn á Eiðum, Nesja skóli (að meiri hluta daglegur akstur).
     Heimanakstursskólar: Grunnskólinn í fyrrum Beruneshreppi, Grunnskólinn í fyrr um Geithellnahreppi, Grunnskólum á Mýrum, Austur-Skaftafellssýslu, Hrollaugsstaða skóli í Suðursveit, Gunnskólinn í Hofgerði í Öræfasveit.
     Heimangönguskólar: Grunnskólinn á Bakkafirði, Grunnskólinn á Mjóafirði, Grunn skólinn í Norðfjarðarsveit, Grunnskólinn á Stöðvarfirði, Grunnskólinn á Breiðdalsvík.

Virðingarfyllst,



Guðmundur Magnússon.


Frá fræðslustjóra Suðurlands.


(26. mars 1993.)



     Tvísetnir skólar: Barnaskóli Vestmannaeyja, Hamarsskóli Vestmannaeyja að hluta, Sandvíkurskóli, Grunnskólinn á Stokkseyri, 1. og 2. bekkur eftir hádegi, Eyrarbakka skóli, Hveragerðisskóli, Grunnskólinn í Þorlákshöfn, 1.–3. bekkur eftir hádegi og 4. bekk ur að hluta.
    Í öðrum skólum geta allir nemendur verið samtímis í skóla.
    Einsetinn er skóli þar sem allir nemendur geta verið samtímis í skólanum, ekki bund ið við að hver bekkur hafi sína stofu.

Virðingarfyllst,



Jón Hjartarson.


Neðanmálsgrein: 1
 Heimavist fyrir 6.–10. bekk.
Neðanmálsgrein: 2
 Allir nemendur í heimavist. Skólaseta yngri nemenda skert.
Neðanmálsgrein: 3
 Gagnfræðaskóli Sauðárkróks er eini skólinn sem ekki er með skerta skólaviku. Mismunandi er eftir skólum hve marga daga yngstu 3–4 árgangarnir mæta í skóla.