Ferill 146. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 146 . mál.


1237. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 33 26. apríl 1966, um fuglaveiðar og fuglafriðun, ásamt síðari breytingum, vegna samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.

Frá minni hluta umhverfisnefndar.



    Umhverfisnefnd leitaði umsagna um frumvarpið og fór yfir þær er bárust á fundi 9. desember sl. Á fundi nefndarinnar 16. desember var um það rætt að láta umfjöllun þessa máls fylgja meðferð stjórnarfrumvarps um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, öðrum en hvölum, sem er 302. mál yfirstandandi þings. Meðferð þess frumvarps varð eigi lokið og brá þá meiri hluti nefndarinnar á það ráð á fundi 5. maí sl. að afgreiða frumvarpið um breytingu á einni grein gildandi laga um fuglaveiðar og fuglafriðun frá nefndinni.
    Þessari málsmeðferð er minni hluti nefndarinnar ósamþykkur og vísar m.a. til eftirfarandi atriða sem fram koma um málið í umsögnum til nefndarinnar.

Frá Náttúrufræðistofnun Íslands:
    Frumvarpsins er auðsjáanlega þörf vegna aðildar Íslands að EES svo að Íslendingar og erlendir ríkisborgarar sitji við sama borð. Það opnar þá einnig fyrir óheftar veiðar útlendinga, en íslensk lög og reglugerðir hafa löngum miðað að því að koma sem mest í veg fyrir veiðar útlendinga.
    Hér er gerð breyting á 5. gr. laga nr. 33/1966, en eftir sem áður takmarkar reglugerð um skotvopn og skotfæri (nr. 16/1978), sem sett er samkvæmt lögum nr. 46/1977, erlendum ríkisborgurum í reynd aðgang að íslenskum veiðilendum  . . .  Þrátt fyrir frumvarpsbreytinguna setur reglugerðin erlendum veiðimönnum skorður, nema henni verði breytt samhliða frumvarpinu sem þá er á hendi dómsmálaráðherra. Það er svo annað mál að 3. liður reglugerðarinnar hefur verið brotinn allra seinustu ár því að Íslendingar hafa flutt inn útlenda veiðimenn eins og um ferðaþjónustu væri að ræða. Veiðar útlendinga hafa verið kynntar í erlendum bæklingum sem hluti af ferðaþjónustu bænda. Nýlega flutti Íslendingur inn norska blaðamenn gagngert til þess að kynna þessa hlið ferðaþjónustu. Þetta er augljóslega gert með atvinnusjónarmið í huga. Íslendingarnir þekkja ekki útlendingana persónulega og er því greinilega um brot að ræða.
    Veiðum útlendinga hafa einnig fylgt lögbrot sem eru fólgin í því að þeir hafa farið með fenginn úr landi án þess að hafa tilskilin útflutningsleyfi frá umhverfisráðuneyti. Allur útflutningur á fuglum er háður leyfum að rjúpu undanskilinni. Eftirlit með því hvað er flutt út af fuglum er nánast ekkert nema sérstakar ábendingar um yfirvofandi brot hafi komið fram. Frumvarpið opnar á það að útlendingar geti komið til landsins og stundað fuglaveiðar, t.d. rjúpnaveiðar, í atvinnuskyni. Þeir mættu flytja allar þær rjúpur sem þeir vilja úr landi án leyfa. Nýtt frumvarp til laga um fuglafriðun og fuglaveiðar gerir ráð fyrir að leyfi þurfi einnig vegna útflutnings á rjúpum. Meðan hér á landi er engin stýring á hve mikið einstakir veiðimenn mega veiða af fuglum er ekki á bætandi að erlendir ríkisborgarar geti veitt hér óheft. Frumvarp til veiðilaga, sem nú er í danska þinginu og kom fram af sömu ástæðu og ofangreint frumvarp, miðar að því að takmarka veiðar í almenningum við sportveiðar eingöngu. Þannig mætti einnig fara að hér á landi og þá sitja Íslendingar og útlendingar við sama borð.

Fuglaverndarfélag Íslands segir m.a. í umsögn:
    Með samþykkt þessa frumvarps getur verið að ásókn í veiðar aukist hér á landi vegna þess að fleiri aðilum er leyft að veiða fugla. Í greinargerð með frumvarpinu kemur ekkert fram (og það er einkennilegt) hve mikil áhrif samþykkt þessa frumvarps hefði á veiðiásókn. Það er ekki einu sinni metið hve margir aðilar gætu átt hér veiðirétt á sama tíma eftir hugsanlega samþykkt samnings um Evrópskt efnahagssvæði.
    Með tilvísun í ofangreint og að fuglategundir hér á landi þola misvel auknar veiðar sér Fuglaverndarfélagið sér ekki fært að mæla með þessu frumvarpi nema í tengslum við endurskoðun fuglaverndarlaga þar sem tekið er að nýju á friðun eða ófriðun einstakra tegunda og þá með tilliti til breyttrar (aukinnar) ásóknar í veiðar hér á landi.

Frá stjórn Búnaðarfélags Íslands:
    Stjórnin vísar til svohljóðandi samþykktar búnaðarþings:
    „Búnaðarþing ályktar að ekki sé aðkallandi sem stendur að veita undanþágu þá frá lögum nr. 33/1926, um fuglaveiðar og fuglafriðun, sem frumvarp til laga, sem nú liggur fyrir Alþingi, gerir ráð fyrir.
    Lagt er til að frumvarpið verði ekki að lögum.
    Til vara: Verði frumvarpið samt afgreitt sem lög vill búnaðarþing hvetja til ýtrustu varfærni varðandi heimildir útlendinga til skotveiða hér á landi. Það bendir í því sambandi á svipaða leið og Danir hyggjast fara gagnvart EB, að réttur útlendinga til fuglaveiða sé bundinn við þá sem lögheimili eiga í landinu, enda sé ekki um veiðar í atvinnuskyni að ræða.

Frá Stéttarsambandi bænda:
    Stéttarsambandið bendir á að óvissa ríkir um eignarrétt á ýmsum óbyggðum svæðum á hálendi landsins og harðvítugar deilur hafa að undanförnu spunnist milli skotveiðimanna og landeigenda hérlendis um rétt til skotveiða.
    Stéttarsambandið telur nauðsynlegt að skýrari línur fáist í þessum málum áður en erlendum mönnum verði heimilaðar skotveiðar hér á landi og leggur því til að afgreiðslu frumvarpsins verði frestað.

Frá Eyþingi á Húsavík:
    Stjórn Eyþings álítur að hér sé á ferðinni viðkvæmt mál sem þurfi að gaumgæfa mjög vandlega. Stjórnin telur að þörf sé á sérstakri lagasetningu um þetta mál og í því efni verði fylgt fordæmi Dana sem vísað er til í greinargerð frumvarpsins. Rétt er að sú lagasetning taki á fleiri þáttum málsins en fyrirliggjandi frumvarp gerir ráð fyrir, svo sem veiðum í atvinnuskyni.

    Minni hlutinn tekur eindregið undir þau sjónarmið sem fram koma í umsögnum þessara aðila. Engin haldbær rök hafa komið fram um að eitthvað liggi á að afgreiða þetta frumvarp. Fyrir umhverfisnefnd liggur stjórnarfrumvarp, 302. mál, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, öðrum en hvölum. Ekki vannst tími til að afgreiða það mál frá nefndinni nú, en að líkindum mun það koma fram og fá afgreiðslu á næsta þingi.
    Tilefni þessa máls af hálfu ríkisstjórnarinnar er samningurinn um EES sem enn er ekki genginn í gildi. Fjölmörg stjórnarfrumvörp, sem til eru komin vegna samningsins, eru enn óafgreidd og bíða næsta þings. 29. apríl 1993 var staðan þannig að af 68 tilgreindum EES-frumvörpum höfðu aðeins 26 verið samþykkt, þrjú lágu óafgreidd í ríkisstjórn og fimm voru ókomin til ríkisstjórnarinnar frá ráðuneytum. Í hópi frumvarpa, sem ríkisstjórnin hefur ekki komið sér saman um, er frumvarp um eignarhald á auðlindum í jörðu sem varðar umráðarétt jarðhita, m.a. á afréttum og í almenningum. Hið sama gildir um frumvarp um virkjunarrétt fallvatna. Það sætir furðu að með þessi stórmál í uppnámi skuli stjórnarmeirihlutinn þrýsta á um afgreiðslu á máli sem þessu sem hlotið hefur mjög takmarkaða athugun í þingnefnd og tengist mörgum álitamálum um eignar- og umráðarétt afrétta og almenninga og lögsögu í óbyggðum.
    Hvað sem varðar almenn viðhorf til þess að veita útlendingum, sem hér öðlast búsetu, m.a. í skjóli EB-réttar, sama rétt og Íslendingum er ráðlegast að leysa áður ýmis undirstöðuatriði. Þetta á m.a. við um það frumvarp sem hér um ræðir, en því tengjast mörg óleyst vandamál á sviði skipulags- og eignarréttarmála í óbyggðum. Staðan gjörbreytist á mörgum sviðum ef EES-samningurinn verður staðreynd. Þetta á ekki síst við um kaup á fasteignum, landi og hlunnindum og inn í þá mynd kemur aðgangur að almenningum, m.a. í stöðuvötnum.
    Ákvæði um atvinnu- og búseturétt hér á landi gjörbreytist með tilkomu samningsins um Evrópskt efnahagssvæði. Samkvæmt honum öðlast ríkisborgarar EES-ríkja og fjölskyldur þeirra varanlegan rétt til búsetu í ríki innan svæðisins eftir að hafa fengið þar vinnu og öðlast við það svonefnt dvalarleyfi. Þá fá ríkisborgarar EES-ríkja svonefndan staðfesturétt til að hefja og stunda sjálfstæða atvinnustarfsemi, m.a. sem sjálfstætt starfandi aðilar. Er þeim og fjölskyldum þeirra einnig veittur réttur til áframhaldandi búsetu eftir að þeir hafa hætt rekstri og eru reglur viðkomandi tilskipunar sambærilegar og fyrir launafólk. Þetta ber að hafa í huga þegar nú er litið á tillögur um að binda réttindi og skyldur manna við lögheimili óháð ríkisfangi.
    Minni hlutinn vekur athygli á eftirfarandi atriðum sem fram koma í athugasemdum með frumvarpinu þar sem orðrétt er vitnað til álitsgerðar Ólafs W. Stefánssonar, Stefáns M. Stefánssonar og Tryggva Gunnarssonar „Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið og fasteignir á Íslandi“ sem gefinn var út í júní 1992 (leturbreyting minni hluta):
    „Nýting þessa fuglaveiðiréttar getur ekki orðið tilefni þess að reyni á stofnsetningarrétt samkvæmt EES-samningnum að því marki að þessi réttindi séu sérstaklega keypt til að leigja þau út en hins vegar er ekki útilokað að erlendur aðili, sem nyti EES-réttar, stofnaði til atvinnustarfsemi sem fælist í því að skipuleggja ferðir þar sem þátttakendur færu til fuglaveiða á umræddum svæðum.
    Talið er að EB-réttur og þá EES-samningurinn girði ekki fyrir að áskilnaður sé gerður um sérstök tengsl við viðkomandi ríki til þess að hlutaðeigandi fái heimild til að nýta almannarétt, svo sem veiðirétt, af því tagi sem hér er fjallað um. Þannig getur aðili, sem nýtur EES-réttar og kemur til landsins sem ferðamaður, væntanlega ekki gert kröfu um að fá sama rétt og innlendur aðili til fuglaveiða utan eignarlands, EN HÉR KOMA HINS VEGAR UPP MARKATILVIK. Ef um er að ræða aðila sem nýtur EES-réttar og hefur fasta búsetu hér á landi á grundvelli launþegaréttar eða sem sjálfstæður atvinnurekandi er vafasamt að hægt sé að neita honum um heimild til að nýta slíka frjálsa veiðiheimild umfram þær takmarkanir sem einnig gilda gagnvart Íslendingum sem búsettir eru í landinu.“
    Þá er enn fremur rétt að vekja athygli á eftirfarandi athugasemd með frumvarpinu:
    „Við þetta má bæta að Danir eru nú að undirbúa frumvarp til laga um veiði og stjórn villtra dýrastofna (forslag til lov om jagt og vildtforvaltning) þar sem lagt er til að réttur til fuglaveiða í danskri landhelgi verði takmarkaður við þá sem lögheimili eiga í Danmörku enda sé ekki um að ræða veiðar í atvinnuskyni. Breyting þessi er m.a. rökstudd með tilvísun í Rómarsamninginn.“
    Þetta danska frumvarp fékkst ekki lagt fram til skoðunar í nefndinni né heldur voru undirtektir við að skilyrða umrædda heimild þannig að ekki sé um að ræða veiðar í atvinnuskyni. Þetta er alvörumál, m.a. í ljósi þeirra upplýsinga sem fram koma í umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands, að farið sé að flytja inn útlenda veiðimenn eins og um ferðaþjónustu sé að ræða.
    Fyrir afgreiðslu þessa máls úr umhverfisnefnd lágu fyrir upplýsingar um starf sérstakrar stjórnskipaðrar nefndar á vegum forsætisráðuneytis sem vinnur að mótun tillagna um eignarrétt að afréttum og almenningum. Hafi þessi stjórnskipaða nefnd samið drög að frumvarpi sem send hafi verið ráðuneytinu í desember 1992. Ákvörðun um þessi efni með lagasetningu á vegum Alþingis eða úrskurði dómstóla má teljast undirstaða þess að unnt sé að rækja eftirlit og framfylgja reglum er kveða á um landnot í almenningum og á afréttum. Í stað hálfkáks og lítt yfirvegaðra breytinga, eins og m.a. er stofnað til með þessu frumvarpi, verða að koma heildstæð tök á málefnum óbyggða og almenninga því að öðrum kosti er einni mikilvægustu auðlind þjóðarinnar stefnt í mikla hættu.
    Með vísan til þessa og atriða, sem fram munu koma í framsögu með þessu nefndaráliti, leggur minni hlutinn til að frumvarpi þessu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Alþingi, 7. maí 1993.



Hjörleifur Guttormsson.