Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
Eins og fram kom í gær af hálfu forseta þá er þess að vænta, eins og þá var orðað, alveg á næstunni, að umrætt frv. komi fram. Forsætisnefnd hefur ekki komið saman síðan í gær og þess vegna stendur sá forseti sem nú gegnir störfum í þeirri meiningu að umrætt frv. sé alveg á næstu grösum.