Innflutningur á landbúnaðarvörum

80. fundur
Þriðjudaginn 01. febrúar 1994, kl. 13:57:22 (3634)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Eins og hv. þm. er eflaust kunnugt um þá er dagskrá næsta fundar ekki samin úr forsetastóli heldur þegar líður á daginn. Forseti heyrði að sjálfsögðu þær óskir sem komu fram frá tveimur hv. þingmönnum varðandi dagskrá næsta fundar og mun hafa þær í huga þegar unnið verður að dagskrá morgundagsins.