[13:38]
Páll Pétursson :
Frú forseti. Ég bíð þess með mikilli óþreyju að þetta frv. komi fram í dag. Við munum fylgjast grannt með því. Ef frv. verður ekki komið í fyrramálið þá hljótum við að grípa til annarra aðgerða og fá hér afgreitt frv. frá tveimur stjórnarandstöðuþingmönnum sem við vitum að er mikill meiri hluti fyrir í þinginu.
Ég verð að játa það að ég tek með dálitlum fyrirvara fyrirheit og tímasetningar hæstv. forsrh. Hann hefur sagt hér ýmislegt um þyrlukaup, hann hefur reyndar sagt ýmislegt um þetta búvörulagafrv. líka en ég lifi í voninni fram til kl. fjögur a.m.k. að bíða eftir þessu frv.