Hafnalög

81. fundur
Miðvikudaginn 02. febrúar 1994, kl. 14:44:16 (3726)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Það sem hv. 4. þm. Norðurl. v. hefur sagt hefði sjálfsagt átt frekar að flokkast undir fundarstjórn forseta en þannig háttar málum að hæstv. samgrh. er í húsinu og ég mun gera ráðstafanir og biðja hann að vera viðstaddan umræðuna.