Tilkynning um dagskrá

82. fundur
Fimmtudaginn 03. febrúar 1994, kl. 12:12:08 (3752)

    
     Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Þar sem ekki er hægt að taka 2. mál á dagskrá vegna fundar í sjútvn. og menn sem þar eru eru á mælendaskrá og geta því ekki tekið þátt í umræðum hér. Gert hafði verið ráð fyrir að 3. dagskrármálið, ef leyft verður, kæmi til umræðu eftir hádegishlé og jafnframt 4. dagskrármálið, en gert er ráð fyrir hádegishléi og að fundurinn hefjist aftur kl. hálftvö. Því verður nú tekið fyrir 5. dagskrármálið.