Álit EFTA-dómstólsins um skýringu samnings um EES

85. fundur
Þriðjudaginn 08. febrúar 1994, kl. 19:12:46 (3923)


[19:12]
     Kristín Einarsdóttir (andsvar) :
    Frú forseti. Ég gef ákaflega lítið með álit hv. 3. þm. Reykv. hvaða ræður eigi erindi inn í þessa umræðu og hvaða ekki. Það væri einkennilegt ef maður færi að fara hérna upp og dæma það, þá held ég að það væru ýmsar ræður sem mættu missa sín hér. ( Gripið fram í: Það er rétt. Fleiri mega missa sín.) En það er akkúrat ekki hlutverk okkar að fara að meta það hér hverjar þeirra megi missa sín og hverjar ekki. Hér er fullt málfrelsi. Ég hlustaði á ræðu hv. 9. þm. Reykn. úr því að það er til umræðu hér og ég get fullyrt, nærri því fullyrt að hv. 3. þm. Reykv. hefur misskilið ýmislegt sem þar var sagt miðað við það sem hér hefur komið fram. Ég hlustaði á þá ræðu og ég ætla ekki að fara að endurtaka hana fyrir hv. þm. þó að það geti vel verið að maður geri það einhvern tíma við seinna við tækifæri.