[12:54]
Tómas Ingi Olrich (andsvar) :
Virðulegi forseti. Til þess að fyrirbyggja allan misskilning, þá vona ég að það hafi komið fram í máli mínu í megintóni þess að ég er hlynntur þessari þáltill. og styð hana þó að ég hafi gert alvarlegar athugasemdir við framsetninguna á málinu í greinargerð tillögunnar.