[16:07]
Flm. (Lára Margrét Ragnarsdóttir) :
Hæstv. forseti. Ég vil fá að þakka hæstv. starfandi heilbrrh. fyrir góðar spurningar. Ástæðan fyrir því að ég legg fram þetta frv. eru frómar óskir þeirra sem hafa starfað í slysavarnaráði á undanförnum tveimur árum, þar sem þeir telja algera nauðsyn á því að ráðið fái ákveðið sjálfstæði með lögum og þeir telja jafnframt að það sé eingöngu hægt að tryggja ráðinu fjármagn til starfseminnar með því að lögfesta það sem slíkt. Það eru rökin sem þeir sem hafa starfað í slysavarnaráði hafa lagt fram í þessu efni.
Ég vil enn fremur ítreka að að sjálfsögðu eru, eins og ég sagði áðan, ýmsir aðilar sem skrá upplýsingar um slys og reyndar fleiri heldur en mig óraði fyrir þegar ég fór af stað með þetta. Og ég tel að þær upplýsingar sem margir þessir aðilar sitja inni með séu ákafleg viðkvæmar, sérstaklega persónulega viðkvæmar, og þess vegna sé nauðsynlegt að sjálfstæði þessa ráðs sé ákaflega mikið og það vistað inni hjá landlæknisembættinu, eins og ég sagði áðan, sem ætti að tryggja bestu persónulegu leynd.