[14:58]
Halldór Ásgrímsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Ég veit ekki hvort skiptir mestu máli, hv. þm., að spyrja mig út úr um þetta mál. Það er rétt að ég er þeirrar skoðunar að það sé rétt að smábátarnir séu í heildaraflamarki og ég hef reyndar ávallt verið þeirrar skoðunar. Það sem stendur í núgildandi lögum er ekki allt komið frá hvorki mér né öðrum. Þetta eru margvíslegar málamiðalnir sem hafa átt sér stað í gegnum tíðina. Ég hélt því fram að þetta mundi springa. Ég man hins vegar vel að margir forustumanna smábátamanna töldu að það mundi ekki gerast. Þarna væri engin hætta á ferðum. Þeir eru að vísu annarrar skoðunar í dag en ég man vel eftir þeim samtölum og taldi að þeir hefðu óþarflega litlar áhyggjur af því. Hins vegar verða smábátarnir að sjálfsögðu að sætta sig við banndaga. En ég hef enga patentlausn á vanda þeirra báta sem hv. 3. þm. Vestf. nefndi hér réttilega sem er mjög mikill og hefur allt of lítið verið ræddur. Það er hins vegar mjög erfitt að koma sérstökum uppbótum til þeirra. En ég tel að það komi fyllilega til greina að þeir sem hafa orðið fyrir langmesta aflabrestinum fái meiri uppbætur. Það er hins vegar mjög erfitt að finna leið til þess. En ég er sammála því að það þarf að fara betur ofan í það mál og ég er oft undrandi á því hvað það hefur verið lítið rætt, t.d. af forustumönnum smábátaeigenda í landinu. Það er eins og ekkert annað sé til en krókabátarnir oft og tíðum í þeirri umræðu. En aflamarksbátarnir sem eru í þessum flokki eiga við mjög mikinn vanda að etja.