[21:08]
Sturla Böðvarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Vegna andsvars hv. þm. Stefáns Guðmundssonar vil ég svara honum með því að segja að ég tel --- og dreg ekkert til baka af því sem ég hef sagt hér --- að það séu mjög óeðlilegir viðskiptahættir sem hafa tíðkast í sambandi við viðskipti tonn á móti tonni og það er hægt að sjá það og fá upplýsingar um það og meta það af þeim verðum sem þar er um að ræða. Ég tel að það sé ekki eðlilegt og það sé í rauninni mikil neyð fyrir útgerðarfyrirtækin, fyrir sjómennina að þurfa að veiða og fá 60--65 kr. fyrir kg af þorski á sama tíma og á mörkuðum fást kannski 100 kr. fyrir kg. Ég held að þessar aðstæður auðvitað skapist af því hversu takmarkaður afli er til ráðstöfunar. En það er samt sem áður þannig að þau fyrirtæki sem hafa mestan kvóta hafa getað skapað sér þennan rétt.
Ég ræddi um það hér áðan að ég tel að í upphafi kvótakerfisins hefði átt að koma á þeim möguleika að fiskvinnslustöðvar hefðu yfirráð yfir aflaheimildum. Ég tel að með því hefði skapast meira jafnvægi milli útgerðarinnar og fiskvinnslunnar en aðallega þó með því að þá hefðu fiskvinnslustöðvarnar og vinnsluaðilarnir haft einhvern rétt en stæðu ekki frammi fyrir því eins og í dag að fiskvinnslustöðvar eru nánast verðlausar vegna þess að þær hafa ekki yfirráð yfir nokkrum kvóta. Það er mergurinn málsins.