Stjórn fiskveiða

90. fundur
Miðvikudaginn 16. febrúar 1994, kl. 01:38:49 (4211)


[01:38]
     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Ástæðan fyrir því að byggðakvótahugmyndir Kvennalistans hafa ekki verið teknar til alvarlegrar umræðu, sem er alveg rétt hjá hv. þm., er sú að Kvennalistinn hefur ekki á nokkurn hátt skýrt það út með hvaða hætti er hægt að taka þær hugmyndir alvarlega.
    Varðandi nauðsyn þess að skapa hér festu þá vona ég að hv. þm. geti verið um það sammála að þessi atvinnugrein á það skilið að stjórnvöld standi þannig að málum að atvinnugreinin geti til nokkurrar frambúðar treyst því við hvaða leikreglur hún á að starfa. Þegar umræður fara fram á þann veg að ekki eru settar fram í alvöru hugmyndir um annars konar kerfi í grundvallaratriðum þá tel ég að við séum á því stigi að geta skapað þá festu sem nauðsynleg er þó að við ræðum hér um útfærslu á þeim grundvallaratriðum sem ekki hafa komið neinir valkostir við í þessari umræðu.