Þorskveiðiheimildir

91. fundur
Miðvikudaginn 16. febrúar 1994, kl. 13:42:47 (4220)


[13:42]
     Ingibjörg Pálmadóttir :
    Virðulegi forseti. Fyrispurn mín er til hæstv. forsrh.

    Í gær kom fram í umræðu um fiskveiðistjórnunina að nokkrir stjórnarsinnar telja rétt að auka þorskveiðiheimildina nú þegar. Hæstv. sjútvrh. hefur þegar úttalað sig í þessu máli. Hver er skoðun hæstv. forsrh. Davíðs Oddssonar í þessu máli? Telur hann rétt að auka þessar heimildir?