[16:51]
Steingrímur J. Sigfússon (andsvar) :
Hæstv. forseti. Þetta hljómaði allt mjög fallega í teoríunni hjá hæstv. sjútvrh. En staðreyndin er bara sú að það sem hefur t.d. verið að gerast á undanförnu ári og árum er það að loðnuskip hafa horfið úr flotanum. Það er bara staðreynd, hæstv. sjútvrh. Alveg sama hversu fallegar þessar teoríur hljóma um að menn muni ekki láta frá sér skip nema þau hafi ekki verkefni o.s.frv. Staðreyndin er sú að það hefur verið að fækka í loðnuskipaflotanum, afköstin hafa verið að minnka þar og er þar þó á ferðinni stofn sem við höfum ekki ár eftir ár náð að fullnýta og sama á að nokkru við um síldina. Veit hæstv. sjútvrh. ekki af því að það hafa verið að fara út úr flotanum loðnuskip og inn hafa komið skip sem fara á aðrar veiðar í staðinn?
Það sem ég var að reyna að fiska eftir með þessari spurningu var hvort hæstv. sjútvrh. væri sem sagt alveg sannfærður um það að þessi blinda úrelding, þar sem ekkert er horft á nema tonnin og borið á menn fé til þess að ná út tonnum, væri gáfuleg ráðstöfun. Ég fékk auðvitað ekkert svar vegna þess að þetta var ekkert svar. Telur hæstv. sjútvrh. það ekki alvörumál ef afkastageta loðnuskipaflotans er að minnka í ljósi þess að við höfum ekki náð að fullnýta stofninn og veiða kvótann ár eftir ár? Er ekki hægt að fá svar við svona spurningu? Er hægt að hafa sjútvrh. sem getur ekki svarað svona spurningum?