[16:36]
Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) :
Virðulegi forseti. Hv. 1. þm. Vesturl. spyr hverra kosta er völ að nýta hafnaraðstöðu og búnað í Hvalfirði og dreifa þaðan olíu um Vestur- og Norðurland.
Því er til að svara að olíufélagið ESSO á fjóra olíutanka í Hvalfirði og hefur hafnaraðstöðu fyrir olíuskip. Þessir olíutankar voru áður á leigu Atlantshafsbandalagsins en svo er ekki lengur. Gera má ráð fyrir að nýta megi ofangreinda olíutanka og hafnaraðstöðu ESSO til olíudreifingar um Vestur- og Norðurland vilji fyrirtæki og sveitarfélög semja um það sérstaklega við ESSO.
Að því er varðar olíutanka og hafnarmannvirki Atlantshafsbandalagsins í Hvalfirði, þá eru þau mannvirki í daglegri notkun sem þáttur í föstum samningsbundnum varnarviðbúnaði bandalagsins hér á landi og eru því önnur not af þeim ekki möguleg.