[17:51]
Heilbrigðisráðherra (Guðmundur Árni Stefánsson) :
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. fyrirspyrjanda um nauðsyn þess að halda sífellt vöku sinni í þessum efnum. Það er ljóst að fræðsla af þessum toga þarf að vera síbreytileg. Markmiðið liggur ljóst fyrir, að vara við þessari vá. Hitt er annað mál að leiðirnar mega ekki verða leiðigjarnar. Það þarf ævinlega að vera vakandi fyrir nýjum möguleikum til nálgunar, sérstaklega að þeim markhópum sem hvað viðkvæmastir eru, sem rétt er að er kannski ekki síst unga fólkið.
Ég hygg að almennt megi segja að samstarf þeirra aðila sem nærri koma sé býsna náið og gott, eins og ég gat raunar um í svari mínu. Hvað viðvíkur sambandi við samtök alnæmissjúklinga og Samtökin '78 hef ég ekki á reiðum höndum með hversu formlegum hætti það er af hálfu landlæknisembættisins. Hitt veit ég að ég hef átt tal við forsvarsmenn og félaga í þessum samtökum alnæmissjúklinga og þeir hafa leitað stuðnings hjá ráðuneytinu við minni háttar mál. Þeir njóta stuðnings frá borginni við húsnæðismálin og einnig hefur ráðuneytið veitt þeim stuðning og styrk. Hvort það er nægilegt skal ósagt látið en ég tek vitaskuld undir nauðsyn þess að þessi samtök verði virk í þessu fræðsluprógrammi, í þessum tilraunum þeirra fjölmörgu aðila sem að fræðslunni standa. Og án þess að ég geti fullyrt um það þá er mín tilfinning sú, a.m.k. eftir tal mitt við fulltrúa þessara samtaka, að svo sé.