Stöðvun verkfalls fiskimanna

100. fundur
Þriðjudaginn 01. mars 1994, kl. 20:49:22 (4633)


[20:49]
     Stefán Guðmundsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Eins og ég sagði, þá mun ég gera grein fyrir atkvæði mínu þegar þar að kemur, en til þess aðeins að létta á þannig að hv. þm. hafi sæmilega nótt, þá vil ég segja honum að það liggur alveg ljóst fyrir að ég mun greiða atkvæði gegn setningu bráðabirgðalaganna. Það liggur alveg ljóst fyrir.