[20:55]
Stefán Guðmundsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Hæstv. forsrh. segir að ég segi ósatt og við sem hér höfum talað fyrir Framsfl. í dag og í kvöld í því máli að við okkur hafi verið haft samráð áður en bráðabirgðalög voru sett. Ég veit ekki hvaðan hæstv. forsrh. hefur það að við segjum ósatt um málið. Ég fullyrði að sá sem segir ósatt í því er hæstv. núv. forsrh. Hann segir ósatt. Staðreyndin er sú að í hvert skipti sem Framsfl. hefur staðið frammi fyrir því að þurfa að setja bráðabirgðalög hefur verið haft samband við þingmenn Framsfl. Þetta hefur komið hér fram. En það er eðlilegt að þetta særi tilfinningar hæstv. forsrh. vegna þess að hann hefur brotið þetta prinsipp og þess vegna er það hann sem talar hér eins og helsærður maður í þessum efnum.