Forseti (Valgerður Sverrisdóttir)
:
Það hefur nú verið samþykkt að vísa þessu máli, 3. dagskrármálinu, til hv. efh.- og viðskn. og forseti hefur ekkert frekar um það að segja.
Forseti vill taka fram um 4. dagskrármálið að atkvæðagreiðsla um það fer ekki fram fyrr en í lok fundarins undir kl. 4. Þá hefur orðið um það samkomulag að taka 12. dagskrármál á undan 11. máli.