[15:24]
Páll Pétursson :
Frú forseti. Mér ofbýður alveg viðhorf hæstv. fjmrh., varaformanns Sjálfstfl. Ég vona að hann eigi ekki eftir að endurtaka aðra eins vitleysu úr ræðustólnum og hann var að fara með áðan. Ég treysti hæstv. forseta fullkomlega til þess að gæta réttsýni. Iðulega hefur frú forseti orðið við tilmælum frá mér um það að fresta atkvæðagreiðslum. Ég treysti því að svo verði enn og mér dettur ekki í hug að fara að væna frú forseta um það að hún mismuni okkur. Ég tel alveg víst að hún taki tillit til réttmætra óska okkar hér eftir sem hingað til.
Hins vegar ætla ég að biðja varaformann Sjálfstfl., hæstv. fjmrh., að láta aðra um stjórn þingsins. Hann á erfitt með að stilla sig en ég held að forsetadæminu væri það ekki til framdráttar að hæstv. fjmrh. væri að vesenast í að stjórna þinginu líka.