[16:03]
Kristinn H. Gunnarsson :
Virðulegi forseti. Það var í tíð síðasta samgrh. að hafin var rækileg endurskoðun á snjómokstursreglum og hrint í framkvæmd þeirri endurskoðun að hluta til og ég fagna því að hæstv. samgrh. skuli hafa haldið áfram á sömu braut og taki næsta áfanga fyrir og hrindi honum í framkvæmd nú fyrir páska.
Mig langar til að forvitnast aðeins nánar um það hjá hæstv. ráðherra í hverju þessar nýju reglur eru fólgnar, hvað þær þýða, hversu oft verður opnað eða mokað í vikunni, hvort það verður fjórum sinnum í viku eða fimm daga í viku. Hins vegar vil ég láta í ljós ánægju mína með að ég hjó eftir því að hæstv. ráðherra talaði um þessar reglur og endurskoðun þeirra sem almennan rétt sem íbúarnir mundu eiga og fá án tillits til þess hvort sveitarfélög hefðu verið sameinuð eða ekki. Og ég fagna því að hæstv. ráðherra skuli taka svo málefnalega á málinu.