Framleiðsla og sala á búvörum

109. fundur
Þriðjudaginn 15. mars 1994, kl. 17:33:28 (5091)


[17:33]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég tel reyndar að hv. stjórnarandstæðingar í landbn. hefðu getað fallist á þær tillögur sem liggja fyrir en þeir vildu leitast við að slá pólitískar keilur í málinu og reyna að skapa tortryggni um þá vinnu og þær tillögur sem þar lágu fyrir og þess vegna kusu þeir eins og hinn stynjandi þingmaður veit að fara þá leið sem þeir fóru.