[21:38]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
Virðulegi forseti. Nú háttar þannig til að sá sem hér stendur er næstur á mælendaskrá og það sem gerði það að verkum að ég bað um orðið í dag var túlkun hæstv. forsrh. í umræðum hér á skoðunum og vilja okkar stjórnarandstæðinga í landbn. Ég hlýt þess vegna og fór fram á það við forseta að minni ræðu yrði frestað þar til hæstv. forsrh. væri kominn af krýningarathöfninni sem nú ku fara fram vestur á Hótel Sögu. Og einhvern tíma hefur hæstv. landbrh. farið fram á frestun á umræðu af minna tilefni en því sem hér er sagt af.