[01:15]
Steingrímur J. Sigfússon (um fundarstjórn) :
Hæstv. forseti. Ég bar fram ósk til forseta fyrir nokkru síðan og óskaði eftir að forseti svaraði því hvort ekki væri rétt að fresta umræðunni a.m.k. áður en mælendaskrá væri tæmd og henni lyki þannig að mönnum gæfist tóm til að vega og meta og yfirfara ýmis tíðindi sem hafa orðið í umræðunni áður en umræðunni lyki og þar með talið að taka til umfjöllunar óskir um að landbn. tæki málið til skoðunar á nýjan leik og fari yfir nýjar upplýsingar því tengdar. Ég óska nú eftir því að forsetar svari óskum af þessu tagi og auðvitað helst verði við þeim. Það er nú búinn að standa hér allmikill fundur þannig að að breyttu breytanda væri ekki óeðlilegt að fara að láta nótt sem nemur og taka frekar upp þráðinn í umræðunni aftur á venjulegum fundartíma á morgun. Auk þess tel ég að fyrir því séu vel grunduð efnisleg rök að verða við þessari ósk núna, ekki síður en t.d. því að verða ítrekað við óskum Sjálfstfl. um að fresta atkvæðagreiðslu um hafnalög.