Framleiðsla og sala á búvörum

109. fundur
Miðvikudaginn 16. mars 1994, kl. 01:16:37 (5147)


     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseti hefur hugsað sér að reyna að ljúka þessari umræðu og minnir á að þetta er ekki síðasta umræða um málið, 3. umr. er eftir. Hv. 6. þm. Norðurl. e. nefndi að það væri hugsanlegt að taka málið til nefndar á milli umræðna. Þó forseti ætli ekki að hafa afskipti af því þá vill forseti endilega reyna að ljúka þessari umræðu og það virðist vera að það sé kannski ekki svo óskaplega langt í land eins og málið lítur út þessa stundina.