Vátryggingastarfsemi

110. fundur
Miðvikudaginn 16. mars 1994, kl. 16:09:42 (5224)


[16:09]
     Heilbrigðisráðherra (Guðmundur Árni Stefánsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Mér er ekki kunnugt um vísindalega og heildstæða úttekt af þessum toga þó ég geti ekki fullyrt um það. Hún kann að hafa farið fram. Hitt hef ég heyrt og séð einstaka upplýsingar sem lúta að því að þegar hægt er að bera saman, sem stundum er býsna erfitt, þá standi íslenskir tryggingatakar ekki mjög sterkt þegar litið er til ECU eða króna eða marka eða punda eftir því hvernig menn vilja nálgast það mál.