Stækkun atvinnu- og þjónustusvæða á Vestfjörðum

115. fundur
Þriðjudaginn 22. mars 1994, kl. 19:08:26 (5465)


[19:08]
     Kristinn H. Gunnarsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegur forseti. Ég verð að láta uppi þá ósk mína við forseta að ég óska eftir því að hæstv. ráðherra svari þessum fyrirspurnum. Málið er þannig fram borið að það lýtur fyrst og fremst að tveimur ráðherrum og annar þeirra er hæstv. félmrh. Það er nauðsynlegt að ráðherrann upplýsi um þau áform sem að því ráðuneyti lúta í þessari umræðu og ég óska eftir því að ráðherrann verði kvaddur til umræðunnar og svari spurningum áður en ég tek til máls að nýju.